Víkurfréttir - 24.04.2024, Side 13
Vilhjálmur Arngrímsson, Kúddi, sigraði á
Víkurfréttamótinu í ballskák sem haldið
var í húsakynnum Virkjunar á Ásbrú í
síðustu viku. Vilhjálmur lagði Jón Ólaf
Jónsson í spennandi úrslitaleik 2-1.
„Ég er hræddur um að ég fái viðurnefnið
Vilhjálmur annar ef ég tapa,“ sagði sigurveg-
arinn við blaðamann áður en úrslitin hófust
en Kúddi tapaði fyrir Jóni Ólafi í úrslitum
mótsins í fyrra. Þeir mættust aftur í úrslitum
í ár og Jón Óli vann fyrsta leikinn nokkuð
örugglega en Kúddi gafst ekki upp og sýndi
hvað í honum býr með því að vinna næstu
tvo leiki en það þurfti hann að gera til að
sigra á mótinu.
„Þetta er gaman hjá okkur körlunum. Við
mætum hér reglulega og spilum billiard í
þessari skemmtilegu aðstöðu, rosknir karlar
frá sextugu og yfir. Keppum og spjöllum. Svo
er einn okkar duglegur að baka vöfflur sem
við borðum hér með rjóma og sultu,“ sagði
Kúddi.
Veitt voru verðlaun fyrir sex efstu sætin.
Jón Norðfjörð, formaður Ballskákfélags eldri
borgara á Suðurnesjum en það er nafn félags
þeirra karla, vann Georg úrsmið Hannah um
5. sætið. Vilhjálmur Ragnarsson lagði svo
Helga Hólm í leik um 3. sætið.
Karlarnir mæta flestir tvisvar í viku, sumir
oftar en að jafnaði eru þeir um tuttugu. Tæp-
lega fjörutíu eru í félaginu. Aðstaðan er mjög
góð, átta fín billiardborð og svo er hægt að
setjast niður á kaffistofunni og fá sér bolla
og spjalla.
Víkurfréttabikarinn í ballskák er bara eitt
af mörgum mótum sem haldin eru yfir árið.
Jón Norðfjörð segir að menn hafi gaman
af því að spila og hittast. Hann var nýlega
endurkjörinn formaður Ballskákfélagsins.
„Það er virkilega gaman að koma hérna og
hitta félagana. Þetta er góður félagsskapur.
Hér eru menn sem eru komnir hátt á níræð-
isaldur en bera sig vel og gefa ekkert eftir.“
Vilhjálmur varð ekki aftur annar
Hópurinn sem tók þátt í
Víkurfréttabikarnum 2024.
Vilhjálmur „Kúddi“
Arngrímsson,
Víkurfréttameistari 2024.
„Þó svo að aðstæður væru eðlilegar værum við ekki að opna Húsa-
tóftavöll á sumardaginn fyrsta, tíðarfarið býður ekki upp á það.
Vonandi getum við opnað 1. maí,“ segir Helgi Dan Steinsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur.
Við héldum aðalfund okkar nýlega
og kom aldrei neitt annað til greina
en halda það í golfskálanum okkar
á Húsatóftavelli. Mætingin var góð
og var gott hljóð í grindvískum
golfurum, það eru allir sammála
um að þetta verði frábært golf-
sumar hjá okkur.“
Í lok síðustu viku hóf verkfræði-
stofan EFLA jarðvegsskönnun á
Húsatóftavelli og fór verkið vel af
stað.
Jarðvegskönnun á vellinum
„Það eru allir sammála um að
það þurfi að framkvæma þessa
jarðvegsskönnun á Húsatófta-
velli, við myndum aldrei hleypa
öðruvísi inn á hann. Ég persónu-
lega er sannfærður um að það er
í lagi með völlinn en mér myndi
ekki líða vel með að hleypa inn á
hann fyrr en fagaðilar eru búnir
að ganga úr skugga um að allt sé
í lagi. Það er búið að fljúga með
dróna yfir völlinn og á bara eftir
að vinna úr þeim gögnum. Ég er
búinn að labba völlinn allan þvert
og endalangt og hef séð neitt at-
hugavert. Einu skemmdirnar eru
þær sem urðu 10. nóvember við
fremri teiginn á þrettándu holu,
á nýja æfingasvæðinu og svo eru
smá sprungur í bílastæðinu. Þetta
eru minniháttar skemmdir en þó
munum við þurfa að gera nýjan
fremri teig á þrettándu holu. Von-
andi verður það svæði ekki lagað,
heldur girt af svo gestir okkar geti
skoðað hvað gekk á. Skemmdirnar
á æfingasvæðinu skipta ekki svo
miklu máli því það var ekki til-
búið og ég myndi treysta mér til að
leggja bílnum þar sem skemmdin
er á bílastæðinu. Þetta verður
samt auðvitað lagað, ég er bara að
benda á að ástandið hjá okkur er
miklu betra en margir halda. Ég
hef margoft verið spurður að því
hvort Húsatóftavöllur sé ónýtur,
því fer víðsfjarri. Síðan völlurin
opnaði árið 1981 höfum við leikið
golf á milli tveggja sprunga og
þær hafa ekkert stækkað síðan 10.
nóvember. Sem dæmi hefur brúin
Bjartsýni ríkir hjá grindvískum golfurum
á milli Ameríku- og Evrasíuflekans
ekkert aflagast. Ástandið á vell-
inum okkar er bara mjög gott fyrir
utan að veðurguðirnir hafa ekki
verið okkur hliðhollir frekar en
öðrum golfvöllum. Ef allt gengur
að óskum og veðurguðirnir verði
þokkalega hagstæðir munum við
opna völlinn með pompi og prakt
1. maí í síðasta lagi,“ segir Helgi.
„Nokkrir golfklúbbar hafa boðið
Grindvíkinga velkomna. „Golf-
klúbbur Suðurnesja, Golfklúbbur
Sandgerðis og Eyjamenna bjóða
meðlimum GG að spila frítt í
sumar og aðrir klúbbar bjóða góð
kjör og fyrir það munum við alltaf
verða þakklát fyrir. Vonandi mun
samt ekki koma til þess, heldur
að meðlimir GG geti spilað sinn
Húsatóftavöll en það er gott að vita
af hinum valkostunum. Við Grind-
víkingar þekkjum ekkert annað en
horfa björtum augum til framtíð-
arinnar, við getum ekki beðið eftir
að golfsumarið hefjist,“ sagði Helgi
Dan að lokum.
Miklar framkvæmdir hafa staðið
yfir í Leiru í vetur en stærsta mót
ársins, Íslandsmót í golfi, verður á
Hólmsvelli í júlí.
Að sögn vallarstjóra GS kemur
völlurinn vel undan vetri og verður
hann opnaður á sumarflötum 30.
apríl fyrir félagsfólk GS en daginn
eftir fyrir aðra. Nýlega var borinn
áburður á flatirnar sem grænka nú
á hverjum degi í vorblíðunni.
Meðfylgjandi mynd tók Hilmar
Bragi 18. apríl og sýnir fram-
kvæmdir við 4. braut Hólmsvallar.
Þar hefur verið unnið við varnar-
garðinn ásamt jarðvegsflutningum
en brautin mun liggja alveg að
garðinum.
Framkvæmdir í Leiru
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13