Dögun - 20.03.1949, Síða 2

Dögun - 20.03.1949, Síða 2
2 DÖGUN Sunnudagurinn 20. marz 1949 ÞAR SEM SVIKIN RISA HATT Hér ætla ég að minnast lítil- lega á flokkinn, sem kennir sig við alþýðuna og nýtur forystu mannsins, sem íslenzk alþýða fyrirlítur manna mest. Þegar Alþýðuflokkurinn var stofnaður sem baráttutæki ís- lenzkrar alþýðu, fyrir sósia- lisma og bættum kjörum alþýð- unnar, hefði það þótt lygileg saga, að örlög þessa flokks ættu eftir að verða þau, sem raun ber vitni um. Á fyrstu árum flokksins var unnið að bættum kjörum al- þýðunnar og tekin ákveðin af- staða með sjálfstæðisbaráttu ís- lenzku þjóðarinnar. Svo komu nýir forystumenn, nýjar hug- sjónir,“ og þar með var saga flokksins öll, sem alþýðuflokks. Nú þjónar þessi flokkur, og hefur reyndar tekið forystu fyrir spilltri yfirstétt gegn þeirri þjóð, sem hann var sett- ur til að þjóna. Eitt ljósasta dæmi hins svik- um stráða ferils „Alþýðu- flokks“ Stefáns Jóhanns, er for- usta flokksins fyrir liði því, sem sækir nú að sjálfstæði þjóðarinnar. Svo djúpt er sú klíka sokkin, sem nýtur nú for- ustu „alþýðuleiðtogans‘“ Stef- áns Jóhanns, að líf og framtíð fyrir syni þeirra og dætur er þeim einskis virði. Og svo er þetta nefnt ríkisstjórn Islands!! Gamalt máltæki segir: „fifl- inu skal á foraðið etja,“ og sannast það einkar vel á þann mann, sem mest er nú dýrk- aður af þrælapískurum þessa lands. Þessum manni er falið að hefja áróður landssölulýðs- ins, og valdi hann til þess einn af hátíðardögum íslenzku þjóð- arinnar, 31 des, 1948. Þann dag var hinn einstæði nýárs- boðskapur fluttur. Ræða þessi, sem fræg mun verða að endemum í íslenzkri stjórnmálasögu, lýsir vel hinni lúalegu aðferð, sem notuð er til þess að æsa upp stríðsótta og haturshyggju meðal þjóðar- innar. Hún lýsir vel hugsana- gangi þeirrar spilltu yfirstétt- ar, sem stjórnar landi voru. Og hún sýnir vel það pólitíska sið- leysi, sem þessi leiðtogi Al- þýðuflokksins er gæddur ísvo ríkum mæli. Og vissulega væri það hollt fyrir ákveðnustu stuðningsmenn Stefáns Jóhanns hér í bæ, að kynna sér hin almennu hegningarlög í sambandi við ræðu ráðherr- ans. 1 kafla hinna almennu hegn- ingarlaga, sem fjallar um land- ráð, segir svo í 92. grein: „Sömu refsingar (þ.e. allt að 10 ára fangelsi) skal hver sá sæta, sem af ásetningi eða gáleysi stofnar hlutleysisstöðu íslenzka ríkisins í hættu, aðstoðar erlent ríki við skerðingu á hlutleysi þess, eða brýtur bann, sem ríkið hefur sett til verndar hlutleysi sínu.“ Hvað segir svo þjóðin um ráðherrann og hegningarlögin? Er ræða ráðherrans brot á ofanskráðri grein hegningar- laganna, eða er hún það ekki? Ég læt þjóðina dæma um það. En eitt er víst, að ræða, sem ætlað er að telja þjóðinni trú um, að ævagamalt hlutleysi sé „einskis virði,“ og sé aðeins „óvitahjal,“ verður að teljast vafasamur „nýjársboðskapur.“ Og ég spyr: Hver gæti haldið slíka ræðu nema maður, sem hefur glatað sinni þjóðfélags- legu samvizku? Það er ekki nóg fyrir Stefán Jóhann að draga flokk sinn i dans dollarakálfanna. Það, sem snýr að íslenzkri verkalýðsstétt verður raunasaga flokksins. Það verður raunasaga mann- legrar hnignunar, saga um glataðar hugsjónir og siðferði- lega spillingu! Starf og gjörðir Alþýðu- flokks Stefáns Jóhanns sam- ræmist illa starfi og stefnu hins gamla Alþýðuflokks, sem barðist fyrir alla alþýðu gegn forhertri auðs og yfirstétt, fyr- ir aukinni hlutdeild fólksins i gæðum lands vors og fyrir dreifingu auðmagnsins lir höndum braskaranna til hags- bóta fyrir heikliria. En nú hefur flokkurinn, sem kennir sig við alþýðuna, forustu í ríkisstjórn heildsala og stórat- vinnurekenda. Ríkisstjórn, sem telur eitt sitt höfuðverkefni að berjast gegn verkalýðshreyf- ingu landsins, en styður aftur- haldssama og menningar- snauða mjljónerastétt. Ríkis- stjórn,s em með tveggja ára ó- stjórn, hefur fært launþegum 120 milljón króna tollabyrði samhliða minnkandi atvinnu. Og ekki verður því gleymt, að rikisstjórn Stefáns Jóh. Stefáns- sonar lét það verða eitt sitt fyrsta verk, að skera niður með valdboði kaupgjaldsvísitöluna um 28 stig, og lækkaði þar með kaup launþega um 8—12%. Þegar svikin rísa sem hæzt; þá ber mest á hinum skipu- lögðu blekkingum Alþýðu- flokks Stefáns J. Stefánssonar, og óhætt mun að fullyrða, að óvíða beita sósíaldemokratar sínu andlega siðleysi i jafn rik- um mæli og hér á landi. Reynt er að villa fólki sýn og beitt lygum og fölsunum á eðli Sósíalistaflokksins, kenn- ingum hans og stefnu. Ekki er sparað að þyrla upp moldviðri ósanninda um einstaka menn Sósíalistaflokksins og þeim gef- in ýms sæmdarheiti, svo sem „Leiguþý erlends hervalds“. „föðurlandssvikarar“ og fleiri slík, sem betur ættu heima hjá Stefáns-Jóhanns-mönnum. En þá er spurningin. Er Al- þýðuflokk Stefáns Jóhauns nauðsyn að beita sínum marg- víslegu blekkingum gegn ís- lenzkum sósíalistum? Og svarið verður að athuguðu máli, já. Af þeirri einföldu á- stæðu, að svo herfilega aumur er málstaður Alþýðuflokks Stefáns Jóhanns eftir öll þau kynstur af svikum við íslenzka alþýðu hin seinni ár, að engu.m alþýðumanni né konu mundi nokkurn tíma koma til hugar að ]já honum lið, ættu þau þess kost að sjá hann sviptan þeim1 hjúpi blekkinga og hræsni, sem hann er klæddur! Margur maður hefur þó í oftrú á mannlegt eðli ekki talið óhugsanlegt, að flokkurinn kynni að endurfæðast og taki upp sina fyrri stefnu og gerist sósíalískur á ný, og gangi til samstarfs við sósíalista fyrir framkvæmd sinna fyrri stefnu- mála. Þetta má þó teljast ó- huganlegt meðan menn á borð við Stefán Jóhann stjórna flokknum. IJað bendir nú margt til þess, að frjálslyndari menn flokks- ins skilji þetta. Allt til þessa árs hafa þeir fylgt „Alþýðu- flokk“ Stefáns Jóhanns af gam- alli tryggð og í trausti þess að hann væri þrátt fyrir allt hinn gamli Alþýðuflokkur. Sú trú dvín nú óðum, og er að litlu orðin, enda er nú mikill fjöldi tryggustu og beztu manna flokksins að segja skilið við hann í mótmælaskyni við svik Stefáns Jóhanns og kliku hans. Það hefur litið borið á þvi. að „Skaga“-kratarnir fyrirverði sig fyrir foringja sinn, síður en svo. Nú túlka þeir stjórnar- stefnu „Stefáns“-manna mest, og telja hana vera hámark alls góðs í voru þjóðfélagi. Að vísu hefur enginn ætlazt til neins góðs af vissum krötum hér i bæ, en sumir hafa ímyndað sér að erfitt myndi fyrir Svein- björn Oddsson, vegna sinnar fortíðar sem verklýðsleiðtoga, að þjóna hrunstjórn Stefáns Jóhanns. En lengi skal mann- inn reyna. Það getur hefnt sín, og vissu- lega orðið dýrkeypt, að gerast svikari við öll sín fyrri stefnu- mál og helgustu hugsjónir al þýðunnar. Að vísu veitir það stundarupphefð og jafnvel nokkum frama, en eftir því sem svikin rísa hærra, eftir því mun fallið verða meira. Það mun og verða reynsla „Alþýðuflokks" Stefáns Jóh. Stefánssonar. , * V erkamaður. á hafnar 0 1 bl. Framtak 27. jan s. 1. er gefið í skyn, að of seint hafi verið minnst á Lýsisgeymirinn mikla i Teigavörinni, til þess, að það gæti haft nokkra þýð- ingu til úrbóta, eins og þá var komið langt byggingu hans, er málið bar á góma. En jafn- framt má ráða í það, að tillit myndi hafa verið tekið til á- bendingar, ef hún hefði komið fram svo fljótt, að hægt hefði verið að sinna henni. Mig fýsir því að sjá hvernig háttvirt bæjarstjórn Akraness tekur skoðun minni á eftirfarandi málefni, því tæpast getur hún talizt of seint fram komin. Eins og síendur, fara flestar fólksflutningabifreiðar, stórar og smáar, og flest gangandi fólk vestan úr bænum, niður á Rárugötu og eftir henni að hótelinu, en beygir þar austur með húsum Haraldar Böðvars- sonar & Co. og síðar Bjargs- verzlun á Hafnarbrautinni, og þar mætir það allri umferð af Suðurgötunni og þeim þver- götum er liggja að henni, og fylgir svo straumnum fram á Hafnargarðinn, til þess að komast um borð i fólksflutn- ingaskipin, á leið sinni til Reykjavikur, eða annara staða austan og sunnan Hvalfjarðar. Sömu leið gengur eða ekur allt það fólk, er að sunnan kemur eftir því hverja það er að finna, eða hvert ferðinni erheit ið. öll stór flutningaskip leggj- ast við Hafnargarðinn, ef þau annars þora að króka inn fyrir beygjuna og út að honum, og öllum vörum er þar skipað upp úr þeim, sem hingað eiga að fara, eða um borð í þau. eftir því hvort þau eru að sækja vöru eða losa sig við hana. — Hafnargarðurinn er því tíðast þakinn bílum, smáum og stór um, af stærstu gerð niður ? smá-jeppa, svo tæpast er hægf að þverfóta á hafnargarðinum. svo ég viðhafi gamalt orðatil- tæki, sem notað var fyrrum við athugaverð og stórhættu- leg þrengsli. Þetta mætti saml kalla gott og blessað ef báta flotinn lægi ekki jafnhliða við hafnargarðinn, til að losa afl? sinn og taka um borð þarfir sínar. En þessutan er hafnar garðurinn oft þakinn stærri eða minni vélum, dínomóum, ýmis konar geymum og alls konar vörum, sem skipað er upp á hann, og verða að bíða þar eftir því að svigrúm og mann- afli fáist til að koma þeim þangað, sem þær eiga að fara % sé alls ekki hvar fólki er ætlað að ganga, eða bíða skips. er af ýmsum ástæðum, jafn vel alveg óviðráðanlegum, ekki getur farið eða komið á áður tilteknum áætlunartíma, sem oft getur komið fyrir í vondri tið. Fram að þessu hefir þetta lánast slysalaust, af því að flestir bílstjórar hér hafa að undanförnu verið gætnir menn sem stillt hafa keyrzlunni í hóf eftir ástæðum. „En einu sinni verður allt fyrst.“ Og alltaf er ökuhraðinn að aukast hér, eftir því sem aðkomandi bílstjórum fjölgar, svo lítið mun vanta á, að hann sé á stundum orðinn jafn aðgæzlu- verður eins og í sjálfri höfuð- borginni, Reykjavík. Bœjarstjórn hefir nú ráS- gjört, að lengja nýju bryggj- una, svokölluðu, sbr. Framtak 24. bebr. 1949. Ég tel því að lengja ætti götuna Vitateig alla leið niður að nýju-bryggjunni, sem allra fyrst, því ekki munu mörg ár líða frá því að téð bryggja hefir verið lengd, þar til öll fólksflutningaskip kjósa heldur að leggjast að henni en hafnargarðinum, með öllu því bifreiða- og vörubílaþvargi, er þar hlýtur að verða í náinni framtíð, eða svo lengi, sem allri umferð er stefnt þangað, hvernig sem á stendur. Þó ekkert tillit sé tekið til fiskibátaflotans hér, sem þó er af ráðamönnum Akraness tal- inn vera lífæð bæjarins, ætti að reyna að dreifa umferðinni að höfninni á fleiri staði, vegna slysahættunnar, og þess að á stundum lenda bátar í horn- reku aðstöðu við hafnargarð- inn við uppskipun aflans til stórbaga við sjósóknina, þegar gefur daglega og hvað mestur er afli. Það ætti því að taka skarð í gegnum Teiginn, fyrir innan þann stað, sem Minnis- merki drukknaðra sjómanna var ætlaður fyrrum á skipu- lagsuppdrætti bæjarins, hvort sem merkið á eftir að koma þar nokkurn tíma eða ekki, svo hægt væri að lengja Vitateigs- götuna alla leið niður að nýju- bryggjunni, svo gatan gæti legið bein með Lýsisgeymin- um að utan, því þar eru enn sem komið er engin hús eða mannvirki til baga, að undan- skildu gamla Akurshúsinu, er líklega gæti bagalaust staðið þar sem það er, þar til það væri endurbyggt i einhverri mynd, og svo Hafnarverka- mannahúsið, er færa mætti dáhtið utar ef með þyrfti. — Vitateigurinn ætti að liggja þannig beinn yfir Akursbraut- ina og væri þá fegursta og þarfasta gata, sem til væri á Akranesi að mínum dómi og margra annara. Tvö minnis- verð slys eru orðin við hafnar- garðinn síðan byrjað var að nota hann, og ætti það að geta vakið menn til umhugsunar um það, að slíkt komi ekki fyr- ir aftur, því hafnargarðurinn er byggður til að verja aðrar bryggjur fyrir brimróti og slysum, en ekki til þess að vera sjálfur aðalbryggja, nema út af neyð, á meðan bryggjur vantar, og varnargarðurinn á honum er ónýtur, alla leið fram að síðasta keri, sem sett var niður fyrir ofan beygjuna, og ónýtastur er hann efst, þar sem hann þyrfti að vera hæzt- ur og traustastur. Skarðið væri fljóttekið í Teiginn með jarð- ýtu, er jafnframt flytti mold- ina niður í lágina, sem hafnar- Framhald á 4. síðu.

x

Dögun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.