Margt smátt - 01.10.2006, Page 5

Margt smátt - 01.10.2006, Page 5
Ljósm.: www.fairtrade.org.uk síðan eru seld á lágu verði í vestræn- um ríkjum. Því miður eru kjör þessa fólks oft slæm, vinnutíminn langur, laun lág, barnaþrælkun algeng, starfs- umhverfi hættulegt og hvorki starfs- öryggi né launatrygging. I'ií borgar fyrir þad sem þú færd Fyrir Fairtrade-vöru borgar þú það sem það kostar að framleiða og senda vöruna í þína verslun. Hvorki meira né minna. Og þú ert ekki þátttakandi í því, líklega óafvitandi, að notfæra þér fátækt og vanmátt framleiðand- ans gagnvart stórum kaupendum og milliliðum. Fairtrade-samtök sækja í sig veöriö Fairtrade-samtök starfa nú í 21 landi Evrópu, Norður-Ameríku og Japan og meira en 800.000 fram- leiðendur selja vörur með Fairtrade- stimpli. Öll samtökin tilheyra Fairtrade Labelling Organization eða FLO sem er alþjóðaeftirlitsskrifstofa. Af Fair- trade-merktum vörum má nefna kaffi, te, súkkulaði, banana, hrísgrjón, hun- ang, sykur, ávaxtasafa, vín, blóm og nú líka fótbolta. Þar að auki er til aragrúi af vörum sem eru framleiddar og seld- ar með Fairtrade-aðferðum en hafa ekki ennþá fengið Fairtrade-vottun. Listmunir geta ekki fengið Fairtrade- stimpil, það er ekki hægt að ákveða lágmarksverð á shkum vörum. Hins vegar eru mjög margir handverks- og listmunir framleiddir samkvæmt Fair- trade-stöðlum og seldir sem Fairtrade- vara, en þá án merkis. Hraðvaxandi markaður Nýleg könnum sem Fairtrade-sam- tök í Evrópu stóðu fyrir sýnir að Fairtrade-markaðurinn hefur vaxið árlega um 20% síðan 2000. Fairtrade- markaðurinn er því einn hraðast vax- andi markaður heims með árlega sölu í Evrópu sem er nær 700 milljónum evra. I Englandi fjölgaði Fairtrade- merktum vörum úr 150 til 1200 á árunurn 2003 til 2005 og 20% af öllu kaffi sem þar selst er Fairtrade-merkt. í Sviss er 47% af banönum, 28% af liveiti og 9% af sykri sem selt er Fairtradc-merkt. 1 Hollandi þekkja og kaupa 90% manna Fairtrade-merktar vörur. Meira en 55.000 verslanir í Evr- ópu selja Fairtrade-merktar vörur. Hvernig styrkir þú Fairtrade? Auk þess að kaupa Fairtrade-merkt- ar vörur getur þú talað við verslunar- stjórann í þinni búð og beðið um að þar séu Fairtrade-merktar vörur til sölu. Þú getur farið fram á að þinn vinnustaður, sveitarfélag, kirkja eða félagasamtök bjóði upp á Fairtrade- kaffi og te, - líka mötuneytið þitt. Fairtrade stendur og fellur með neyt- endum. Ef við ekki kaupum Fairtrade- vörur er öll vinna með bændum og fjölskyldum þeirra unnin til einskis. w Eigum fyrir nauðsynjum Terencio Almendares er stjórnarmaður í Comisaju] sem eru Fairtrade-kaffi- bændasamtök i Ffondúras. Hann segir glaðlega frá hvernig samvinna kafflbændanna um að tengjast Fairtrade-samtökunum hafi breytt lífi þeirra allra. „Að vera öruggur um að fá 2,6$ fyrir hvert kíló af kaffibaunum, hvað sem markaðs- verðið er, gefur okkur stöðugleika og við getum treyst á að hafa fyrir nauðsynjum.“ Aður áttu bændur ekki aðra kosti en selja baunir sínar „los cayotes” eða úlfunum. Þeir voru milliliðir sem ferðuðust um sveitir til að kaupa af bændum sem ekki komust á markað vegna vondra vega og af því þeir áttu engin farartæki. Nú geta bændur sleppt öllum milliliðum og fengið meira fyrir framleiðslu sína. „Að fá borgað fyrirfram hefur lika mikið að segja. A meðan á ræktun stendur og á uppskeru- tímanum fellur til töluverður kost- naður. Allt kostar pening og án hans er ekki hægt að framleiða eins góða vöru.“ Fyrirmynd að samtökum sínum fékk Comisajul hjá nágrönnum sínum. Þeir juku tekjur sínar um 16 milljónir íslenskra króna á nokkr- um árum eftir að hafa fengið Fair Trade- merkingu. Peningana hafa félagar þeirra samtaka, einir 167 bændur, notað til að kaupa nýjan þurrkofn og nýja flokkunarvél. Terencio Almendares brosir breitt, vongóður fyrir hönd sinna samtaka og segir framtíðina sjaldan hafa verið bjartari en í dag.

x

Margt smátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Margt smátt
https://timarit.is/publication/1939

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.