Fréttabréf - 01.12.1975, Page 4

Fréttabréf - 01.12.1975, Page 4
TELPflN fl BflKSlÐU OKKflR - brosir, þótt hún sé á sjúkrahúsi. Hún brosir vegna þess að brátt verður hún frísk á ný og útskrifast frá sjúkrahúsinu. Þangaö var hún flutt sem svo margir aörir flóttamenn, sem búa viö skort o§ öryggisleysi. Því miður hafa ekki allir flóttamenn att þess kost aö hljóta slíka hjúkrun - og lifa. Þessi glaðlega kveðja kemur til okkar frá Augusta Victoria sjúkrahúsinu í Jerúsalem, sem aðeins annast flóttamenn frá Palestínu. Sjúkrahúsið er rekið af Lúterska heimssambandinu, sem Hjálparstofnun kirkjunnar á íslandi er aðili að, með stuðningi S.Þ. Kveðju þessarar glöðu telpu látum viö tjá þakkir öllum þeim fórnfúsu gefendum Hjálparstofnunarinnar, sem trú- fastlega leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs kirkjunnar meðal fjölda nauðstaddra í mörgum löndum.

x

Fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1940

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.