Stúdentablað lýðræðisjafnaðarmanna - 15.10.1943, Page 1

Stúdentablað lýðræðisjafnaðarmanna - 15.10.1943, Page 1
1. tölublctð 1. árgangs outóber 1943 5túðentablað lýdræðisjafnaðarmanna Helgi Þóparlnsson stnd. jur. Alþýðuflokksfélag háskólastúdenta er stofnað 24. okt. 1940. Haustið áð- ur höfðu nokkrir stúdentar, sem fylgdu Alþýðuflokknum að málum, sagt sig úr Félagi róttækra stúdenta, og mun ágreiningur út af Finnlands- málunum hafa valdið því að nokkru leyti, þótt það væri á hinn bóginn eðlileg afleiðing þess, að framsókn- armenn höfðu þá áður slitið tengsl- um við það sama félag og stofnað sitt eigið félag, er þeir nefndu Félag frjálslyndra stúdenta. Aðstaða þeirra stúdenta innan félagsins, sem fylgdu Alþýðuflokknum, versnaði auðvitað stórum við það, að framsóknarmenn gengu úr Félagi róttækra, því að sócíalistar urðu við það í miklum meiri hluta þar og réðu einir öllu um mál félagsins. Það var þvi ofur eðlilegt, að Alþýðuflokksstúdentar stofnuðu sitt eigið félag, þar sem klofningur var einu sinni kominn í lið vinstri stúdenta, þótt þeir annars óskuðu sízt eftir slíkum klofningi. Það virðist margra hluta vegna æskilegast, að vinstri sinnaðir stúd- entar stæðu saman í einu félagi, og það ætti að vera mjög auðvelt, ef það Alþýðuflokksfélag háskóla- stúdenta og vinstri samvinna félag væri ekki á nokkurn hátt bund- ið neinum sérstökum stjómmála- flokki, heldur léti sig eingöngu hags- munamál stúdenta skipta. Fyrsta stjórn Alþýðuflokksfélags háskólastúdenta var skipuð þeim: Friðfinni Ólafssyni, stud. oecon., Bjarna Vilhjálmssyni, stud. mag. og Birni Þorbjarnarsyni, stud. med. Við stúdentaráðskosningar 1941 var fél. í kosningabandalagi við Fé- lag róttækra stúdenta. 1942 stóðu öll þrjú félögin saman að einum lista sem þau og gera nú við kosning- ar þær, er framundan eru. Við stúd- entaráðskosningarnar 1941 fékk fé- lagið öruggt sæ'ti á sameiginlegum lista með Félagi róttækra stúdenta og kom þá að einum manni i stúdenta- ráð. Siðastliðið ár átti það engan mann í stúdentaráði, en nú á það aft- ur á móti öruggt sæti á hinum sam- eiginlega lista. Það er ekki af því, að félagið hafi ekki haft tök á því að stilla upp eig- in lista við síðustu kosningar og þær, er í hönd fara, að það hefir verið í bandalagi við hin félögin, og í fyrra með mjög litla von um að koma manni að, sem og varð ekki. heldur af því að það álítur samstarf vinstri sinnaðra stúdenta mjög mikilsvert og er reiðubúið að fórna nokkru fyr- ir að það megi takast, sem og kom greinilega fram við síðustu kosning- ar. Þetta er í fyrsta sinni, sem félag- ið gefur út blað, og er vonandi, að það geti haldið áfram að gefa það út við og við. Það var mikill skaði, að Nýja stúdentablaðið skyldi hætta að koma út. Það var ávallt mjög öflugt málgagn allra frjálslyndra og vinstri sinnaðra stúdenta. Það væri ákaflega mikilsvert að hægt væri að hefja útgáfu þess á ný í svipuðum anda og það var, er það var upp á sitt bezta. Slikt mætti eflaust takast, ef örugg- ur vilji væri fyrir hendi hjá hinum þremur vinstri félögum. Rúmi blaðs- ing þyrfti að vera skipt að jöfnu milli félaganna og ritstjórn þess skipuð einum manni frá hverju félagi. Þetta ætti ekki að vera miklum vand- kvæðum bundið, þar sem allir stúd- entar hafa hingað til getað staðið saman að útgáfu stúdentablaðs 1. desember ár hvert. Það gæti orðið mikill styrkur hin- um vinstri öflum í Háskólanum að eiga eins öflugt blað og Nýja stúd- entablaðið var á sínum tíma. Það er vissulega áhrifameira að gefa þannig út eitt sterkt blað heldur en mörg og hvert um sig fremur veikt, auk þess sem mjög er erfitt, fjárhagsins vegna, fyrir hvert félag um sig að halda úti bla>:

x

Stúdentablað lýðræðisjafnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablað lýðræðisjafnaðarmanna
https://timarit.is/publication/1963

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.