Vestfirðingur - 23.03.1983, Blaðsíða 4
4 VESTFIRÐINGUR
Blótað í Djúpi
Samgöngur hafa verið sérlega
erfiðar í Djúpi nú lengi vetrar.
María Guðröðardóttir, húsfreyja í
ögri, tjáði Vestfirðingi.að víða
hafi þurft að flytja mjólk og
aðrar vörur á jullu til móts við
Djúpbátinn, þar sem bændur hafi
ekki komist að bryggjunum vegna
snjóþynglsa. Sagði Maria, að
dæmi væru þess, að fólk hefði
lent í hrakningum og fengið
lungnabólgu út úr öllu saman við
að koma mjólkinni.
Djúpmenn hafa þó ekki látið
deigan síga í erfiðum samgöng-
um og blótuðu þorra í Djúpmann-
abúð. Kvenfélag Reykjarfjarðar-
hrepps stóð fyrir blótinu, en Sig-
urjón bóndi Samúelsson á Hrafr.a-
björgum var plötusnúður og sá
um spilverkið. Að sögn Maríu var
maturinn heimatilbúinn eins og
sæmir íslensku búandfólki.
Að lokum tjáði María okkur, að
rafmagn hefði staðið sig vel I vet-
ur, en símalaust hefði verið annað
slagið, en þó ekki lengi í einu.
Séð heim að kirkjunni og
gamla ibúðarhúsinu I ögri.
Frá
Sögufélagi
ísfirðinga
Á vegum Sögufélags ísfirðinga og
ísafjarðarkaupstaðar er unnið að ritun
sögu ísafjarðar og Eyrahrepps hins
forna. Það eru eindregin tilmæli Sögu-
félagsins til allra þeirra, er kunna að
hafa undir höndum gögn, sem snerta
sögu byggðarlagsins, skjöl, bréf, dag-
bækur, myndir o.fl. og vildu ljá afnot af
þeim, að þeir hefðu samband við Jón
Pál Halldórsson í síma (94)3222 á ísa-
firði eða Jón Þ. Þór í síma (91) 86945 í
Reykjavík.
Öruggri geymslu og fullum skilum
heitið.
Nýkomið úrval
gólfdúka
2 breiddir: 2m og 2,75m
Hafnarstræti 1
Barnaskólinn
i Hnífsdal 100 ára
Á þessu ári eru liðin 100 ár
frá því að skólahald hófst í Hnífs-
dal. Það var laugardaginn 14. maí
1881, að hreppstjóri Eyrarhrepps
boðaði til opinbers sveitarfundar
að Hrauni í Hnífsdal. Fundinn
sóttu 18 manns og var þar sam-
þykkt einum rómi, að fyrirlagi og
eftir uppástungu hreppstjóra, að
stofna „lítilfjörlegan barnaskóla^
eins og það er orðað í fundar-
gerðinni, þar eð lög og aðrar
kröfur tímans heimti uppfræð-
ingu barna meir en áður.
Kom mönnum saman um, að
hentugast yrði að staðsetja skól-
ann í Hnífsdal, en þrír byggða-
kjarnar mynduðu Eyrarhrepp,
Hnífsdalur, Skutulsfjörður og
Arnardalur. Var síðan samþykkt
að skólahús skyldi byggt í Hnífs-
dal og lagði Kristjana Kjartans-
dóttir í Hrauni til leigufría lóð,
þar sem fyrsta skólahúsið var
reist. Þar er nú Strandgata 9 í
Hnífsdal. Það var svo í nóvem-
ber 1882, að hinn nýi skóli tók
til starfa og voru nemendur 17
fyrsta veturinn. Fyrsti skólastjór-
inn var Sæmundur Eyjólfsson,
búfræðingur frá Ólafsdal. Þetta
er upphafið að skólahaldi í Hnífs-
dal.
Annað skólahús var reist í
Hnífsdal 1909 og hefur það komist
í annála, þar eð hús þetta fauk af
grunni í ofsaveðri árið 1953.
Gerðist þetta I kennslustund, en
svo blessunarlega tókst til að allir
sluppu að mestu ómeiddir. Nú-
verandi skólahús var vígt 1955 og
gegnir einnig hlutverki guðshúss
sem kunnugt er.
Margir góðir menn og konur
hafa kennt við skólann og þeirra
á meðal Kristján Jónsson frá Eyri
í Seyðisfirði, en starfaði 'ið skól-
ann í tæp sextíu ár, eða frá
1919 til 1978, þar af fimmtíu ár
sem skólastjóri.
í skólanum eru nú 48 nemendur,
fastir kennarar eru þrír auk skóla-
stjóra, sem er Björg Baldurs-
dóttir.
í tilefni afmælisins er haldið hóf I
Félagsheimilinu I Hnífsdal.
Frá Bamaskólanum I Hnlfsdal.
m
NU styttist óðum í sumaríð og það
er ekki ráð nenia ítíma sé tekið
Eigum til á lager hih viðurkenndu
DBS og Raleigh reiðhjól
Athugið að reiðhjól er
alltaf kœrkominnfermingargjöf
BÍLASALA
Loksins er hægt að kaupa nýja og notaða
bíla á sama stað
Þið sem viljið selja bíl,
látið okkur skrá bílinn og sjá um söluna
VERIÐ
VELKOMIM
Vélsmiðjan Þór hf.
BIFREIÐADEILD
Sími 94-3711
Skákþáttur
UMSJÓN SMÁRI HARALDSSON
5. SKÁKÞÁTTUR
Taflfélag ísafjarðar fékk nýlega til
umráða húsnæði að Hafnarstræti
1. Skapar þetta félaginu
alveg nýja möguleika, sem
félagsmenn vænta sín mikils af.
I þessu húsnæði fer nú fram öll
starfsemi félagsins. Fullorðnir
tefla á fimmtudögum kl.
20.30 og barna- og unglinga-
æfingar eru á sunnudögum
kl. 16.00. Eru allir
sem áhuga hafa á skák hvattir til
að láta sjá sig. Þessa dag-
ana stendur yfir Meistaramót
Taflfélags ísafjarðar 1983. Teflt
er í tveimur flokkum, meistara-
flokki og opnum flokki. Á meðan
á mótinu stendur falla niður aðrar
skákæfingar fullorðinna. í meist-
araflokki eru 8 þátttakendur
og tefla þeir allir við alla,
einfalda umferð. Eftir 4 umferðir
er Ásgeir överby efstur með
3 vinninga og eina skák frestaða. í
opnum flokki eru 5 þátttakendur
og tefla þeir allir við alla, tvöfalda
umferð.Þegar ein umferð er eftir
er Gunnar Tryggvason efstur með
7 vinninga og I 2. til 3.
sæti eru Kolbeinn Guðjónsson og
Jón Helgi Gíslason með 6 vinn-
inga.
Helgina 19. og 20. mars fer
sýslumót Norður-ísafjarðarsýslu
fram á Isafirði. Tefla þar tveir
efstu menn úr hverjum skóla um
rétt til þátttöku I kjördæmamóti.
Skák dagsins er úr Meistara-
móti T.í. 1983. í skákinni, sem er
fjörug og spennandi má oft sjá
vel leikið, þótt ekki sé hún
gallalaus, frekar en önnur mann-
anna verk.
Hvítt Guðmundur B. Gunnarsson
Svart Guðmundur Gíslason
Meistaramót ísafjarðar 1983
4. umferð
Siklleyjarvöm
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6
3. d3 g6 4. g2 Bg7
5. Bg2 Rf6 6. f4 d6 7. h3 o-o
8. Be3 Bd7 9. a3 b5
10. Hbl Rh5 11. Rce2 a5
12. Rf3 e6 13. Kf2? (o-o) f5 14. e5
DXE5 15 Rxe5 Bxe5 16. fxe5
Rxe5! 17. Bxc5? (sennilega hefði
hér verið betra að taka hrókinn og
leika 17. Bxa8 þótt svartur
hafi mikla sókn t.d. eftir 17.
- f4 18. Rxf4 Dxa8) 17. - f4l
18. Be4 Rxg3 19. Rxg3 Dh4
20. Bxa8 fxg3+ 21. Ke2 Hxa8
22. Bd6 Bc6 23. Bxe5 Dh5 +
24. Kd2 Dg5+ 25. Kc3 Hc8
26. Kb3 Bd5+ 27. c4 bxc4+
28. Ka2 c3+ 29. Kal c2,
hvítur gafst upp.
Höfum stækkað og endurbætt
verslunina
A vallt fyrírliggjanái
Fjölbreytt úrval málningarvara, einnig
viðgerðarefni fyrir bíla, báta o.fl.
Hreinsiefni, bón, lím margar tegundir
og ýmsar handhægar smávörur
G. E. SÆMUNDSSON
SÍMI 3047
MÁLNIN G AR V Ö RU VERSLUN