Margt smátt - 01.10.2006, Blaðsíða 2
m
matL
gerir eiftt sftort
1. tbl. okt. 17. árg. 2006
IJtgcíándi:
Hjálparstarf kirkjunnar,
Vatnsstíg 3,
101 Reykjavík
•
Stjórn:
Þorsteinn Pálsson
Sigríður Lister
Gunnar Sigurðsson
Sr. Elínborg Sturludóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir
•
Franikvænidastjóri:
Jónas Þ. Þórisson
•
llitstjóri:
Anna M. Þ. Ólafsdóttir (ábm.)
Höfundarmerktar greinar
eru á ábyrgð höfunda.
•
Fréttablaðið Margt smátt sem kemur
út fjórum sinnum á ári er sent
endurgjaldslaust til styrktarmanna,
presta, sóknarnefnda, skóla,
fjölmiðla bókasafna og fleiri.
•
Forsióiiniynd:
Stephen frá Uganda sækir vatn.
Anna M. Þ. Ólafsdóttir
•
Framlögum til verkefna
Hjálparstarfs kirkjunnar
má korna til skila í bönkum
og sparisjóðum, til skrifstofunnar eða
í gegnurn www.help.is
Skrifstofan er opin daglega
milli kl. 8 og 16.
Síminn er 562-4400
og bréfasími 562-4495.
help@help.is
•
Prentvinnsla:
Isafoldarprentsmiðja hf.
Skuldbinding
y
Isamfélagi manna er enginn eyland.
Allir eru með einum eða öðrum hætti
bundnir öðrum. I daglegu lífi skynja
flestir fjölskyldubönd, átthagabönd eða
þau bönd sem halda heifli þjóð. Það lifir
einfaldlega enginn án einhvers konar
skuldbindinga við umhverfi sitt.
Hjálparstarf kirkjunnar er í raun
og veru farvegur til þess að flytja
slíka skuldbindingu frá hugsun til
veruleika. Ymsir hafa haft af því
nokkra áhyggju að umbreytingar
síðustu ára hafi í allt of ríkurn mæli leyst bönd þeirra skuldbindinga
sem eru forsenda sérhvers siðaðs félagsskapar manna.
Margvísleg upplausn í þjóðfélagi okkar, rétt eins og ýmsum
öðrum, er vissulega til marks um að þetta kunni að vera rétt mat. En
dæmin um það gagnstæða eru líka skýr og afgerandi. Ærin ástæða
er til að halda þeim merkjum uppi.
Starfsemi Hjálparstarfs kirkjunnar hefur vaxið mjög að umfangi
síðustu ár og innviðir hennar styrkst. Þar kemur margt til. Orugg
stjórn og traustir starfsmenn. En umfram allt vilji fólks til þess að
sýna í verki þær skuldbindingar sem á okkur hvíla hverju og einu
og öllum saman gagnvart þeim brýnu verkefnum sem fengist er við
á þessurn vettvangi.
Starf af þessu tagi er ákall um það að láta þann þráð ekki slitna
sem tengir saman veruleika sumra þeirra sem verst eru settir í okkar
eigin samfélagi og ýmsum samfélögum íjarlægra landa og hinna
sem finna til skuldbindinga sinna og vita að þeir eru ekki eyland í
óræðum heimi. Vöxtur hjálparstarfsins ber vott um gott gildismat.
Þetta starf er þrotlaust. Sjálfur er ég þakklátur fyrir það tækifæri
að fá að leggja lítilsháttar lið því verki sem er fyrir höndum. Full-
trúaráðið hefur sett skýr markmið og á okkar herðum hvílir að
íylgja þeim eftir. En árangurinn er þó á endanum kominn undir
vaxandi almennri næmni gagnvart þeirri skuldbindingu sem fylgir
þátttöku hvers og eins í samfélagi manna.
Þor'steinn Pálsson stjórnarfonnabur.