Víkurfréttir - 24.04.2024, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Reykjanesbær og Tindhagur
undirrituðu síðasta föstudag
samning um fullnaðarfrá-
gang leikskólans Asparlautar í
Hlíðarhverfi. Leikskólinn, sem
verður sex deilda, mun þjóna 126
börnum frá átján mánaða aldri
og starfsmenn verða þrjátíu og
fimm.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið.
Eitt var dæmt ógilt en af hinum
þremur reyndist verktakafyrir-
tækið Tindhagar með hagstæð-
asta tilboðið. Áætluð verklok eru
15. desember nk.
Vegna rakavandamála í leikskól-
anum Garðaseli hefur verið ákveðið
að starfsemi hans með um 90 börn
flytji í Asparlaut um áramót og
nýr leikskóli verði byggður á lóð
Garðasels. Því munu 30 ný leik-
skólapláss bætast við með tilkomu
Asparlautar.
„Okkur líst mjög vel á nýja leik-
skólann Asparlaut. Við erum búnar
að liggja yfir teikningum og erum
mjög sáttar og hlökkum til að byrja
í lok árs,“ sagði Ingibjörg Guðjóns-
dóttir, leikskólastjóri Garðasels,
sem skoðaði bygginguna við undir-
ritun samnings við verktakann.
Auk þrjátíu nýrra leikskólaplássa
í Asparlaut opnar leikskólinn
Drekadalur í Dalshverfi III síðla
sumars. Bæjarstjóri greindi frá því
við undirritunina í Asparlaut að
samkomulag hefði tekist við verk-
taka vegna myglu sem kom upp í
nýrri byggingu Drekadals. Áform
eru um að opna hann í lok sumars.
Drekadalur er 1.200 fermetrar
að flatarmáli og er byggður úr
timbureiningum frá Eistlandi. Við
undirritun við verktakann fyrir um
ári síðan kom fram að byggingin
væri fyrsta Svansvottaða eininga-
húsið á Ísland.
Þá verða til 20-25 leikskólapláss
í húsnæði gamla barnaskólans
við Skólaveg 1 en mygla kom upp
í þessu fyrsta steinsteypta húsi í
Keflavík ekki alls fyrir löngu og
hefur staðið autt í nokkurn tíma.
Til stendur að taka húsið í gegn að
innan og opna þar leikskóla síðla
sumars.
Nýi leikskólinn í Asparlaut
verður tilbúinn fyrir jól
n Nýr leikskóli verður byggður í stað Garðasels. Gamli barnaskólinn verður lítill leikskóli.
Nýr leikskóli fyrir 90 börn í Dalshverfi opnar síðla sumars
Frá undirritun samnings við
Tindhaga sem munu klára
nýja leikskólann Asparlaut í
Hlíðahverfi í Reykjanesbæ.
VF/pket
Björgunarsveitin Suðurnes í
Reykjanesbæ fagnar 30 ára af-
mæli og Slysavarnadeildin Dag-
björg 20 ára afmæli með afmæl-
ishátíð í björgunarstöðinni við
Holtsgötu Njarðvík laugardaginn
27. apríl næstkomandi. Almenn-
ingi er boðið í heimsókn til björg-
unarsveitarinnar milli kl. 15 og
17 á afmælisdaginn.
Sýning á björgunartækjum
verður haldin milli kl. 15 og 17 en
frá kl. 16 verða hoppukastalar fyrir
börnin, boðið upp á kandyfloss,
börnin geta fengið að síga úr lyftu
og grillaðar verða pylsur.
Afmælishátíð á laugardag
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur óskað eftir samtali við ríkis-
stjórn um stjórnunarfyrirkomulag við þær óvenjulegu og krefjandi
aðstæður sem nú eru í Grindavík. Markmið samtals er að leita leiða
til að tryggja að vinna við verkefnið á næstu mánuðum fari fram sam-
kvæmt skýrri forgangsröð aðgerða sem byggist á skýrum, sameigin-
legum markmiðum. Jafnframt þarf að tryggja fjármögnun verkefna
til framtíðar. Ábyrgð á framkvæmd aðgerða þarf einnig að vera skýr,
segir í bókun bæjarstjórnar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar
Grindavíkur í síðustu viku.
Þá segir í bókuninni: Það lang-
varandi óvissuástand sem nátt-
úruhamfarirnar á Reykjanesskaga
hafa valdið í Grindavík felur í sér
flóknar áskoranir bæði fyrir bæj-
aryfirvöld í Grindavík og önnur
stjórnvöld sem að verkefninu hafa
komið. Grindavíkurbær hefur átt
gagnleg samtöl við hlutaðeigandi
ráðuneyti um leiðir til að skýra
ábyrgð á stjórn aðgerða á hverjum
tíma og ábyrgð á einstökum verk-
efnum. Augljóst er að lög um al-
mannavarnir eru ekki skýr grund-
völlur allra ákvarðana þegar um er
að ræða langvarandi tímabil nátt-
úruhamfara.
Samstarf hefur í flestum megin-
atriðum gengið vel og bæjarstjórn
lýsir þakklæti fyrir þann mikilvæga
stuðning sem ríkisstjórnin hefur
veitt sveitarfélaginu og íbúum
Grindavíkur. Aðgerðir við varnar-
garða, jarðkönnun og stofnlagnir
sýna þessa hugsun í verki og það
á einnig við um ákvörðun um að
Þórkatla kaupi íbúðarhúsnæði í
Grindavík. Mikilvægt er að Grind-
víkingar fái fullvissu fyrir því að
áfram verði haldið á sömu braut
með það endanlega markmið að
Grindavík byggist upp að nýju að
loknum náttúruhamförum.
Þau verkefni sem þarf að vinna
til að halda innviðum gangandi
og tryggja öryggi í Grindavíkurbæ
eru eðlisólík þeim verkefnum sem
sveitarstjórnum eru falin að lögum.
Raunar má fullyrða að ábyrgð á
verkefnum af þeirri stærðargráðu
sem hér um ræðir myndu ógna
rekstrargrundvelli allra sveitar-
félaga. Það á einnig við um Grinda-
víkurbæ þrátt fyrir að bærinn væri
skuldlaus og ætti nokkurn sjóð
fyrir upphaf náttúruhamfaranna.
Að lokum skal tekið fram að
vinna stendur yfir við að aðlaga
rekstur bæjarins að gjörbreyttum
aðstæðum, á grundvelli samkomu-
lags við innviðaráðuneytið um
fjármál og rekstur Grindavíkur-
bæjar, segir í bókun bæjarstjórnar
Grindavíkur frá síðasta fundi.
Verkefni af stærðargráðu sem myndu ógna
rekstrargrundvelli allra sveitarfélaga
Vel mætt til að vernda Hljómahöllina
Vel var mætt á samstöðufundinn Verndum Hljómahöllina sem fór
fram í Hljómahöll í síðustu viku. Á fundinum var verið að mótmæla
ákvörðun bæjaryfirvalda að færa Bókasafn Reykjanesbæjar í Hljóma-
höll og þar með skerða starfsemi Rokksafns Íslands og tónlistar-
skólans. Í kringum 300 manns mættu og var fundurinn hinn líflegasti.
Baldur Þórir Guðmundsson, einn
skipuleggjenda, fór í stuttu máli
yfir mikilvægi safnsins fyrir sjálfs-
mynd Reykjanesbæjar. Jakob Frí-
mann Magnússon, Páll Óskar
Hjálmtýsson, Bragi Valdimar
Skúlason og Ásgeir Elvar Garð-
arsson fluttu tölu til stuðnings
safninu.
Jakob hvatti til að ákvörðunin
um að loka safninu yrði endur-
skoðuð og varpaði fram þeirri
hugmynd að gera samninga við
rútufyrirtækin sem ferja erlenda
ferðamenn til og frá flugvellinum
um að stoppa við í Rokksafninu.
Páll Óskar stakk upp á því að
byggja húsnæði undir bókasafn á
lóðinni við Hljómahöll frekar en að
reyna að troða því inn í húsnæði
Hljómahallar og þar með skerða þá
menningarstarfsemi sem þar væri
til staðar.
Ásgeir Elvar lagði mikla áherslu
á að Reykjanesbær yrði að halda
sínum sérkennum og þar gegndi
Rokksafnið lykilhlutverki. „Þetta
lítur út eins og uppgjöf og með
sama áframhaldi mun Reykja-
nesbær tapa sínum sérkennum
og breytast í ódýrt úthverfi,“ sagði
Ásgeir Elvar.
Bragi Valdimar sagðist vera
reiður og leiður fyrir hönd tón-
listarmanna og tónlistarsögunnar
og sér finnist vera vegið að vöggu
rokksins með hugmyndum bæjar-
yfirvalda.
Allir sem til máls tóku sáu enda-
laus tækifæri í að byggja upp
Rokksafnið á þeim grunni sem
myndaður hefur verið og sækja
fram eins og íslenskt tónlistarfólk
hefur gert í gegnum tíðina. Ég lagði
fram undirskriftarlista á Island.is
undir heitinu Verndum Hljóma-
höll,“ sagði Baldur og bætti við
í lokin: „Ég man ekki eftir mót-
mælafundi íbúa í Reykjanesbæ í
þrjátíu ára sögu sveitarfélagsins.“
Ítarlegri frétt má sjá á vf.is
n Björgunarsveitin þrítug og slysavarnadeildin tvítug
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM