Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Qupperneq 4

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Qupperneq 4
Malaría meðal skæðustu sjúkdóma Mannfólk víða um hcim býr við hættuna al' moskitóbitiim í millj- arðavís. \l þcim veikjast 3-500 milljónir manna á hvcrju ári og 1 -3 milljónir manna deyja. Þar eru konur og börn í meirihluta. Þessi fjöldi er ekki fjarri þeim sem deyr af völdum alnæmis en malaría hefur ekki fengið sömu almennu at- hygli. Um 40% jarðarbúa búa á malar- íusvæðum og eru þess vegna i sífelldri hættu. Samt er ekki varið nema 150 milljónum dollara til malaríurann- sókna í heiminum, aðeins 5% af þvi sem bara Bandaríkin hyggjast verja til alnæmirannsókna árið 2003. Höfund- ur greinar um þetta efni i júníhefti tímaritsins World Wateh segir þetta ill- skiljanlegt í ljósi þess hve malaria breiðist hratt út. Fluga sem ber sýkil- inn getur smitað eitt hundrað manns. Til samanburðar er manneskja með mislinga talin smita 12-14 aðrar að meðaltali og hver alnæmisjúklingur rúmlega eina aðra manneskju. DDT og ónæmir sniklar Malaríu hefur verið útrýmt af stór- um svæðum en annarsstaðar hefur hún breiðst út. Malaría var áður sveita- sjúkdómur en fólksflutningur úr sveit í borg, með tilheyrandi fátækrahverf- um, opnum ræsum og óþrifnaði, hefur skapað nýjan vettvang. I áratugi hefur DDT skordýraeitrið verið notað í bar- áttunni gegn malaríu enda hefur hún miðast við að drepa flugurnar sem bera sníklana. En með alþjóðasamn- ingi er nú hætt að framleiða og nota DDT í flestum löndum hvort sem er almennt í landbúnaði eða gegn malar- íu. Það er þó enn mikið notað í 19 löndum, þ.a. 11 í Afríku og 31 þeirra landa sem skrifuðu undir samning um bann við því vilja i neyð geta notað DDT gegn malaríu. Þrátt fyrir góðan árangur hér áður, í að útrýma malaríu með eitrinu, sýnir reynslan að þar sem DDT er notað i annað sinn virkar eitr- ið ekki á flugurnar nema í 7 mánuði á móti 7 árum þar sem það er notað í fyrsta sinn. Sníklarnir sem valda veik- inni hafa myndað ónæmi fyrir eitrinu og þeim rúma tug lyfjategunda sem til er við malaríu. Malaría íþyngir efnahag Malaría er talin fýrirfmnast í 105 löndum. Hún er þó skæðust í Afríku sunnan Sahara en þar verða 90% smit- og dánartilfella í heiminum. 30% af ungbarnadauða á svæðinu má rekja til malaríu. Tansaníubúi er bitinn oftar á einni nóttu en Vietnami eða Tælend- ingur á heilu ári. Baráttan við malaríu kostar Afrikuþjóðir 3 til 12 milljarða dollara á ári. Samkvæmt hagfræðiút- reikningum er talið að þjóðartekjur í Afríku hefðu verið 35% hærri nú ef tekist hefði með átaki Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar sem íjallað er um í ramrna á síðunni að útrýma malaríu. Hún var þá reyndar svo skæð í Afríku að Alþjóða heilbrigðisstofnun- in taldi sig bara geta ráðið við átak í örfáum löndum álfunnar. Arangur þar var takmarkaður en DDT náði fótfestu sem skordýraeitur. Það er líka víða not- að til malaríuvarnar og þá með þvi að sprauta því innandyra á húsveggi. Fyr- ir vikið eru flugur mjög víða t.d. í Vest- ur-Afriku orðnar ónæmar fyrir eitrinu. Einföld net geta bjargað Vegna ónæmis er farið að mæla með því að nota flugnanet i stað eit- urs. Flugurnar stinga mest á kvöldin og nóttunni og netanotkun getur dregið mjög úr bitum. Tilraun meðal barna hefur sýnt að hægt er að draga úr smiti um 25-40% með því að nota net yfir rúmum. Netin ráðast ekki að rótum vandans en geta breytt stór- felldu vandamáli í viðráðanlegt við- fangsefni fyrir heilsustofnanir þessara landa. Því er óviðunandi að net skuli vera illfáanleg í stórum hluta Mið- og Suður Afríku og í 28 löndum eru þau auk þess háð tollum og sköttum. 44 Afríkulönd undirrituðu samning árið 2000 þess efnis að afnema alla tolla og skatta af flugnanetum. 13 hafa gert það, í það minnsta lækkað þá. Frá und- irritun samningsins um að aflétta sköttum af flugnanetum hafa 2-5 millj- ónir Afríkubúa dáið úr malaríu. Að búa við malaríu, nýtt átak Nýtt átak sem Afríkulönd og marg- ar alþjóðastofnanir standa fyrir beinir sjónum að forvörnum á heimilum og í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Það felst í því að fella niður tolla af netum og eitri sem borið er á þau og af malaríu- lyfjum. Lönd sem ekki gera þetta hafa veikari rök fyrir því að vilja halda áfram að nota DDT. Kenna þarf fólki nýjar aðferðir við húsagerð en margir leirkofar eru alsettir holum og sprung- um sem vatn safnast í og lirfur klekjast í. Einnig mætti breiða út sérstakar plöntutegundir sem hrekja moskítófl- ugur burt. Hvatt er til þess að malaríu- lyfjum og afsláttar- eða úttektarmiðum Smitleiðir uppgötvaðar árið 1897 Orðið malaría er úr ítölsku og þýðir slæmt loft enda grasser- aði flugan í mýrum og fúafenjum fyrri tíma. Þegar Bandaríkjamenn grófu Panamaskurðinn var miklu fé og fyrirhöfn varið í að þurrka upp votlendi og byrgja vatnsból og bústaði með netum. Frakkar reyndu að grafa skurð í gegn- um Panama áður en menn áttuðu sig á tengslum milli flugu og smits og misstu milli 10.000 og 20.000 manns úr malaríu. í seinni heimsstyrjöldinni var DDT notað til að losna við lýs en síðar vöfðust heilu svæðin eiturmekki sem m.a. ruddi Banda- mönnum braut um malaríusvæði Suður-Evrópu, Norður-Afr- íku og Asíu. Sá sem uppgötvaði smitleiðir malaríu 1897 fékk Nóbelsverð- laun.

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.