Velferð - jun. 2022, Side 18

Velferð - jun. 2022, Side 18
18 verið á Landspítala frá árinu 2001, eins og margir tugir forverar hennar hafa einnig gert. Nemarnir vinna rannsóknir sínar upp úr þessum gögnum ásamt því að bæta við nýjum sjúklingum og frekari upplýsingum við grunninn hverju sinni. Einnig hjálpa þau hvert öðru með því að kenna þeim sem á eftir koma aðferðir tengdar gagnasöfnuninni og njóta góðs af vinnu þeirra sem á undan voru. Rannsóknirnar snúast m.a. um lifun eða áhrif heilsufars sjúkl­ inganna fyrir aðgerð á árangur og útkomu aðgerðarinnar, en einnig tíðni fylgikvilla. Nanna var svo elskuleg að leiða okkur frekar um vinnu hópsins, einstaka viðfangsefni og eigin rannsóknarvinnu: Ég sjálf rannsakaði áhrif skertrar nýrnastarfsemi á snemmkom­ inn árangur kransæðahjáveituaðgerðar, þ.e. fylgikvilla og lifun fyrstu 30 dagana eftir aðgerðina, og birti nýverið grein þess efnis í Læknablaðinu. Í stuttu máli kom í ljós í rannsókn minni, að tæplega fimmti hver sjúklingur sem gengst undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala hefur skerta nýrnastarfsemi og sumir þeirra alvar­ lega nýrnabilun. Áhætta við aðgerðina er verulega aukin hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi en árangur aðgerðarinnar er góður hér á landi og sambærilegur árangri erlendis. Hér og nú kíkjum við á nokkur viðfangsefni en önnur í hópnum, auk Nönnu Sveindóttur eru þau Sunna Rún Heiðarsdóttir, Alex­ andra Heimisdóttir, Leon Arnar Heitman, Þorri Geir Rúnarsson, Katrín Júníana Lárusdóttir, Árnis Steinn Stein­ þórsson, Elín Metta Jensen, Freydís Einars­ dóttir, Egill Gauti Þorsteinsson og Sunna LuXi og Erla Liu Ting Gunnarsdætur. Leon Arnar Heitmann hefur unnið rann­ sóknir undir handleiðslu Tómasar og Martins Inga Sigurðssonar prófessors í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Nýlega birti hann í vís­ indariti evrópsku hjartaskurðlæknasamtakanna (EJCTS) grein þar sem sem hann og Martin skoðuðu meðal annars meðferðarheldni sjúklinga við hjartalyf eftir að hafa undirgengist kransæðahjáveituaðgerð á Íslandi. Í ljós kom að meðferðarheldnin var góð skömmu eftir að­ gerð en minnkaði töluvert næstu mánuði þar á eftir, ekki síst hjá þeim sem höfðu ekki áður notað lyfin. Þær niðurstöður gefa til kynna að efla þurfi eftirlit með lyfjameðferð kransæða­ sjúkdóms og er áminning um mikilvægi þess að fagstéttir styðji vel við sína sjúklinga og hvetji þá til að mæta meðferðarmarkmiðum. Katrín Júníana Lárusdóttir rannsakaði árang­ ur ósæðarlokuísetninga með þræðingartækni, eða TAVI, þar sem farið er með nýja lífræna ósæðarloku í gegnum náraslagæð og henni komið fyrir ofan á þeirri gömlu sem er ýtt til hliðar. Árangur slíkra aðgerða á Landspítala reyndist góður og á pari við það sem við sjá­ um á stórum sjúkrahúsum landanna í kringum Leon Arnar Heitman læknanemi á 4. ári hefur unnið rannsóknir undir handleiðslu læknanna Martins Inga Sigurðssonar og Tómasar Guðbjartssonar. Hefur hann m.a. fjallað um meðferðarheldni sjúklinga við hjartalyf eftir aðgerðir. – Ljósm.: Kristján Ingi Einarsson

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.