Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Síða 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR – HAFNFIRSK ÆSKA | FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2024
Æskan er framtíð þessa lands
og því mikilvægt að hlúa vel að
henni. Í Hafnarfirði, eins og
annars staðar, er það gert á
margvíslegan hátt og þá helst í
gegnum skólakerfið. Frjáls
félagasamtök og íþróttafélög eru
einnig mikilvægur þáttur á leið
barna að góðum andlegum og líkamlegum þroska
og mikilvægt að börn fái að njóta fjölbreytts
tómstundastarf. Umhverfið okkar skiptir einnig
miklu máli og Hafnarfjörður státar af glæsilegu
umhverfi sem mikilvægt er að varðveita og auka
aðgengi að. En mikilvægust er þó fjölskyldan þar
sem ábyrgð foreldranna er mikil. Þau eru
fyrirmyndin og umræðuefnið við eldhúsborðið síast
inn í forvitinn huga barnsins.
Kostnaður við tómstundir barna hefur hækkað
mikið á undanförnum áratugum og þó niðurgreiðslur
bæjarins séu miklar, duga þær í lang flestum
tilfellum aðeins fyrir eina tómstund og jafnvel ekki
að fullu. Þetta getur valdið því að börn fá ekki að
kynnast eins fjölbreyttu tómstundastarfi og æskilegt
væri og afreksstefna gerir miklar kröfur, jafnvel til
ungra barna, sem einnig verður á stundum til þess
að börn komast ekki í nema eina grein.
Félögin í bænum hafa þó í auknum mæli beint
sjónum sínum að yngri börnum og hefur framboð
fyrir t.d. elstu leikskólabörnin aukist. Í síðasta
sérblaði um hafnfirskra æsku vakti Kolbrún
Kristínardóttir athygli á mikilvægi útiveru og
samveru fjölskyldunnar og er rétt að taka undir þau
góðu hvatningarorð. Við foreldrar þekkjum eflaust
flest að hafa upplifað tímaskort í erli vinnu og erils
við að koma upp heimili fyrir fjölskylduna.
Fjölskyldur gert gert miklu meira með börnum
sínum og það þarf ekki að vera flókið. Hver
samvera er mikilvæg og stuttar gönguferðir, leikir
úti í garði, sundferðir og jafnvel kósístund í sófanum
fyrir framan sjónvarpið getur verið gæðastund.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Ritstjórn og auglýsingar: 896 4613
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Póstdreifing
ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866
www.fjardarfrettir.is
www.facebook.com/fjardarfrettir.is
Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
HÓLSHRAUNI 2 | 555 3325
millihrauna.is | facebook.com/MilliHrauna
MILLI HRAUNA
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU
OPIÐ VIRKA DAGA
KL. 11-13:30
Skilafrestur 24. september
Skila má lausnarblöðum
í Ráðhúsinu v/ Strandgötu
https:/ratleikur.fjardarfrettir.is
Rat
leikur
Hafnarfjarðar
Sumarið 2024
HEILSUBÆRINNHafnar örður
ratleikur.fjardarfrettir.is
RATLEIKUR HAFNARFJARÐAR 2024
Ú
tg
ef
an
di
:
H
Ö
N
N
U
N
A
RH
Ú
SI
Ð
E
H
F
- 8
96
4
61
3
Ratleikurinn stendur til 24. september 2024. Eftir það er vel þegið að merkjunum sé skilað í þjónustuver bæjarins í Ráðhúsinu. Látið gjarnan vita á Facebook hóp þátttaend ef þið hafið tekið merki og skilað.
fréttamiðill Hafnfirðinga
HEILSUBÆRINNHafnar örður
Aðalstyrktaraðili:
Samstarfsaðili:
facebook.com/ratleikurVinsamlegast færið merkið EKKI úr stað!
27
RAT-024
27. FRÍTT KORT
Ratleikur Hafnarfjarðar
Ratleikur
Uppskeruhátíð 2. október
• Þrenn verðlaun verða veitt í þremur flokkum!
• Allir sem skila og mæta geta átt von
á útdráttarverðlaunum!
Í AÐALSAL HAFNARBORGAR KL. 18.30
„Ungt fólk þarf að hafa tilgang, eiga vini og vera
partur af samfélagi,“ segir Geir Bjarnason, íþrótta-
og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar.
Tvö ný ungmennahús bíða í startholunum fyrir
unga Hafnfirðinga. Annað þeirra er í gamla Lækjar-
skóla, Nýsköpunarsetrinu. Þar verður áhersla lögð á
listir og sköpun. Dagvistun fyrir fötluð ungmenni,
sem hafa lokið framhaldsskóla, verður svo sett upp á
Selhellu 7, þar sem Brettafélag Hafnarfjarðar er
einnig til húsa. Þar verður einnig hópa- og félagsstarf
fyrir ólíka hópa á kvöldin.
„Þessi tvö hús taka við af Hamrinum,“ segir Geir
og að blásið verði til sóknar. „Meira en helmingi
meira pláss. Þjónustan verður fjölbreyttari og
opnunartíminn samtals lengri,“ segir hann. „Já, það
á að breyta þjónustunni, efla og gefa fleirum tækifæri
á að taka þátt. Það tekur tíma að setja upp starfsemina
í nýjum húsum og við viljum gera það rétt,“ segir
Geir. Því verður blásið til Ungmennaþings þriðju-
daginn 24. september í Flensborg.
UNGA FÓLKIÐ SKIPTIR ÖLLU MÁLI
„Við ætlum að bjóða öllum ungmennum 16-24 ára
á þingið. Við viljum heyra hvernig þau telja að
þjónustan verði sem best.“ Starfshópur leggi nú
línurnar, hitti forsvarsmenn Hins hússins og Mosans í
Mosfellsbæ svo starfið verði sniðið að hópunum og
nái einnig til jaðarhópa.
„Þetta unga fólk skiptir okkur máli,“ segir Geir og
að einnig verði leitað til fatlaðra ungmenna og þeirra
sem eru af erlendu bergi brotin og taki hugsanlega
síður þátt á svona þingi. Verið sé að ráða starfsfólk og
búist við að starfsemin hefjist í október.
„Já, við réðumst í breytingar og vinnum nú að því
skýra markmiði að félagsstarf unga fólksins verði
öflugra. Við ætlum að gera betur fyrir hafnfirsk
ungmenni. Þessi þjónusta skiptir miklu máli, því ungt
fólk þarf að hittast. Það þarf að berjast gegn
einangrun og gefa þeim tækifæri á að læra og eflast
saman,“ segir hann.
EKKI EIGI AÐ ÓTTAST BREYTINGAR
„Það skiptir svo miklu máli að vera ekki hrædd við
breytingar. Við verðum að fylgja tíðarandanum. Þess
vegna verða ungmennahúsin að vera á tánum og
fylgja því sem er efst á baugi hverju sinni. Núna eiga
þau til að mynda að ræða um ofbeldismenningu rétt
eins og í skólunum og í félagsmiðstöðvunum,“ segir
hann.
„Þegar ungt fólk hefur ekki aðstöðu til að skapa
tónlist, þá er það okkar að hlaupa undir bagga, þegar
þröngt er um atvinnulífið eigum við að bjóða störf.
Þetta er markmiðið og afar mikilvægt að við höfum
unga fólkið með okkur til að finna réttu lausnina
hverju sinni,“ segir Geir.
„Ungmennahúsin eru aðstaða þar sem ungt fólk er
þjálfað í samskiptum og félagsleg tengslum sem
hjálpar þeim að fóta sig í lífinu. Það skiptir okkur því
miklu máli að vinna hratt að því að opna húsin og það
ætlum við að gera,“ segir Geir.
Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar,
segir blásið til sóknar í þjónustu við unga fólk bæjarins
Tvö ungmennahús verða opnuð
16-24 ára Hafnfirðingar eru boðaðir á Ungmennaþing í Flensborg til
að hafa áhrif á þjónustu tveggja nýrra ungmennahúsa. Stefnt er að
því að bæta þjónustuna í stærra húsnæði
KYNNING
fjardarfrettir.is/felog
Er þitt félag rétt skráð? | Sendu ábendingu á fjardarfrettir@fjardarfrettir.is