Ólafsfirðingur - 19.12.1964, Blaðsíða 17

Ólafsfirðingur - 19.12.1964, Blaðsíða 17
anlegt sMðaland, og hafa framtakssamir menn nú í huga að Ibyggja sMðaskála í Ólafsfjarðanmúla. Sund hefur og atmennt verið stimdað í Ólafsfirði undanfarna áratugi, og hef-l ur Sundlaug Ölafsfjarðar, sem byggð var af áhuga- mönnum, og vígð 1944, átt sinn þátt í því. Sagnir eru til um sundlaug í Ólafsfirði fyrir aldamót, var sú sund- laug að Reykjum, en þar eru hieitar laugar. En ,,Gamla sundlaugin“ sem flestir mið- aldra Ólafsfirðingar muna, var út við Brimnesá, og var köld uppspretta látin renna í hana í tréstoikikum. Unnið er nú að byggingu íþróttavallar í Ólafsfirði, og virðist mikill hugur í ungum mönnum um þátttöku í í- þróttum, bæði úti og inni, en íþrólttahús er sambyggt skólahúsinu. ★ Almenn félagsmál Einangrun Ölafsfjarðar hefur valdið Iþví á árum áð- ur, að Ólafsfirðingar urðu að vera sjálfum sér nógir í félagslegum efnum. Örðugt var að bregða sér í næstu byggðarlög til skemmtana. Ólafsfirðingar brugðu því á ýmis ráð til þess að halda uppi félagslífi og skemmt- unum, þegar íbúum tók að fjölga í kauptúninu. Leik- sýningar og dansleikir voru háðir í salthúsum eða bað- stofum. Snemma var bygglt samikomuhús í Ólafsfirði, og var þar leikið, dansað og sungið marga Skammdegis- nótt, enda þá atvinnulífi þann veg háttað, að 'á vetr- um voru bátar dregnir á 4 Karlakór Ölafsfjarðar 4 Ólafsfjarðarkirkja 4 Tjarnarborg $ land og fátt um umsvif á nútímamælikyarða. Árið 1961 var vígt nýtt félagsheimili í Ólafsfirði, og er það hið veglegasta og vandaðasta hús. í félags- heimili þessu, Tjarnarborg, sem stendur við norðurenda tjarnarinnar í Ólafsfirði, þar sem áður stóðu íshúskomp- ur og skúrar, er nú rekið margháttað félagsmálastarf, leikstarfsemi, kvikmynda- sýningar, dansleikir o.s.frv., á vegum hinna ýmsu félaga í Ölafsfirði. Starfsemi þessa húss hefur þótt takast von- um framar til þessa, og er það von Ölafsfirðinga, að taJkast megi að reka þetta félagSheimili á þann hátt, sem því var ætlað: að stuðla að þroskavænlegu og fjöl- breyttu félagslífi í vaxandi bæjarfélagi. Hokkrar miimingar Framhald af 13. síðu eftir viku itil táu daga, en aftur gat sjúMingurinn dáið eftir no-kkurra daga veilk- indi. ★ „Gefið gaum að M B 693“ í mánaðarskýrslum til landlæknis, voru auðvitað skráð þessi mörgu lungna- bólgutilfelli. Dag nokkurn fékk ég -Skeyti frá land- lækni, er hljóðaði svo: „Gefið gamri að M&B 693“. Hvað var nú þetta ? Var þetta einhvers konar dul- málsSkeyti ? En þar sem slík skeyti tíðkuðust ekki frá yfirmanni mínum, fór ég að rannsáka málið. Þettá var na-fnið á nýju lungna- bólgulyfi. En in-flúenzan var að mestu leyti um garð gengin, hún gerði mestan usla í janúar og febrúar, og náði ég því ðkki til að reyna lyfið í þessum faraldri. Ég útvegaði mér lyfið til að reyna það í næsta lungna bólgutilfelli, en það varð ekM -fyrr en eftir rúmt ár. Hinn 18. júní 1940 var ég kvaddur til 23 ára gamals manns. Hann hafði hita, takstin-g, hósta, og var blóð- li-tur í hráka. Þetta voru greinileg byrjunareinkenni lungnabólgu. Hlustun stað- festi það, þótt bólga væri ekM orðin greinileg, enda kom ég svo fljótt itil sjúM- ingsins, að þess var heldur iékM að vænta. Það er ákaf- lega mikilvægt að koma fljótt til lungnabólgusjúM- ings. Er þá hægt að kveða sjúkdóminn niður þegar í byrjun, éftir að völ varð á iþessum -mikilvirku lyfjum. Þorpin og smákaupstaðirnir hafa það fram yfir Reykja- vík, ef læknir situr á staðn- um, að geta náð itil hans fljótt. I Reykjavík er það ekkert óalgengt, að ekki næst í lækni fyrr en eftir marga klukkutíma, eða hálf- an sólarhring, eða jafnvel lengri tíma. Varð mér oft hugsað til þess, er fólk var óþohnmótt ef ég var eMd kominn eftir nokkrar mín- útur. En löng er stundin þeim sem bíður. Nú skyldi reyna nýja lyf- ið. Var nú hægt að treysta því? Eða átti það að valda sömu vonbrigðum og berkla- lyfið Sanocrysin frá því um 1920, sem var gullsamband? Ég lét sjúklinginn fá lyfið, sem -var í töfluformi, og nefndist einnig Dagenan, og ákvað Skammtana samkv. fyrirmælum framleiðanda. Og hvað skeði? Undur og stórmerM! I stað þess að lungnabólgusjúklingar Ihöfðu um 40 stiga hita eða vel það, í viku til tíu daga, fór hitinn nú að smálækka -eftir tæpa tvo sólarhringa. Eftir 3—4 daga var sigurinn unn- inn. Ekkert skyndihitafall niður í 36—37 stig, með ofsalegum svita. Eftir þetta minnist ég þess ekM, að -hafa misst sjúMing er veikt- ist af taklungnabólgu. ★ Súlfalyf gegn heilabólgu Árið 1945 reyndi ég súlfa- lyf við exm hættulegri sjúk- dómi. Á stríðsárunum komu fyrir nokkur tilfelli af smit- andi -heilabólgu hér á landi. Það er -hættulegur sjúkdóm- ur, og gat dánartalan farið upp í allt að 60 af ihundraði. I næsta húsi veiktist piltur af ógleði og uppköstum. Uppsölupest var að ganga í bænum einmitt á þeim tíma, og héldu foreldrar hans að um hana væri að ræða, til að byrja með. En brátt fóru uggvænleig -einkenni að gera vart við sig, o-g var ég því beðinn að líta á sjúkhnginn. Þegar ég kom inn í sjúkra- herbergið, blasti sjúkrarúm- ið við mér. Samstundis var ég hárviss um, hvaða sjúk- dómur var hér á ferðinni. Ómögulegt er mér að gera mér grein fyrir, hvernig ég öðlaðist þessa vitneskju. Þetta var einhvers konar hugljómun. Ég rannsákaði samt sjúkhnginn, þótt mér fyndist það hreinn óþarfi, svo viss var ég í þessari leiftursjúkdómsgreiningu. Sú rannsókn staðfesti hana al- gerlega. Sjúklingurinn hafði flest einkenni alvarlegrar heilabólgu, meðal annars var farið að bera á krömpum, og það svo, að stundum kastaðist hann dáhtið til í rúminu. Þetta var 1 eina sMptið, sem iþessi sjúkdómur varð á vegi mínum á allri minni læknisævi. Gat iþví verið hætta á að mér kæmi hann alls ekki í hu-g, og var því vissan um, hvaða tegund heilabólgu væri á ferðinni, -mjög mikilvæg. En þetta var ekki í eina sinnið, sem ég greindi sjúkdóm, um leið og ég leit sjúklinginn augum, og án allrar rannsóknar. Það kom oftar fyrir, og einfcum þegar um alvarlegan sjúk- dóm var að ræða, og ban- vænan, t.d. krabbamein. Slífca sjúklinga sendi ég burtu til frekari rannsófcn- ar, t.d. röntgenmyndunar, og þótt myndimar staðfestu ékki sjúkdóminn, var ég engu að síður viss í minni ,,sjúkdómsigreiningu“, sem reyndist rétt. EkM em svona fyrirbæri nein eins- dæmi, aðrir læknar hafa sumir svipaða sögu að segja. Hugsanlegt er, að áratuga dvöl í einu og sama héraði, og það, að læknirinn þekMr ihvern einasta héraðsbúa per- sónulega, eigi einhvern þátt í þessu. Heil kynSlóð hefir vaxið -upp, og læknirinn þekkir heilsufar hvers og eins frá blautu bamsbeini. Ég átti tal við annan hér- aðslækni, sem hafði verið áratugi í héraði, og kom okkur saman um að það væri ómetanlegt, og að þekkja ættir héraðsbúa. Nú var að hefjast handa KAUPSTAÐUR 17 ÓLAFSFIRÐINGUK

x

Ólafsfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólafsfirðingur
https://timarit.is/publication/1945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.