Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Qupperneq 16
19 þrælabörn leyst úr ánauð
80 skólabörn bíða stuðnings. Ert þú aflögufær?
Skólaganga er vísasta leiðin til að útrýma barnaþrælkun
450 manns fylgdust ineð því við hátíð-
lega athöfn þegar SAM leysti 19 þræla-
börn úr ánauð og skráði þau í skóla þarm
I. júlí. Athöfnin er liður í þrælabarna-
verkefni SAM sem Hjálparstarf kirkjunn-
ar íjármagnar. Þar sem tekist hefur að
stöðva barnaþrælkun hefur það verið gert
með skólagöngu i raun. Þess vegna styð-
ur Hjálparstarfið fjölda barna til náms og
nú bíða 80 skólabörn þess að styrktarað-
ilar á Islandi gefi sig fram. Hringdu strax,
það kostar enn minna en þú heldur!
Þrælabörnin sem leyst voru, voru búin
undir skólagöngu í kvöldskóla SAM, og
foreldrar gerðir ábyrgir fyrir framtíð
þeirra utan vefstofanna. Mikil vinna felst í
áróðri gegn þrælkuninni jafnt í foreldra-
hópnum, meðal almennings, við vinnu-
veitendur og gagnvart yfirvöldum. Við-
staddir athöfnina voru fulltrúar yfirvalda
í menntamálum sem lofuðu stuðningi við
verkefnið, og 150 böm úr kvöldskólum
SAM sem sjá fram á að losna sjálf ein-
hvern daginn.
Að sjá og snerta tölvu
Þrælabörnin í kvöldskóla SAM höfðu
mikið heyrt talað um tölvur og vildu fá að
sjá þær. SAM skipulagði tölvukynningu í
tölvuveri sem ætlað er unglingum í námi
hjá samtökunum. Þar sagði kennarinn frá
því hvað hægt er að gera með tölvum.
Börnin urðu stóreygðari við hvert orð og
vildu fá að snerta tölvurnar. Það fengu
þau og fengu að prófa nokkra tölvuleiki.
Starfsmenn voru hálf hrærðir yfir undrun
og áhuga barnanna. Er ædunin að nota
þetta til þess að vekja áhuga fleiri barna á
námi og láta þau þrýsta á foreldra sína
um að fá að fara í skóla.
Lögfræðiaðstoð og Ijármála-
fræðsla
Liður í þrælabarnaverkefninu er að
styðja foreldra í baráttunni fyrir réttind-
um sínum og auknum tekjum. SAM hefur
komið því í kring að foreldrar fái að hitta
lögmenn og dómara og fái aðstoð þeirra
við að leysa börn sín úr ánauð. Tilgangur
SAM með þessu er ekki síður að vekja at-
hygli fjölmiðla á málefnum þrælabarna.
Þá fékk SAM til sín bankastarfsmann sem
útskýrði fyrir sjálfshjálparhópi foreldra
hvernig halda ætti utan um fjármál heim-
ilisins.
Muthulaksmi er 10 ára görnul og hefur unnið við
vefnað í 6 mánuði. Móðir hennar tók tæplega
4.000 kr. til þess að halda minningarathöfn um lát-
inn eiginmann sinn. Muthulaksmi varð trygging
fyrir láninu með 12 tíma vinnu á dag við vefstól-
inn. Hún var tekin úr skóla þar sem hún var efst í
sínum bekk. Starfsfólk SAM hitti móðurina marg-
sinnis áður en hún sannfærðis um að leyfa stelp-
unni að fara aftur í skólann. Móðirin fékk fjár-
hagsaðstoð til að greiða skuldina og leiðbeiningar
um hvemig hún gæti aukið tekjur sínar og haldið
börnunum frá þrælkun.
Satish er 12 ára og
hefur unnið við
vefnað í fjögur ár.
Pabbi hans þurfti
að taka um 12.000
kr. lán til þess að
greiða fyrir læknis-
meðferð konu sinn-
ar eftir mislukkaða
aðgerð. Satish afl-
aði um 600 kr. á
mánuði fyrir 12
tíma vinnudag, 7
daga vikunnar.
Með aðstoð frá
SAM er hann nú
kominn aftur í
skóla og gengur
í 5. bekk.
I help.is
Kannika er 11 ára og hefur unnið við vefnað í 6
mánuði. Foreldrar hennar höfðu ekki tekið lán en
létu hana sakir fátæktar vinna 12 tíma á dag til að
auka tekjur heimilisins. Starfsfólk SAM þurfti að
leggja hart að foreldrunum og verja miklum tíma
í að útskýra gildi menntunar áður en þeir létu til
leiðast að leyfa dótturinni að fara í skóla. Hún er
nú í 2. bekk. Foreldrar Kanniku er alls ekki eins-
dæmi. Segja má að engir foreldrar þessara fátæku
barna þekki til skólastarfs en vegna þrælabama-
verkefnisins eru fleiri og fleiri að átta sig á hverju
menntun getur breytt.