Læknablaðið - 01.10.2023, Síða 30
458 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
F R É T T I R
Sólveig formaður
Félags almennra lækna
„Við erum stærsti hópur starfandi lækna á Íslandi. Það er breyting tilkomin vegna eflingar sérnáms-
ins. Fólk hefur tækifæri til að vinna hér lengur,“ segir Sólveig Bjarnadóttir, nýr formaður FAL
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Við finnum að fólk vill leggja áherslu
á fjölskylduvænni vinnu. Það verðmet-
ur frítímann sinn hærra en áður. Yngri
læknar eru ekki spenntir fyrir löngum
vöktum og við viljum gera vinnutím-
ann eðlilegri og fjölskylduvænni. Það er
sama krafa og við sjáum í samfélaginu,“
segir Sólveig Bjarnadóttir sem í maí tók
við formennsku í Félagi almennra lækna,
FAL, af Þórdísi Þorkelsdóttur. Þórdís
situr enn í stjórn félagsins.
Sólveig Bjarnadóttir, formaður Félags almennra lækna,
segir sérnámið hafa fjölgað félagsmönnum. Sérnám hér
á landi hafi jákvæð áhrif á vinnuumhverfið. Mynd/gag
veitingu sérfræðileyfis til lækna. Þetta
er gríðarlega mikilvægt og við fögnum
því að fá nýjan og bættan lagaramma,“
segir hún. Þessi þróun hafi nú leitt af sér
að FAL sé orðið stærsta aðildarfélagið
innan LÍ.
Sólveig segir stjórn FAL hafa áhyggjur
af óhóflegu álagi í heilbrigðiskerfinu. Al-
mennir læknar vilji geta viðhaldið gæð-
um þjónustunnar. „Við keppum að því
að veita góða heilbrigðisþjónustu og á
þeim faglegu forsendum sem við viljum
þannig að við og sjúklingarnir séum sátt
við hana,“ segir hún.
„Það eru hins vegar brotalamir í
kerfinu og við höfum horft á fólk fara í
kulnun og höfum áhyggjur af því, ekki
aðeins hjá almennum læknum heldur
allri læknastéttinni.“ Hún bindur vonir
við að hægt sé að taka á vandamálinu.
„Til þess þurfa bæði stjórnendur heil-
brigðisstofnana og stjórnvöld að koma að
málinu. Þetta snýr að framtíðarmönnun
heilbrigðiskerfisins og er á þeim skala að
það þarf inngrip úr stjórnkerfinu til að
leysa það.“
Sólveig segir sérnámið ásamt kjara-
málum stærstu áherslumál félagsins en
kjaraviðræður hefjist aftur eftir áramót.
„Mér finnst vera hugur í fólki hvað
kjaramálin varðar.“
Sólveig hefur setið í stjórn LÍ frá 2022.
Hún segir það hafa verið hvatningu til
að sækjast eftir formennskunni, enda
stjórnin kröftug og öflug. „Hópurinn er
samstíga og þar er góður andi. Við hlust-
um vel á sjónarmið hvers annars.“ Hún
segir sérnámsmál hafa ráðið ferðinni
í starfsemi félags almennra lækna að
undanförnu enda hafi þeim sem sér-
mennta sig hér á landi fjölgað hratt.
„Undanfarin ár hefur mikilli vinnu
verið varið í að byggja upp öflugt sér-
nám á Íslandi. Það hefur skilað sér í því
að fólk kýs að vinna hér lengur og í sum-
um greinum er hægt að klára fullt sér-
nám á Íslandi. Það er meira af reyndum
sérnámslæknum sem hefur jákvæð áhrif
á vinnuumhverfið og er í raun auka þrep
í læknamönnun á heilbrigðisstofnun-
um,“ segir hún.
„Síðustu ár hefur verið unnið að
reglugerð um sérnámsgrunn, sérnám og
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir hjarta-
læknir hefur ákveðið að víkja úr rit-
stjórn Læknablaðsins eftir 5 ára setu. Fyrir
hönd Læknablaðsins eru henni þökkuð
vel unnin störf og fær hún bestu óskir
um góðan framgang í framtíðarstörfum
sínum. Sæmundur Rögnvaldsson sér-
námslæknir í lyflækningum á Landspít-
ala kemur nú inn í ritstjórn. Samhliða
læknanámi við Háskóla Íslands hóf
Sæmundur doktorsnám og hefur skilað
afar ríku vísindastarfi og tók þátt í að
byggja upp hið merka vísindaverkefni
leitt af Sigurði Yngva Kristinssyni: Blóð-
Breytingar í ritstjórn Læknablaðsins
skimun til bjargar. Innan þess
verk efnis var efni doktors-
ritgerðar Sæmundar sem
hann varði árið 2022 og ber
heitið: Monoclonal gamm-
opathy of what significance?:
Overcoming the methodological
limitations of studying an
asymptomatic precursor dis-
order. Sæmundur hefur
einnig reynslu af kennslu í læknadeild
fyrir og eftir útskrift, meðal annars far-
aldursfræði, líffræðilegri tölfræði og
frumulíffræði. Í dag ber hann ábyrgð á
BS-kúrs læknanema. Hann
hefur verið meðleiðbeinandi
í vísindaverkefnum nokkurra
læknanema og birt fjölda
ágripa á erlendum vísinda-
ráðstefnum og vísindagreinar
í virtum erlendum vísindarit-
um auk þess að hafa hlotið
verðlaun bæði erlendis og
hérlendis. Auk alls þessa
hefur Sæmundur verið afar virkur í fé-
lagsstörfum og slegið í gegn á fjölda árs-
hátíða Læknafélags Íslands enda mikill
tónlistarmaður og húmoristi.
Sæmundur Rögnvaldsson.