Vestfirðingur - 15.12.1965, Qupperneq 9

Vestfirðingur - 15.12.1965, Qupperneq 9
VESTFIRÐIN GUR 9 Áhugamál manna eru að sjálfsögðu misjöfn í Svíþjóð sem hvarvetna annarsstaðar. Eitt fannst mér þó vera mest áberandi, en það er áhuginn á hvers konar íþróttum og sporti. Knattleikir, hlaup, sund, hjólreiðar, kappakstur, allskonar stökk og svo íshokkí eru daglegt fyrirbæri. Fyrir- ferðamikill hluti sjónvarps- dagsskrárinnar er úr íþrótta- heiminum og blöðin birta þaðan fréttir upp á fleiri síður. Ræddu menn nýjustu úrslit kappleikja af jafnmikilli alvöru og skattamálin eða gengi hlutabréfa. Ein var þó sú íþrótt, sem mér fannst vera fremur hornreka í öllu sport- farganinu, en það var skák- íþróttin, hvort það er nú vegna þess, að hún skírskotar fremur til höfuðsins en útlimanna. Verðiag er að jafnaði lík- lega öllu lægra þar en hér. Allar rafmagnsvörur, ljós- mynda- og sportvörur svo og flestur fatnaður er verulega mikið ódýrari, svo að maður minnist nú ekki á bifreiðar. Einnig húsgögn. Matvörur, að undanskildu hverskonar græn- meti og ávöxtum, sem er hræ- ódýrt, eru flestar eins dýrar ef ekki dýrari en hér. Inn- lendar landbúnaðarvörur eru að sjálfsögðu ekki greiddar niður. Dýrasta kjötið er nautia kjöt og kostar 120—130 ísl. kr. hvert kg. Aftur á móti eru egg ódýrari. Fiskinn keyptum við á jafnmargar sænskar krónur þar og á ísl. hér, það er því genginu sem munar, en það er 8,37. Tóbak og brennivín er öllu dýrara í Svíþjóð. Þótt Svíar eigi bæði kónga- fólk og einhverjar leifar af gamalli aðalsstétt með nöfnum eins og Silferskjöld og Ehrens- várd, fann ég aldrei til þess að þeir væru neitt verulega frábrugðnir okkar hugsunar- hætti. Það sem við eigum sam- eiginlegt í menningarlegu til- liti er margfalt meira en það sem skilur á milli. Fólkið er látlaust í klæða- burði og framkomu. Hinar stirfnu umgengnisvenjur, sem margir vitna í og finnst gera Svía hrokafulla, eru víðast á undanhaldi, fyrst og fremst meðal yngra fólks. Jafnvel þéringar fara ört minnkandi, þótt þær séu enn sem komið er útbreiddari en hér. Fólk er víða seintekið eins og hér, en raungott og hjálpsamt. Ein er sú dyggð, sem mér fannst meira áberandi hjá sænskum en okkur. Þeir eru áreiðanlega sparsamari. Verðbólgan er heldur ekki eins ör, svo að krónan hefur nokkurn vegin Rétt skipt lijóðsaya frá Georyía Einu sinni hittust björninn, refurinn og úlfurinn á förnum vegi og tóku tal saman um hin erfiðu kjör þeirna. Þeim kom saman um að nú væri erfitt til fanga. og þeim varð tíðrætt um hve hræðilegt það væri að vera glorsoltinn lang- tímum saman. Að lokum urðu þeir ásáttir um að gerast lags- bræður og veiðifélagar og skipta bróðurlega á milli sín öllu, sem þeim kynni að á- skotnast. Þeir föðmuðust innilega eins og bræðrum ber og sóru hátíðlega trúnaðareiða. Svof lögðu þeir af stað í veiðiferð j og skimuðu vígalega í allarj áttir. Brátt komu þeir auga á j ungt rádýr, réðust á það ogj drápu það undireins. Síðan settust þeir makindalega í grasið og fóru að skipta á milli sín bráðinni. — Það er bezt að úlfurinn skipti dýrinu •— sgði björninn. Úlfurinn gnísti tönnum af sulti og slefan rann út úr honum. —■ Jæja — siagði hann, — bjöminn fær höfuðið, því hann er herra okkar og húsbóndi, ég fæ búkinn, en refurinn fæturna, því hann er svo fljótur að hlaupa.— En úlfurinn hafði varla sleppt orðinu þegar björninn rak honum slíkt roknahögg í höfuðið, að hann hentist ýlfr- andi langar leiðir og lá þar sem dauður væri. — Jæja, háttvirti refur, nú skalt þú skipta — mælti björn^, inn og sneri sér að rebba. | Refurinn lævísi reis á fæturÍ og sagði með hunangssætri! röddu: — Höfuð dýrsins er| þitt með réttu, kæri björn, því ] þú ert húsbóndi vor og herra,! sömuleiðis er búkurinn þinn, | ------------------------_i í sama gildi á morgun og í dag, ] svo að kannske væri óhætt að ] geyma hanna eitthvað. Um Island vita flestir fátt. ] Einn okkar íslendinganna var] spurður, hvort hann hefði komið með járnbrautarlest frá Reykjavík. En það var nú langt norður í landi, sem það gerðist. Allir hafa áhuga á heitum uppsprettum og við segjum, að Islndingar séu fyrsta þjóðin, sem hafi tekið kjiarnorkuna í sína þjónustu. Aðeins eitt vekur meiri furðu: Á Islandi er símaskránni raðað eftir upphafstöfum skírnar- nafna. vegna þess að þú verndar okkur eins og faðir, ennfremur átt þú sannarlega að fá fæt- urna, því þú hefur gengið fram fyrir skjöldu okkar vegna.— — Þú ert sannarlega snjall kæri refur, — siagði björninn. — Hver hefur kennt þér að skipta svona viturlega? — Ég gat ekki annað en lært lexíu þá, er þú gafst úlfinum, — svaraði refurinn. Hraðfrystihúsið Norðurtangi hf. óskar ÖUu starfsfólki sínu og öðrum Isfirðingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. M. Bernharðsson Skipasmíðastöð hf. Skipabraut. Verzlun Jóns A. Þórólfssonar. Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla og gæfuríks nýjárs. Bifreiðaeigendur Hafið þið athugað hvar þið fáið mest og bezt fyrir okkar litlu krónu? Það eru tryggingar á bifreið yðar með beztu kjörum hjá HAGTRYGGINGU, þjónustu hjá F.I.B., sem er margra króna virði. Einnig fáið þið beztu dekkin, bæði með snjómynstri og negld frá verksmiðju, snjókeðjur og allt til þeirra. Viðgerðarþjónusta fljótt og vel af hendi leyst. BJÖRN GUÐMUNDSSON Brunngötu 14, Isafirði PFAFF-sírauvélin, er óslíadraumur húsmððurinnar Þökkum viðskiptin á líðandi Óskum starfsfólki voru á sjó og landi og öðrum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu með þakklæti fyrir líðandi ár. \ladni lif. Isafirði i í i i i i i i PFAFF-strauvéliarnar eru opnar í báða enda. Með þeim má strauja allt sem hægt er að þvo. Árs ábyrgð, viðgerð og varahlutaþjónusta. PFAFF-saumavélin er heimsþekkt fyrir gæði og endingu PFAFF-saumavélin saumar 80 grunn-mynzturgerðir - húlsaum - blindfaldar PFAFF- saumavélin hefur sjálfvirka nálaþræðingu PFAFF-töskusaumavélar 5 tegundir verð frá kr. 5.550 til 9.950 PFAFF-skápsaumavélin í mörgum gerðum verð frá kr. 7.000 PFAFF-saumavélin í iðnaðarborði PASSAP- prjónavélin tveggja borða með og án raf- mótors. Birgðir á staðnum. Kennsla innifalin í verði. Afborgunarskilmálar. Aðalumboð á Islandi Umboðsm. á Vestfjörðum Verzlunin P F A F F Bery]ióra Eyyertsd. Reykjavík. ísafirði - Sími 250.

x

Vestfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.