Fréttabréf - 01.12.1975, Blaðsíða 4
TELPflN fl BflKSlÐU OKKflR
- brosir, þótt hún sé á sjúkrahúsi. Hún brosir vegna
þess að brátt verður hún frísk á ný og útskrifast
frá sjúkrahúsinu. Þangaö var hún flutt sem svo margir
aörir flóttamenn, sem búa viö skort o§ öryggisleysi.
Því miður hafa ekki allir flóttamenn att þess kost aö
hljóta slíka hjúkrun - og lifa.
Þessi glaðlega kveðja kemur til okkar frá Augusta
Victoria sjúkrahúsinu í Jerúsalem, sem aðeins annast
flóttamenn frá Palestínu.
Sjúkrahúsið er rekið af Lúterska heimssambandinu, sem
Hjálparstofnun kirkjunnar á íslandi er aðili að, með
stuðningi S.Þ.
Kveðju þessarar glöðu telpu látum viö tjá þakkir öllum
þeim fórnfúsu gefendum Hjálparstofnunarinnar, sem trú-
fastlega leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs
kirkjunnar meðal fjölda nauðstaddra í mörgum löndum.