Edda - 01.03.1945, Qupperneq 3

Edda - 01.03.1945, Qupperneq 3
E D D A 3 Bokagerð. Bókaútgáfa Porsteins M. Jónssonar. Það eru nú liðin rúm 20 ár síðan Þorsteinn M. Jónsson hóf bókaútgáfu sína, af litlum efnum, en óbilandi kjarki. A þessum árum hefir hann með henni unnið merkilegt menningar- starf og verið trúr þeirri hugsjón sinni að koma £Óðum bókum á prent. Alls hefir Þ. M. J. gefið út um 200 bindi. Meðal hins Þorst. M. jónsson fyrgta yar ritgafn. ið Lýðmentun. — Áttu þar að koma út alþýðleg fræðirit ýmiss efnis og seljast ódýrt. Fyrstu ritin voru Himingeimurinn eftir Ágúst H. Bjarnason og Rousseau eftir Einar Olgeirsson. Þótt Lýðmentun væri vel tekið, seldist hún eigi meira en svo að hætta varð útgáfunni eftir þrjú ár og féll Þorsteini það þungt, því að ritsafnið var ástfóstur hans. Langmestum hluta útgáfubóka Þ. M. J. má skipta í 4 flokka, íslenzk skáldrit, þjóðleg fræði, barnabækur og kennslubækur. Fyrirferðarmestur er þar flokkur íslenzkra skáldrita, Eru þar rit eftir þessa höfunda: Davíð Stefánsson, Guðmund Daní- elsson, Friðrik Á. Brekkan, Elin- borgu Lárusdóttur, Kristínu Sigfús- dóttur, Huldu, Jóhann Frí- mann, Halldór Kiljan Laxness, r Jóhannes úr Kötlum, Pál Ardal og Jónas Jónasson. Upptalningin sýnir, að þar eru sanran komnir bæði eldri höfundar og yngri, enda hefir Þor- steinn oft látið sér annt um að koma á framfæri ungum mönnum, sem hann hugði að veigur væri í. FLokkurinn um þjóðleg fræði er minni að vöxtum en engum dómbær- um manni dylst, að þar er að finna megnið af því bezta, af því tagi, sem prentað hefir verið síðan Þjóðsögur Jóns Árnasonar komu út. Eru fræði þessi eftirlæti Þorsteins og mun vand- fundinn núlifandi Islendingur fróð- ari um þjóðsagnir eða skilningsbetri á fræði þau og menningarhlutverk þeirra. Mesta safnið er Gríma alls 19 hefti, er hún eitt bezta íslenzkra þjóð- sagna safnið. Þá eru tvö bindi af Þjóðsögum Olafs Davíðssonar og er nú bráðlega von á heildarútgáfu þeirra sagna. Onnur rit eru Grá- skinna, Hornstrendingabók, Saga Möðrudals og er þó margt ótallð. Kennslubækur margar hefir Þ. M. J. gefið út, einkum handa barnaskól- um og alþýðuskólum. Mest þeirra mun vera íslendingasaga Arnórs Sig- urjónssonar. Barnabækur hefir hann einnig kostað margar og mun hann einna fyrstur manna hafa gefið út valin íslenzk æfizitýri með myndum. Þá hefir Þorsteinn gefið út tímaritið Nýjar Kvöldvökur í 16 ár og lengst- um verið ritstjóri þeirra. Hafa þær notið mikilla vinsælda. Utgáfustarfsemi Þ. M. J. verður bezt einkennd með því, að hún er traust. Hann er enginn nýjabrums- maður, sem leggur kapp á að ginna lesandann með pappírsdoðröntum skræpóttum kápum og skrumauglýs- ingum. Frágangur bóka hans er snot- ur, en yfirlætislaus. Þorsteinn M . Jónsson er bókamað- ur mikill. Á hann eitt hinna stærstu einkasafna íslenzkra bóka. Hann ann bókum sínum og hefir valið sér þar góða förunauta, en hann hefir einnig viljað gefa samborgurum sínum kost hins sama og mun það meira en margur hyggur hafa ráðið stefnu og starfi útgáfu hans. Þorsteinn M. Jónsson er fæddur á Útnyrðings- stöffum á Völlum 20. ág. 1885. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri og síðar í Kennaraskólanum og lauk kennaraprófi 1909. Síðan var hann skólastjóri í Borgarfirði eystra 1909—1921, er hann fluttist til Akureyrar og gerðist þar kennari við barnaskólann árin 1921 32. Skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar hef- ir hann verið síðan 1935. Héraðssáttasemjari á Norðurlandi síðan 1938. í stjórn síldarverk- smiðja ríkisins árin 1936—43. Þingmaður Norð- mýlinga 1916—23 og átti þá sæti í samhandslaga- nefndinni 1918. Bókaverzlun rak hann á Akur- eyri 1923—32. Auk þessa hefir hann starfað mjög að ýmsum félagsmálum og átt sæti í fjöl- mörgum nefndum. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Prentsmiðja Björns Jónssonar h. f. bókafregnir — í stuttu máli. FLESTIR, eða allir, Norðlendingar kaanast við skáldkonuna Ólöfu á Hlöðum. Tvær litlar ljóðabækur hafa komið út eftir hana, auk smá- sagna og æfintýra, sem birzt hafa í blöðum og tímaritum. Bráðlega munu ritverk hennar koma út í vandaðri útgáfu hjá Helgafellsútgáfunni. Hafa þeir Steindór Steindórsson menntaskóla- kennari, og séra Jón Auðuns, búið bókina undjr prentun. ÖLLUM er sáu kvikmyndina „Orustan um Stalingrad" er hún enn fersk í minni, en hún var sýnd hér fyrir skömmu síðan, við mikla aðsókn. Nú er komin út samnefnd bók um þenna mikla hildarleik. Fjölda margar myndir til skýringa, prýða bókina, sem er mjög vönduð að öllum frá- gangi. Útgefandi er bókaútgáfan Rún á Siglu- firði. Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR SÖGU, heitir smá- sögusafn er kemur út innan skamms. Eru sög- urnar eftir ýmsa þekkta erlenda höfunda. Brynj- ólfur Sveinsson, menntaskólakennari, hefir ann- ast þýðingu, en útgefandi er Norðri á Akureyri. EIN HINNA MERKARI BÓKA, sem skrifað- ar voru um ísland á liðnum öldum var Ferðabók Ólafs Ólaviusar, sem ferðaðist um mikinn hluta landsins á árunum 1775—77, að tilhlutun dönsku stjórnarinnar. Bókin var gefin út 1780 og skrif- aði Jón Eiríksson langan formála að henni. Nú er útgáfa hennar á íslenzku í undirbúningi og þýðir Steindór Steindórsson menntaskólakennari hana. Útgeféndur eru Haraldur Sigurðsson og Helgi Haifdánarson. VESTUR-ÍSLENDINGURINN K. N. eða Kristján Júlíus, sem ættaður var úr Eyjafirði, er sennilega mesta kímniskáld, sem uppi hefir ver- ið á íslandi. Hafa kvæði hans og ferskeytlur ver- ið á vörum flestra Islendinga, austan hafs og vestan um áratugi. Tvær Ijóðabækur hafa komið út eftir Káin, sem uppseldar eru fyrir löngu. Hefir nú verið hafizt handa um söfnun allra hans ljóða, prentaðra og óprentaðra, og munu þau, að forfallalausu, koma út í haust. Útgefandi er Bókfellsútgáfan í Rvík. FERÐASÖGUR eru einhverjar vinsælustu bækurnar, meðal flestra íslendinga. Stafar það, ef til vill af hinni sterku ferðaþrá, sem þjóð- inni er svo mjög í blóð borin. Nú er að koma út falleg og skemmtileg ferðasaga frá Suðurhafseyj- um, eftir danska lækninn Aage Krarup Niel- sen, og heitir Aloha, er mun þýða: Velkom- inn til okkar. Margar myndir frá þessum fjar- lægu undralöndum, prýða bókina. Útgefandi er Skjaldarútgáfan á Akureyri. SÍÐASTI VÍKINGURINN, heitir bók,eft- ir J. Bojer, sem komin er á markaðinn. Er þetta stór bók í vandaðri útgáfu. Allir, sem lesið hafa Innstu þrána, munu fagna þess- ari nýju hók Bojers, sem af mörgum er talin vera hans langbezta skáldsaga. Útgef- andi er Pálmi H. Jónsson, Akureyri.

x

Edda

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Edda
https://timarit.is/publication/1933

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.