Velferð - jun. 2022, Side 25

Velferð - jun. 2022, Side 25
25 Kjartan Birgisson hefur verið einn af máttarstólpum Hjarta­ heilla í gegnum tímann. Hann hefur verið öflugur málsvari fyrir líffæraþega og var einn af stofnendum félagsins ANNAÐ LÍF, sem er áhugafélag um líffæragjafir. Þann 1. janúar, 2019 tóku gildi á Íslandi ný lög um líffæra­ gjafir, svokallað ætlað samþykki til líffæragjafa. Með þessum lögum er gert ráð fyrir að allir Íslendingar séu líffæragjafar nema þeir hafi tekið annað fram sérstaklega. Samhliða því að vinna ötullega að málefnum líffæraþega hefur Kjartan tekið ríkan þátt í starfsemi Hjartaheilla og unnið m.a. í hlutastarfi á skrifstofu Hjartaheilla. Á vordögum ákvað Kjartan að hætta störfum á skrifstofunni og er söknuður að honum. Fólk fer í sjálfboðaliðastörf af ýmsum ástæðum. Mörgum finnst starfið áhugavert og gefandi, aðrir vilja láta gott leiða af sér. Sjálfboðaliðastarf getur nefnilega verið lærdómsríkt og þroskandi. Hjartaheill hefur treyst á sjálfboðaliða í sínum röðum allt frá stofnun samtakanna. Við höfum í því sambandi verið heppin að fengið í raðir okkar virka þátttakendur sem hafa mótað umhverfi sitt og samfélag okkar. Fyrir það ber að þakka. Kjartan er einn af þeim aðilum sem hefur sinnt miklu sjálfboðastarfi samhliða öðrum störfum fyrir Hjartaheill. Það var við hæfi að veita Kjartani gullmerki Hjartaheilla sem er æðsta viðurkenning sem félagi getur fengið fyrir störf sín. Kjartan er hvergi hættur félagsstörfum, þó svo að hann hafi rifað seglin eilítið. - Frétt: Hjartaheill. Gullmerki Hjartaheilla Kjartan Birgisson tekur við gullmerki Hjartaheilla úr hendi Sveins Guðmundssonar, formanns félagsins. – Ljósm.: G. Löve

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.