Mannbjörg - 15.06.1946, Síða 11

Mannbjörg - 15.06.1946, Síða 11
MANNBJÖRG 11 Jóhanna Knudsen: \ \ Olæpaöld barnaiuia ep liafin / Við þurfum ekki að undrast það. Við höfum sjálf kallað hana yfir þau. Hver einasta fullorðin manneskja þessa bæjar hefur vitað það, allt frá fyrstu vikum hins enska liernáms, að ungviðið var í geigvænlegri hættu. Strax fyrstu hernámsdagana var barnaskóhmum lokað og börnin látin umhirðulaus á götuna á meðan glundroðinn stóð sem hæst. Þau fengu óhindruð að svala forvitni sinni, elta liermennina á röndum, góna á umstang þeirra og hirða sælgætisbeituna, sem þeir fleygðu fyrir þau án afláts. Þau litu því á hernám landsins eins og liapp og á lierinennina eins og velgerðamenn. Sama er að segja um unglingana. Við horfðum róleg á þau sogast niður í hringiðuna, sem við viss- um að flest þeirra mundu farast í. Ef frábær með- fædd festa, eða óvenjuleg umhyggja foreldra, hélt ekki hlífiskildi yfir þeim, voru þau umkomulaus í höndum herliðsins, á valdi þeirrar forheimskunar, óþjóðrækni og siðspillingar, sem af viðkynningunni við það hlaust. Telpurnar gengu hermönnunum grandalausar á hönd. Þær litu á þá eins og uppfyllingu Hollywood- draumanna. Fæstar þeirra höfðu nokkurt hugboð um þann skilning, sem útlendingar leggja í kunn- ingsskap, stofnaðan á götunni, eða kvöldsetur kvenna á veitingastöðum, sem hermenn venja kom- ur sínar á. Einn maður reyndi að hafa vit fyrir óvitunum. Lögreglustjórinn í Reykjavík lét flytja telpur á barnaverndaraldri heim, ef þær sáust seint á kvöld- in á vakki kring um herbúðir. En fyrir það hlaut hann megna óþökk borgaranna. Og tveir hinna æðstu engilsaxnesku herforingja komu og tilkynntu honum, að ef lögregluþjónarnir liéldu áfram að skipta sér af liermannafélagsskap telpnanna, mættu þeir búast við að verða reknir í gegn með byssu- stingjum og síðan fleygt út í Tjörn. Þannig voru skilyrðin fyrir eftirliti lögreglunnar fyrsta og örlagaríkasta árið. Og gott fordæmi liinn- ar eldri kynslóðar brást einnig. Ýmsar þær fjöl- skyldur í þessu litla kunningsskaparins bæjarfé- lagi, sem skilyrði höfðu til að verða til fyrirmynd- ar, opnuðh heimili sín fyrir liernámsmönnum lands- ins og gengu í lierbúðir þeirra til þess að sitja boðsveislur. Jafnvel sumir helztu trúnaðarmenn þjóðarinnar létu sér þetta sæma. Hvemig átti hin illa viðbúna, unga kynslóð, að varast það, að hún væri að „setja blett á þjóðina“ og „svíkja föðurlandið“ þegar hún hagaði sér eins? 1 byrjun annars bernámsársins var óhugnanlega mikill hluti kvenþjóðar höfuðstaðirins genginn í vændiskvennasveit liersins og hundmð heimila ann. aðhvort algerlega uppleyst af þessum völdum eða siðferðilega spillt og gegnsýrð erlendum anda. Þá ramskaði ríkisstjórnin loksins og vildi reyna að bjarga þeim stúlkubömum, sem bjargað yrði. En það var um seinan. Almenningsálitið var orðið lamað af áhrifum frá setuliðinu og þeim íslenzk- um öflum, sem beittu sér í þágu þess. Hernám Bandaríkjanna var skollið á, og ákvörðun okkar um að fallast á að það yrði kallað hervernd, eitraði allan jarðveg fyrir andróðri gegn hermanna- samneyti. Það var erfitt að færa rök fyrir því, að þjóðinni bæri að forðast þá menn, sem yfirlýst var að hún hefði kallað liingað til lijálpar í neyð. Hugarfarssýkingin var svo augljós, að svokölluð upplýsingadeild hersins, sem hafði það hlutverk að eyða með launráðum viðnámi Islendinga gegn hin- um ensku yfirráðum, áræddi að koma fram í dags- birtuna og andmæla hreinlega afskiptum ríkis- stjórnar og lögreglu af kvenna- og barnablótunum. Yfirmaður deildarinnar kallaði blaðamenn á sinn fund, og sagði þeim slefsögur um lögreglustjórann og aðstoðarfólk hans. Síðan afbenti liann þeim „skýrslu“, er hann hafði búið til um kvennamálin. Komst hann þar að þeirri niðurstöðu, að siðferðis- ástand í bænum hefði batnað við komu hersins. Plagg þetta var svo óskammfeilið, að óhugsandi hefði mátt telja, að nokkurt reykvískt blað fengist til að birta það. En þau gerðu það öll. Aðeins eitt þeirra maldaði feimnislega í móinn. Og almenn- ingsálitið hallaðist á sveif með njósnardeildinni. Tilraun ríkisstjórnarinnar þótti dónaskapur við út- lendingana og móðgun við fósturlandsins Freyju. Það var því fyrirsjáanlegt, að öll viðleitni til að ná börnunum úr lierja höndum myndíi xerða brotin á bak aftur. Eigi að síður var ákveðið að reyna að hamla móti straumnum. Ný lög voru sett, ungmennaeftirlit hafið, ung- mennadómstóll settur á stofn og uppeldisheimili opnað. Allt fór þetta eins og efni stóðu til. Áróðursvélar hinna tveggja stórlierja nöguðu og grófu undan starfseminni, þangað til enginn stjómmálaflokkur virtist þora að bendla sig við hana. Kvenfólk krossaði sig yfir henni. Andlegir leiðtogar höfðu engan tíma til að sinna henni. Barnaverndarnefndin lagðist á móti henni. Bamaverndarráðið þvoði hend- ur sínar. Fyrsta ríkisstjórnin fór frá völdum án þess að búa henni forsvaranlegan starfsgrundvöll. Hin næsta fékkst ekki til að sinna henni. Sú þriðja reif hana niður frá granni, bæði uppeldisheimilið, dóm- stólinn og eftirlitið, og lagði lögin á hilluna. Hin fjórða, sem nú situr, lagði blessun sína yfir þessa miklu rausn fyrirrennara sinna við setulið vinaþjóð- anna. Þannig höfum við hlúð að litlu stúlkunum ljúfu, sem eiga að bera næstu kynslóð á brjósti sér. Drengjtmum reyndumst við eins. Þeir dáðu hermennina eins og hetjur og tóku þá sér til fyrirmyndar á marga lund. Snáðar á öll- um aldri gerðust setuliðinu handgengnir, sníktu sér sælgæti, tóbak og peninga, eða öfluðu þessa fyr- ir margskonar sendiferðir og greiða, sem munu hafa verið misjafnlega hollir. Þeir fylltust brenn- andi áhuga fyrir kvennamálum dátanna, njósnuðu um þau og urðu sjónarvottar að allskonar and- styggð. Lítt var rannsakað, bversu mikil brögð væra að siðspillandi athæfi hermanna gagnvart drengj- um, en þó eru til um slíkt svo viðbjóðslegar skýrsl- ur, að óhæfa væri að setja þær á prent. Jafnframt hinum nýju og ljótu hugmyndum um það, hvernig eftirsóknarverðast væri að verja tóm- stundunum, fékk hávaðinn af dengjum í bænum mikla og óvænta peninga milli handa. I „Breta- vinnunni“ var fjölda þeirra goldið geysihátt kaup fyrir litla áreynslu eða jafnvel fyrir að svíkjast um að vinna. Fjölmargir drengir fengu full umráð yfir þessu fé og vörðu því til þess að veita sér allt, sem lijartað girntist. 1 aðra drengi mokuðu stríðs- gróðaölvaðir foreldrar of fjár. Allt varð þetta til þess að skapa drengjunum rangar hugmyndir um lieilbrigð vinnubrögð og gildi peninga, og að venja þá á að neita sér ekki um neitt. Margir barnungir drengir tóku að hneygjast til áfengisnautnar. Hverskonar borgárar er líklegt að þessir dreng- ir verði? Við vitum það öll. Ríkiss'tjórnendur, bæjarstjórnendur, foreldrar, kennarar, prestar, og við, fullorðnir borgarar þessa bæjarfélags, höfum öll vitað það allan hemáms- tímann sem af er, að hinir uppvaxandi karlmenn ættu við uppeldisskilyrði að búa, er leiða hlytu til þess að óhóflegur fjöldi þeirra yrðu kærúlausir, svikulir, latir og nautnasjúkir. Og að þegar pen- ingaflóðið rénaði myndu þeir fara að stela. En við höfðum engan tíma til að skifta okkur um það. Við gerðum ekkert til að hindra hermanna. kynni drengjanna, ekkert til að skerða fjárráð þeirra, ekkert til að forða þeim frá áfengisböli. Ríkissjóður græðir peninga á því að selja þess- um tilvonandi feðrum og uppalendum næstu kyn- slóðar áfengi. Nú er fjármagnið að minnka. Hermönnum hef- ir' fækkað og þar með fjáröflunarleiðum drengj- anna. Sumir þeirra eru þegar komnir inn á þann veg, sem við höfum fyrirbúið þeim. Þeir stela. Þeir gera það meira að segja í Jesú nafni. Við vitum ennfremur með óyggjandi vissu, að ef við höldum áfram að láta reka á reiðanum, þá spretta hér upp glæpaflokkar að amerískri gangster- fyrirmynd undir eins og harðnar í ári. Þá má þakka fyrir, ef drengir okkar láta sér nægja þjófnað og innbrot. Morðöld siglir sennilega í kjölfarið. Og stúlkubörnin strika áleiðis að sínum leiðar- lokum. Hermannatelpurnar, sem ekki komast af landi burt, keppa nú heiftarlega um hylli hermannanna, 6em eftir era. Bílfarmar af Reykjavíkurstúlkum eru enn fluttir frá ameríska rauðakrossskálanum við Hringbraut suður á Reykjanes til hermannadans- leikja. Barnungar stúlkur sitja á veitingastofunum á Hótel Borg með starandi augu og drekka whisky. Ef að líkum lætur, verður þess ekki langt að bíða, að fermingarstúlkur bjóði fram blíðu sína á göt- unum fyrir svartadauðaflösku. Eigum við að láta þetta hafa sinn gang? Við vitum öll, að þá fórnum við meiru en lífs- hamingju þeirra drengja og stúlkna, sem þegar eru komin í sorpið. Við fórnum um leið voninni um hamingju og sjálfstæði íslands. Því vesaldómurinn breiðist óðfluga út, ef ekk- ert er gert til að hefta hann. Hann hrífur æ fleiri ungmenni með sér og teygir angana að hvers manns dyram. Með hverju sinnileysisárinu versna horf- urnar á því að böm, sem inn í samfélag okkar fæð- ast, komist siðferðilega ósködduð á fullorðinsár. Sjálfstæði þjóðarinnar er nú ógnað af erlendu valdi, og svo mun verða á meðan hnefarétturinn er við stjóm í heiminum. Ekkert getur bjargað því annað en ósveigjanleg samtök okkar um að fall- ast aldrei á erlend yfirráð eða ítök í nokkurri mynd, Því miður er loftið þegar lævi blandið í þessu efni, þótt ekki séu liðin nema tvö ár frá stofnun lýð- veldis okkar. Ófeimnar raddir heyrast hvetja til sölu á landsréttindum í von um náðarbrauð frá Vesturheimi. Og það íslenzkt fólk er til sem tekur undir þessa eggjun með því að bjóða háværasta og óskammfeilnasta agentinn fram til þings. Svona er hið sárþráða sjálfstæði öraggt í höndum okkar íslendinga nú. Hvernig ætla menn þá að um það fari, ef það kemst að verulegu leyti í um- sjá afbrotamanna og vændiskvenna? Úr nýútkomnum heilbrigðisskýrslum. (Fyrir árið 1942). Héraðslæknirinn í Borgarnesi segir: „Setuliðið var hér allt árið, fyrst enskt og frá því í maí amerískt. Böm voru mikið utan í hermönn- unum og vita-tilgangslaust að reyna að hindra slíkt. Hermennirnir höfðu gnægð af sælgæti, ávöxtum. o. fl., sem ýmist er bannaður innflutningur á tii þarfa landsins barna eða hindruð framreiðsla á með skömmtun, sem að engu gagni kemur .. . Eins og áður er getið liændust börn mjög að her- mönnunum, einkum vegna sælgætis- og ávaxtagjafa. Drógu krakkamir svo þessa vini sína með sér inn, í hús og stofnuðu með því til kynna, þar sem þess hefði ekki orðið óskað annars. . .. “ Héraðslæknirinn í Keflavík segir: „Áfengisnautn í kauptúnunum í héraðinu er mjög mikil. Dansleikir illræmdir og plássunum til skammar, enda venjulega með slagsmálum og meið- ingum, og læknir iðulega vakinn tvisvar til þrisvar sinnum á nóttu til að gera að sárum slasaðra. Eru að vísu sumt af því aðkomumenn úr Hafnarfirði og Reykjavík. Þarf þetta umbóta við“. Héraðslæknirinn í Hafnarfirði segir: „Ég kom hingað í júlímánuði frá Isafirði, og voru það mikil viðbrigði. Ég sá fáa íslendinga, en allsstaðar var yfirfullt af amerískum hermönnum og amerískum „bröggum“. Þá er ég hafði verið nokkurn tíma og áttað mig nokkuð á bæjarlífinu, fannst mér hér vera margt undarlegt og andstýggi- legt. Hér úði og grúði af alls konar knæpum. Virt- ust þær eingöngu sóttar af setuliðsmönnum og ís- lenzkum „dömum“. Á spjöldum úti fyrir stóð, hvað upp á væri að bjóða. Ein knæpan var þó allra verst. Hún heitir ... og er af Hótel .. . ættinni í Reykjavík. Þar er dansað og drukkið á hverju kvöldi, en aðgangur aðeins leyfður hermönnum og íslenzkum „dömum“. Virtist vera nóg af þeim þar, fullum og hálffullum. Það undraði mig stór- lega, að bæjarráð Hafnarfjarðar skyldi geta þoiað að hafa aðra eins knæpu og þessa í sínu bæjarfé- lagi. En sem sagt, allt virtist vera í þessu fína lagi. Sennilega fannst mér einum eitthvað athugavert við þetta og var kannske vegna þess, að ég kom úr setuliðslausum bæ og var öllu þessu „ástandi“ ókunnugur. Síðar var mér sagt, að setuliðsmenn- irnir kölluðu hinn umrædda veitingastað sama nafni og illræmdustu alþjóöamelluknæpu í Kína“.

x

Mannbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mannbjörg
https://timarit.is/publication/1966

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.