Ólafsfirðingur - 01.05.1962, Blaðsíða 6

Ólafsfirðingur - 01.05.1962, Blaðsíða 6
6 ÓLAFSFIRÐINGUR i Ör reikningum bæjarins Félagsheimilið Félagsheimilið Tjarnarborg K| á vígsludegi. Út eru komnir reikningar bæj- arsjóðs Ólafsfjarðar fyrir árið 1961. Það er með fyrra móti í ár, en útkoma reikninganna svo snemma árs lóttir mjög störf við áætlanir, auk þess sem gagnlegt er að vita sem fyrst glögglega um afkomu ársins. Niðurstöðutölur rekstrarreikn- ings námu kr. 2.918.286,38. Hæstu liðir gjaldamegin eru tryggingar (framlög til almannatrygginga, sjúkrasamlags, atvinnuiieysistr. og fleira) kr. 441.113,20. Greiðslur til Tjarnarborgar hafa numið á ár- inu kr. 852.322,74. Töluverður 'hluti þeirrar upphæðar kemur á reikning ársins 1961 í stað 1960 vegna breyttrar venju við reikn- ingslokun (íokað fyrr). Varið hef- ur verið til Tjarnarborgar úr bæj- arsjóði í heiild frá árinu 1955 skv. reikn. kr. 1.959.659,72, og er það um 4—500 þúsundum hærra en áætlað var á fjárhagsáætlun- um bæjarins fyrir sömu ár. Þessa peninga (4—500 þús.) hefur bæj- arsjóður fengið að láni og endur- lánað Tjarnarborg til þess að greiða fyrir byggingu hússins. — Framlag bæjarsjóðs til mennta- mála nam kr. 223.427,68, vega- Framboðslisti Sjálfstœðismanna í Ölafs- firði við bœjarstjórnar- kosningarnar 27. maí n.k.: Ásgrímur 'Hartmannsson, bæjarstj. Jaikob Ágústsson, rafveitustjóri. Þorsiteinn Jónsson, vélsmiður. Sigvaldi Þorieifsson, útgerðarm. Magnús Gamaií'elisson, útgerðarm. Jónmundur Stefánsson, verkam. Lárus Jónsson, bæjargjaldberi. Guðmundur Þór Benediktsson, bólkari. Sigurður Baldvinsson, útgerðarm. Jón Ásgeirsson, vélstjóri. Sigurfinnur Ólafsson, skipstjóri. Finnur Björnsson, bóndi. Halldór Guðmundsson, sjómaður. Jón Þorvaldsson, ve'rzlunarm. Blaðið vill taka fram, að það bauð Alþýðuflokknum eða for- ráðamönnum hans að birta hér 'lista þeirra, þar sem það vildi mála kr. 149.854,78, svo að eitt- hvað sé nefnt. Til hafnargerðar var greitt héð- an á árinu 1961 kr. 1.053.308,19, þar af beint úr bæjarsjóði kr. 165.221,10, og þá á bæjarsjóður inni í beild hjá ha'fnargerðinni kr. 1.409.887,58. Reikstarafgangur nam kr. 316.- 640,26 og má því segja að bæjar- sjóður hafi aukið eign sína um 1.2 millj. króna, þegar framlag til Tja'rnarborgar er talið með, en þessi eignaaukning er um 50% af útsvörum ársins 1961. Heilm- ingur þeirra hefur því farið í beina eignaaukningu, og er tii í eign- um bæjarfélagsins, en hinn helm- ingurinn farið til greiðslu trygg- inga menntamála, vegamála o. fl. eins og áður er nefnit. Álögð útsvör voru 1961 kr. 2.137.450,00, en lækkuðu við kær- ur um 29.150,00. Eignir bæjar- sjóðs nema kr. 5.898.617,24, skuld- ir hans nema aðeins kr. 2.357,- 205,61, og er inneign hitaveitu þar meðtain. Hrein eign bæjar- sjóðs er því kr. 3.541.411,63. Hitaveitan hefur kr. 113.385,75 í rekstrarafgang á árinu. Hún á inni hjá bæjarsjóði kr. 600.018,12, eða næstum sömu upphæð og Framboðslisti vinstri manna í Ólafsfirði við bœjarstjórnarkosning- arnar 27. maí n.k.: Óilafur Óiafsison, fcaupfélagsstj. Bragi Haldórss'on, verkstjóri. Stefán B. Ólafsson, múrari. Ármann Þórðarson, gjaldkeri. Sveinn Jóhannesson, verzlunarm. Nývarð Ó. Jónsson, bóndi. Halldór Kriistinsson, útgerða'rm. Gunnlaugur Magnússon, húsa- smíðameisltari. Líney Jóna'Sdóttir, ihúsfreyja. Gunnar Eiriíksison, bóndi. Ásgrímur Gunnarsson, verkam. Ingvi Guðm'undsson, verkam. Magnús Magnússon, verkstjóri. Björn Sfefánssioin, skóllastjóri. birta hér ala Hsta við komandi bæjarstjórnarkosningar, en hann reyndist ekki tiibúinn til birtingar, þegar blaðið fór í prentun. vatms- og skólpveita skuldar bæjar- sjóði vegna greið'S'luhaila undan- farandi ára. Hrein eign hitaveit- unnar er í árslok kr. 1.257.517,02, og er þó hitaveitan sjálf aðeins metin á kr. 225.000,00. Hrein eign bæjarsjóðs og fyrir- tækja er í árslok 1961 kr. 6.499.- 886,65 að undanskilinni höfninni, og hefur aukizt í hei'ld urn ca. 1,3 til 1,4 miiij. kr. á árinu 1961. Má með sanni segja, að hagur bæjarsjóðs sé með blóma, skuldir hans li'tlar og sluildir hitaveitu engar, en eignaaukning töiuverð, eins og reikningar sýna. F járhagsáætlun. Rei'kningar bæjarins 1961 og fjárhagsáætlun 1962 var hvort tveggja samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi, föstudaginn 13. aprí'l siðastl. Einn fultrúi, Kristinn Sigurðsson, var fjarver- andi. Tók aðeins rúman klukku- tíma að afgreiða tvenna reikn- inga (reikningar 1960 voru óaf- greiddir) og fjárhagsáætlun, svo að ekki er hægt að segja að sleg- izt isé í bæjarstjó'rninni. Fjárhagsáætlun fyrir árið 1962 er lítt frábrugðin áætlun 1961. Þó hækka nokkrir liðir og nýir tieknir inn. Framlög tiil alþýðu- trygginga (aílmannatryggingar, sjúkrasamlag, atvinnuleysistrygg- ingar o. fl.) hækka úr kr. 333,- 000,00 í kr. 552.500,00. Þessi lið- ur er ákveðinn að lögum og get- ur bæjarstjórn ekki haft nein áhrif á hann. Áætlunin hækkar um tæp 300.000,00, og er það rúm 14% hæfckun. Tæpur helm- ingur þessarar hækkunar er vegna áðurnefndra trygginga. Nýr liður er tekinn inn á áætl- un 1961, en það er framilag til undirbúnings sjúkraskýlisbygg- ingu kr. 50.000,00. Framlag tiil hafnar'gerðar ihækkar og er kr. 300.00,00 og er m .a. gert ráð fyrir að tryggja með því afborg- anir af erlendu láni, sem kann að fáslt. Til viðhialds kirtkju eru veittar kr. 25.000,00 og er það nýr liður. Til nýbyggingar úti- ljósa eru áfram veittar fcr. 40.- 000,00, en myndarlega hefur ver- ið farið af stað með varanleg útilj'ósafcer. — Framlag til nýs íþróttaval'lar er fcr. 50.000,00. — Aðrir liðir eru að mestu óbreytt- ir. Menntamál kr. 240.000,00. Hæfckað er framlag tiil vegagerð- ar með tilliti til opnunar nýrrar götu. — Fra'mkvæmdiasjóður er Framh. á bls. 2. TJARNARBORG Lofcs er því langþráða tak- marki náð að við Ó'lafsfirðingar höfum eignast samkomuhús, sem þolir samanburð við hið bezta annars Staðar á 'landinu. Má nærri geta að allar aðstæður til félags- starfsemi hafa stórbatnað við til- komu hins nýja húss, og er það hið mesta gleðiefni. Hvernig hefur húsið reynzt? Sú félagsstarfsemi, sem einna helzt hefur komizt á nokkurn rek- spöl í húsinu, mun vera leikstarf- semin. Blaðið hefur aflað sér upplýsingar hjá forráðamönnum hússins, hvernig það muni hafa reynzt til þessarar starfsemi. — Leiksviðið sjálft og aðbúnaður leikenda í búningsklefum mun vera með ágætum, en töluvert ber á þrengslum fyrir leiktjöld, og því sem þeim tiilheyrir, og er það þekfet vandamál í flestum íslenzkum leikhúsum, m. a. Þjóð- leifchúsinu. Komið hefur einnig í ijós, að þrengsli eru einnig á fleiri sviðum í suðurenda hússins. Borðstofa er engin, og þurfa leik- endur t. u. að standa við fcaffi- drykkju í leikhléum. Einnig mun geymslurými af skornum skammi. Norðurendi hússins er hins veg- ar mjög skemmtilegur og rúm- góður, enda hinn notalegasti fyrir samkomugesti hússins. Forsalur- inn smekklegur og þægilegur, og yfirleitt húsið aillt eftir því, sem filestum mun kunnugt. Mikill munur að fara í bíó. Nýlega 'hefur verið komið fyrir í húsinu nýjum og fullkomnum tækjurn til k'vifcmyndasýninga, og eru menn á einu máli um að mik- ill sé imunur á að horfa á kvik- myndasýningu þa-r, enda tæki til að sýna cinemascope-myndir og tal og -tónar ákaflega skýrt. Umgengni samkomugesta. Umgengni í Tjarnarboirg hefur í heild verið fremur góð. En ef- laust má að mörgu finna. Ölvun hefur t. d. verið þar töluverð, en mjög misjiafntlega mifcil eins og alltaf er. Stjórn Tjarnarborgar og forráðamenn hússins hafa reynt frá upphafi að halda uppi eins góðum umgengnisháttuim og unnt hefur verið, og m. a. beitt í því refisiaðgerðum í noikferum tilfellum, isem virðast 'hafa gefið góða raun. En öllum lög- og reglu- gæzlustörfum fylgir alltaf allhörð gagnrýni, en vonandi er að ekki verði slakað á í að framfylgja regl'um hússins, þrátt fyrir gagn- rýni þessa. Almenningur styður forráðamenn hússins áreiðanlega í iþessu starfi. Það mun sannast, að allir skemmti sér bez't í allri kurteisi og prúðmannlegir í fram- komu hver við annan. Framboðslistar

x

Ólafsfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólafsfirðingur
https://timarit.is/publication/1945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.