Fjarðarfréttir - 12.09.2024, Blaðsíða 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR – HAFNFIRSK ÆSKA | FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2024
Umhverfis- og framkvæmdaráð
samþykkti á fundi sínum í síðustu viku
að fela umhverfis- og skipulagssviði að
fá óháðan ráðgjafa til að vinna tillögur
að bættu og öruggara umferðarflæði
við hringtorgið við Lækjargötu til
bráðabirgða eða þar til varanleg lausn á
kaflanum frá Lækjargötu að Álftanes-
vegi verður að veruleika.
Í bókun ráðsins kemur fram að
umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnar-
fjarðarkaupstaðar, leggi áherslu á að
framkvæmdaáætlun samgöngu sátt-
málans standist enda brýnt að leyst
verði úr fyrrgreindum umferðarvanda
við Reykjanesbrautina sem valdi
óheyrilegum umferðartöfum og slíti
íbúðahverfi bæjarins í sundur.
Gríðarlegar umferðartafir myndast
oft á Reykjanesbraut í brekkunni frá
kirkjugarðinum og að hringtorginu við
Lækjartorgi. Hin mikla umferð er
einnig þess valdandi að íbúar í Setbergi
eiga erfitt með að komast í önnur hverfi
bæjarins.
Vandamálið endar reyndar ekki við
hringtorgið því miklar umferðartafir
eru einnig frá torginu og að gatna-
mótunum við Kaplakrika.
20 MILLJARÐAR TIL
VERKSINS SAMKVÆMT
SAMGÖNGUSÁTTMÁLA
Fagnaði ráðið jafnframt uppfærðum
og raunhæfum samgöngusáttmála
höfuðborgarsvæðisins. Í honum er
áætlað að um 20 milljarðar verði settir í
bráðnauðsynlegar úrbætur á kaflanum
frá hringtorginu við Lækjargötu norður
fyrir Kaplakrika að Álftanesvegi (við
Góu).
REYKJANESBRAUT Í STOKK
EÐA Í GÖNG UNDIR
SETBERGSHAMARINN
Umhverfis- og framkvæmdaráð
leggur áherslu á að greining á kostum
þess að setja hluta Reykjanesbrautar í
stokk eða göng undir Setbergshamarinn
verði tilbúin sem fyrst.
ALMENNINGS SAMGÖNGUR
BESTA LEIÐIN
Segir í bókun ráðsins að samhliða
úrbótum í stofnvegum verði að koma
fram raunhæfar tillögur um almennings-
samgöngur til og frá Hafnarfirði enda
skilvirkar almenningssamgöngur besta
leiðin til umhverfisvænna samgangna.
Hafnfirðingurinn Þórður Bjarni
Guðjónsson, sendi fulltrúi fluttist þann
1. ágúst sl., frá utanríkisráðuneytinu til
starfa sem aðalræðismaður Íslands í
Nuuk. Hann tekur við af Geir Oddssyni,
aðal ræðismanni sem fluttist til starfa í
ráðuneytið.
Þórður Bjarni hefur m.a. verið aðal-
ræðismaður í Færeyjum og í Kanada en
hefur starfað í utan ríkis ráðuneytinu síðan
2019. Er hann með aðsetur í Nuuk.
Í ljósi athugasemda frá íbúum fellst
umhverfis- og framkvæmdaráð ekki á
framlagða tillögu um frisbígolfvöll í
Áslandi og lagði ráðið til að aðrir staðir í
bæjarlandinu verði skoðaðir í endur-
skoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar sem
nú stendur yfir.
Frisbígolffélag Hafnarfjarðar hafði
áður óskað eftir að gerður verði völlur
við SV hluta Hvaleyrarvatns og í
hlíðum Selhöfða en Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar lagðist hart gegn því
vegna mögulegrar skemmda á trjám og
var fallið frá því.
Þá var lögð fram tillaga í samráði við
íþróttafulltrúa um völl í landi Áss, utan
friðlands Ástjarnar, 18 holu keppnisvöll
sem í raun er ekkert frábrugðinn 18
holu velli, þar sem brautirnar áttu að
liggja um skógarsvæði í landi Áss og
undir hlíðum Ásfjalls. Var tekið fram að
hanna ætti völlinn svo notkun hans
myndi ekki trufla umferð gangandi og
hjólandi á svæðinu.
Kynningarbréf sem íbúum var kynnt
var ekki grenndarkynning í skilningi
skipulagslaga og athugasemdum hefur
ekki verið svarað eins og þarf að gera
við grenndarkynningu. Því er ekki hægt
að sjá á hvaða forsendum umhverfis-
og framkvæmdaráð tók sína ákvörðun.
Vilja bráðabirgða lausn
við Lækjargötu
Reykjanesbraut í stokk eða í göng
Þórður Bjarni nýr aðal
ræðis maður á Grænlandi
Höfnuðu frisbígolfvelli
vegna mótmæla íbúa
Nánar á:
Frí
stunda
styrkir
Mánaðarlegur 4.750 kr. styrkur
Frístundastyrkir gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði
kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð
efnahag foreldra. Nýta má styrkinn frá 1. janúar árið sem
barn verður 6 ára til og með 31. desember árið sem það
verður 18 ára. Frá 14 ára aldri er hægt að nýta styrkinn
upp í líkamsræktarkort eða sambærileg aðgangskort sem
gilda í 3 mánuði eða lengur.
hfj.is/fristundastyrkir