Dögun - 20.03.1949, Síða 4

Dögun - 20.03.1949, Síða 4
Hvenœr œtlar undirbúnings- nefndin aS ÞjóSvarnafélags- stofnuninni á Akranesi aS skila störfum??? Sunnudagurinn 20. marz 1949 DÖGUN býSur ÞjóSvarnar- mönnum aSstoS sína. Berj- umst fyrir sjálfstæSi þjóSar- innar. Andvarp hins deyjandi íhaldsflokks 1 leiðara Framtaks 10. þ. m. tekur íhaldsflokkurinn á Akra- nesi fyrsta andvarpið, og or- sökin er sú, hve vegur sósíal- ismans er vaxandi og vöxtur hans mikill. Þetta andvarp kom okkur sósíalistum ekkert á ó- vart, því fúnir stofnar hljóta að falla, því fyrr því betra, en hinu hefðu margir búizt við, að flokkur sá mundi tóra þar til landsölulið hans væri búið að fá yfir sig hervernd Banda- ríkjanna, því sá eini tilgangur er sjáanlegur með hinu fyrir- hugaða Atlantshafsbandalagi, að ríkisstjórn Islands trevsti á vernd Bandaríkjanna gegn hruni hins grautfúna kapítal- iska þjóðskipulags. Því vegur sósíalismans er vaxandi, og vöxtur hans mikill og fyrir þessum staðreyndum skelfur nú hið deyjandi íhald, spilandi sína gatslitnu plötu — Rúss- land — Stalin — og aðra slíka áróðurstónlist, sem allir þekkja. En þessi tónlist er þeim ekki lengur til framdráttar, því fyrir íslenzkri alþýðu er það óðum að skýrast, að öll hennar fá- tækt og öil hennar örbyrgð um aldaraðir, er hinu rangsleitna og ósanngjarna kapítaliska þjóðskipulagi að kenna og þeg- ar íslenzk alþýða hefur fundið mátt sinn, standast ekki fúnir kvistir fyrir mætti hennar, hún mun rífa þá upp með rótum þar til eftir verður aðeins gró andi jörð hins vaxandi Sósial- isma. I niðurlagi áður nefndra leiðara hins deyjandi íhalds- flokks á Akranesi er spurt hvað kommúnistar á Akranesi (eins og tónlistin orðar það) mundu gera ef Rússar færu í eltingar- leik hér (orðalag Framtaks). Rússar hafa enn sem komið er ekki gefið neitt tilefni til ótta við neinn eltingarleik, ekki far- ið fram á neinn fermetra af íslenzkri grund. Við sósíalistar á Akranesi munum óskiptir berjast gegn erlendri ásælni, hvaðan sem hún kemur, svo og þátttöku ís- lands í hvers konar hernaðar- bandalögum, hins vegar mun- um við einnig berjast gegn innlendum landsölulýð og kvislingum, úr hvaða flokki, sem þeir telja sig, og munum aldrei óátalið láta gera Island að blóðvelli hins siðspillta doll- aravalds Bandaríkja Norður Ameríku. Auglýsið 5 DÖGUN Flér með tilkynnist öllum þeim, er ætla sér að sækja um byggingalóðir til bæjarins, að framvegis verður engum leigulóðum úthlutað milli 1. april og 1. okt. ár hvert, nema þeim lóðir sem kunna að vera ónytjaðar til garðræktar á þessu timabili, eða að skriflegt samþykki þess aðila, er þær hefur á leigu til garðræktar, liggi fyrir. Samkvæmt þessu er frestur til að sækja um leigulóðir til húsabygginga á komandi sumri útrunninn þann 1. apríl n. k. Akranesi, 15. febrúar 1949. Bœjarstjórinn á Akranesi, (Juðlaugur Einarssou. s.-------------------------------------------------- — Svikaferill Alþýðu flokksins Nlþýðublaðið er látið svívirða iigurbjörn Einarsson, fyrrver- mdi frambjóðanda þeirra, og marga fleiri af forystumönnum Alþýðuf lokksins. Enn á ný hefur forysta krat- anna verið köllun til þjónustu fyrir hið ameríska stríðsgróða- vald, til þess að vera eins konar þurka stórgróðabraskaranna. sem hægt væri að þurrka í ráð- stafanir til árása á réttindi fólksins. Stefán Jóhann Stefánsson hélt nýlega ræðu í Stúdenta- félagi Islendinga í Kaup- mannahöfn. Þar lýsti forsætis- ráðherrann yfir, að hann myndi berjast fyrir því, að ís lendingar gerðust aðilar að hernaðarbandalagi Vesturveld- anna, ef bandalagið legði Is- lendingum ekkicZZí of þungar byrðar á herðar. Með öðrum orðum, þungar mega byrðarn- ar og skyldurnar vera að áliti Stefáns, sem Islendingar taka á sig, til þess að móðga ekki vini sína um of. Með myndun núverandi rík- isstjórnar,fullkom naði Al- þýðuflokkurinn endanlega snúning sinn, að hafa byrjað sem flokkur alþýðunnar, en hafnað síðan i feni afturhalds- aflanna. Er ekki von, þegar verk ríkis- stjórnar Stefáns Jóh. Stefáns- sonar eru athuguð, með tilliti hagsmuna íslenzkrar alþýðu, að alþýðuflokksmönnum hrjóti þessi spurning af vörum: Ffver er stefna Alþýðu- flokksins i ríkisstjórninni, og hvar vottar fyrir stefnu al- þýðunnar í gerðum ríkisstjórn- arinnar? Sú ríkisstjórn, sem nú hefur setið að völdum i tvö ár, er ekki fulltrúi íslenzkrar alþýðu, hún hefur fyrst og fremst gengið erinda þeirra, er einskis skyrrast til að tryggja hags- muni sína og yfirráðaaðstöðu á kostnað alþýðunnar í land- K. — Þrengslin á hafnar- garðinum verkamannaskýlið stendur í, og kæmi moldin þar í góðar þarfir til uppfyllingar. Þó báta- flotanum sé lagt við nýju- bryggjuna að innan, í vondri tíð, eða þegar ekki er sóttúr sjór, einhverra orsaka vegna, ættu fólksflutningaskipin að geta lagzt við bryggjuna að utan, þegar beygjan er komin við hafnargarðinn fullhá, eins og henni er ætlað að verða, og yrði því þessi bryggja marg- falt hættuminni-fyrir gangandi fólk og fólksflutningabila held- ur en hafnargarðurinn, og jafnframt drægi hún rtr slysa- hættunni á honum, þar sem fólksstrauminum væri þá skipt á milli þessara tilgreindu staða. Þetta tel ég að háttvirt bæjar- stjórn þyrfti að athuga, áður en búið er að eyðileggja nefnt götustæði að nýju-bryggjunni, með húsabyggingum, eða mannvirkjum, sem alveg eins vel mætti setja niður á öðrum stöðum. Af því að nýstofnuðu blöðin „Skaginn“ og „Framtak" hafa að sögn, svo miklu úr að moða af greinum tii birtingar, vil ég biðja blaðið „Dögun“ að birta grein þessa í næsta blaði sínu, en þar með er samt ekki víst að ég sendi henni greinar eftir- leiðis, því ég er Framsóknar- maður, en alls ekki „kommún isti“ þó sumir vilji heiðra mig með því, og það ætla ég mér að vera á meðan líf endist. Ég er eindreginn Islendingur og vil ekki sleikjuhátt við neinar þjóðir eða neinna þjóða hersetu hér á friðartímum. Virðingarfyllst. Hallbj. E. Oddsson. DögUll býður þjóðvarnar- mönnum á Akranesi rúm í blaðinu fyrir greinar um sjálf stæðismál þjóðarinnar. Bókmenntafélagið MÁL OG MENNING Á árinu sem er að líða, eru félagsmönn- um látnar í té fyrir aðeins — 50 KIiÓXA ÁKGJALD — eftirtaldar úrvals’1j£3kur: 1. Svertmgjadrenguriiin, eftir Richard Wright. 2. Endurminningar, eftir Martin Andersen Nexö. 3. Lengi man til lítilla stunda, eftir Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli. Áður út komið eftir sama höfund: Pabbi og Mamma og Afi og Amma. 4. Tímarit Máls og Menningar, 1., 2. cg 3. hefti. Efni: Sögur, ljóð og ritgerðir eftir kunna íslenzka höfunda. Félagsmenn, síðustu bækur fyrra árs voru að koma. Vitjið þeirra sem fyrst. Nýjir félagsmenn geta fengið eldri fé- lagsbækur með hinu upphaflega lága verði. IJmboð MÁLS OG MENNINGAR á Akranesi: HALLDÓR ÞORSTEINSSON, Sunnubraut 22 —- Sími 174. ÞJÓÐVILJINN er blað stjórnarandstöðunnar á íslandi. Hver sá, er vill fylgjast með íslenzkum stjórnmálum, verður því að lesa hann. Kaupendur ÞJÓÐVILJANS á Akranesi, sem ekki fá blaðið skilvíslega sent til sín, gjöri svo vel og tilkynni það afgreiðslunni Afgreiðsla Þjóðviljans er hjá HALLDÓRI BACKMANN, Skagabraut 5. Sósíalistar! Frá Bókastöð Réttar getið þið eignast ódýrar bækur og fræðslurit um sósíal- isma. — Afgreiðslumaður bókanna er KRISTMUNDUR ÓLAFSSON, Bjarkagrund 7, sími 300. Þeir, sem hefðu í huga að láta stilla píanó sín, eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 300 eftir nánari upplýsingum. mu.

x

Dögun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dögun
https://timarit.is/publication/1946

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.