Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.02.1997, Page 3

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.02.1997, Page 3
Svar hefur nú borist við fjárbeiðni Samtakanna 78 til ríkisins. Að venju fengum við minna en um var sótt - en getum þó vel við unað. Starfsstyrkurinn verður 500 þúsund eða sama upphæð og var fyrir árið 1996 en þá hækkaði hann verulega frá fyrri árum. Auk þess er ánægjuefni að styrkurinn er nú í annað sinni afgreid- dur í fjárlögum í stað þess að vera innanbúðarmál Fé- lagsmálaráðuneytisins. Svar hefur ekki borist frá Reykjavíkurborg en starf- sstyrkur þeirra nam í fyrra 600 þús. kr. Vonandi náum við að halda þeirri upphæð þrátt fyrir yfirlýsingar um niðurskurð hjá borginni! Formaður starfsmanahóps, Kristín Sævarsdóttir, er í leyfi frá stjórnarstörfum um þessar mundir og hefur Rúnar Lund komið inn í hennar stað sem á- heyrnarfulltrúi starfsman- nahóps. Sigríöur Ósk, fulltrúi ungliðahóps hefur dregið sig í hlé og hefur ekki verið skipað í henn- arstað. ^ Nýju hóparnir innan Samtakanna 78, þ.e. „sjálfstyrkingahópurinn og samkynhneigdir og börn" lifa góðu lífi. Sem dæmi má nefna að á síðasta barnahópsfund mættu 19 manns. Fylgist með auglýs- ingum hópanna í fréttabréfinu - eða hafið samband við skrifstof- una og fáið upplýsingar um næstu fundi. Stjórn hefur fundað með Hrafn- hildi Gunnarsdóttur kvikmynda- gerðakonu til að skoða hug- myndir um gerð heimildamyndar um lesbíur og homma á íslandi. Málið er á byrjunarreit - en ef af verður, er stefnt að því að myndin verði tilbúin vorið 1998 á tuttugu ára afmæli samtakanna. Fulltrúar samtakanna hafa verið á skóla- og fræðslufundum að undanförnu, þ.á.m. hjá leikfélagi Fjölbrautarskólans í Breiðholti, 10. bekk Lauganesskóla, á með- ferðarheimilinu Stuðlum og meðferðarstöðinni Teigi. Afþakkað var boð á fund þar sem um- ræðuefnið átti að vera: „Á aö leyfa lesbíum og hommum að giftast?" It's too late, babe! Mikill fjöldi nema hefur sótt skrif- stofu samtakanna nú í janúar til að leita upplýsinga vegna verk- efnavinnslu. Kirkjan og krakkarnir eru greinilega vinsælustu rit- gerðarefnin í tengslum við sam- kynhneigð. í undirbúningi er dreifing á ungliðaveggspjöldunum í framhaldsskóla og sérskóla á höfuðborgar- svæðinu. Þeim var dreift víða sl. vetur og skilaði það sér vel. Ný myndbönd eru komin á bókasafnið - lítið við og athugið úrvalið. Samtökunum hefur verið boðin aðild að ráðstefnu um ofbeldi sem m.a. Kvennaathvarfið, Stíga- mót, Kvennalistinn og Karlakeðjan eru aðilar að - það er nauðsynlegt fyrir samtökin að gera sig gildandi meðal mannrétt- inda- og baráttuhópa landsins - það heldur málstaðnum úrfelum. í Berlín er verið að undirbúa sýningu á myndum frá giftingum samkynhneigðra. Myndir Báru frá mótttökunni í Borgarleik- húsinu eru fulltrúar Samtakanna 78. ngfhd urn a íii k y Sumarið 1996 skipaði prestastefna nefnd til að vinna að málefninu „Samkynhneigð og kirkja" og skyldi nefndin skila tillögum og greinargerð til kirkjuþings um haustið. vakna um samkynhneigð. Umræðan getur orðið brú milli ólíkra sjónarmiða í þessum efnum, sé gagnkvæmt umburðarlyndi haft að leiðarljósi." Hvað varðar starf nefndarinnar lýsti kirkjuþing því yfir að nefndin skyldi efna til "nærfærinnar og ein- lægrar umræðu og fræðslu i kirkjunni um málefni samkynhneigðra, sem hefjist þegar í stað í samvinnu við fræðsludeild kirkjunnar og þjóðmálanefnd. I kjöl- far þeirrar umræðu og fræðslu verði athugaðir möguleikar á að kirkjan móti atferli fyrir fyrirbæn og blessun á staðfestri samvist". Nefndin skilaði ýtarlegri greinargerð á tilsettum tíma og ákvað kirkjuþing að nefndin starfaði áfram á grundvelli ályktunar þingsins sem sagði m.a.: „Kirkjuþing hvetur til kærleika og umhyggju gagn- vart samkynhneigðum og að ósk þeirra sem og annarra minnihlutahópa um virðingu og mannréttin- di verði virt. Kirkjuþing fagnar opinskárri og hrein- skilinni umræðu um málefnið á kirkjulegum vett- vangi. Þingið telur að slík umræða efli skilning á málstað samkynhneigðra og hjálpi til við að finna viðunandi svör við þeim spumingum sem kunna að Jafnframt ákvað kirkjuþing að fulltrúi samkyn- hneigðra tæki sæti í nefndinrii og var Einar Orn Einarsson, organisti í Keflavík og stjórnarmaður í Samtökunum 78 skipaður af biskupi íslands. Aðrir í nefndinni eru Sr. Olafur Oddur Jónsson sóknar- prestur í Keflavík, Jónína Lísa Þorsteinsdóttir fræðslufulltrúi þjóðkirkjunnar á Norðurlandi og Arnfríður Einarsdóttir lögfræðingur í Garðabæ. í næsta fréttabréfi mun Einar Örn kynna undir- búningsvinnu nefndarinnar svo og fyrirhugað fræðsluátak innan kirkjunnar. SAMTAKAFRÉTTIR - SAMTÖKIN '78 3

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.