Margt smátt - 01.10.2006, Síða 4
Sanngjörn viðskipti - FAIR TRADE
~| rjálparstarfkirkjunnarætlar
I---1 að leggja sitt á vogarskál-
_l___l_arnar til þess að kynna hug-
takið Fairtrade og hvað stendur á
bak við það. Umfjöllun um það hefur
ekki verið mikil á Islandi og Fairtrade-
merktar-vörur hafa verið illfáanlegar.
Hvort tveggja er hins vegar vel þekkt
erlendis og vörumar fást ekki aðeins
í sérverslunum heldur einnig í stór-
mörkuðum. Nú er að verða breyting á
þessu á Islandi. Hjálparstarf kirkjunn-
ar og Kaupás sem rekur meðal annars
Nóatún, Krónuna og 11-11, ætla að
kynna málið hér á landi og tryggja að
Fairtrade-vörur verði í boði. Kaupás
hefur styrkt útgáfu kynningarbæklings
og hyggst flytja inn um 40 tegundir
af Fairtrade-vörum s.s. kaffi, te, hrís-
grjón, hveiti, sykur, ávexti og annað
góðgæti!
Hvað er Fairtrade?
Fairtrade-vörumerking er staðfest-
ing á því að í viðskiptum með vör-
una hafi sanngirni verið gætt gagnvart
framleiðanda. Hagstæðari samningar
en almennt gerist eru gerðir til langs
tíma. Það gefur framleiðanda svigrúm
til að kosta til umbóta í ræktun og
umhverfisvernd og það tryggir örugg-
ari afkomu fjölskyldunnar. Fairtrade-
merkið vottar viðskipti, með mannúð
og hagnað allra að leiðarljósi. Þegar
þú kaupir Fairtrade-merktar vörur
ertu með í alþjóðlegri baráttu fyrir
sanngjörnum launum til bænda og
framleiðenda fyrir vöru þeirra, þú ert
með í að draga úr barnaþrælkun, þú
styður við lífræna ræktun, styrkir rétt
fátæks fólks til félagafrelsis og ýtir
undir lýðræði.
Sanngjörn viöskipti eru ekki
góðgerðarstarfsemi!
Fairtrade virkar þannig að smá-
bændur og smáframleiðendur í fátæk-
um löndum stofna með sér samvinnu-
félag. Verðið íýrir vöru þeirra er fyr-
irfram ákveðið og allt að 60% af
áætlaðri uppskeru er greitt fyrirfram.
Þannig geta bændur kostað því til sem
þarf til þess að uppskeran verði góð,
bestu aðferðum sé beitt svo hvorki
starfsmenn né umhverfi bíði skaða af.
Fairtrade-samningur gefur smábænd-
um og smáframleiðendum beinan
aðgang að vestrænum mörkuðum og
útilokar milliliði sem hafa af þeim
hagnaðinn.
Ávinningur fyrir allt
samfélagið
Fairtrade-samningar fela einnig í
sér að hluti kaupverðs fer í sarneig-
inlegan sjóð til umbóta fyrir sam-
félagið. Sykurframleiðendur í Malaví
hafa notað sjóðinn til þess að grafa
vatnsbrunna svo að konur og börn
þurfi ekki að sækja vatn langar leiðir.
Kaffibændasamtök í Kolumbíu hafa
stofnað heilsugæslu og opnað lyfja-
búð. I fjöllum Guatemala hafa indíán-
ar í samvinnufélaginu La Voz í fyrsta
sinn í sögunni getað sent böm sín í
menntaskóla. Dæmin um hvað hefur
verið gert eru eins mörg og framleið-
endurnir.
Fyrirtæki með mörg stærstu
efnahagskerfi heims
Við búum i heimi þar sem risafyr-
irtæki nýta stöðu sína til að kaupa sem
ódýrast frá framleiðendum - fram-
leiðendum sem eiga oft engan annan
kost en að selja á því verði sem fyr-
irtækin bjóða. Það verð getur jafnvel
verið undir framleiðslukostnaði. Slíkt
er fjarri því að vera einsdæmi. Af 40
stærstu efnahagskerfum heimsins eru
26 þeirra fyrirtæki. 500 stærstu fyr-
irtæki heims stjórna 70% af öllum
viðskiptum sem fram fara. I slíkri sam-
keppni má sin lítils kaffibóndi í Kól-
umbíu, Kenýa eða Indónesíu sem með
uppskerunni sér fyrir íjölskyldu sinni.
Aðgangur hans að markaðnum verður
aðeins óbeinn. Eins og aðrir bændur
í þróunarlöndum er hann með fátæk-
asta fólki í heimi, lifibrauðið stopul
uppskera háð síbreytilegu heimsmark-
aðsverði. Ef uppskeran bregst eða
markaðsverð lækkar þarf að lifa á
sparifé og um leið að koma af stað
næstu uppskeru. En fátækir bænd-
ur hafa ekkert sparifé. Ef illa árar, í
veðri eða á mörkuðum, hrynur tilver-
an. Hundruð milljóna karla og kvenna
í þróunarlöndum rækta kaffibaunir,
ávexti, kakóbaunir og sykur, og fram-
leiða húsbúnað, föt og leikföng sem