Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.02.1997, Blaðsíða 8

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.02.1997, Blaðsíða 8
ísland lögfestir stadfesta samvist - grftingu fyrir lesbíur og homma Island var fjórða landið til að lögfesta skráð sam- „Þetta mun gerbylta lífi lesbíu- og hommapara á búðarform svonefnda staðfesta samvist fyrir íslandi, sem hafa orðið fyrir miklu misrétti samkynhneigða. Andstaða meðal al- varðandi trygginga-, skatta- og erfða- mennings var hverfandi sagði tals- ''-x mál" sagði Margrét Pála Ólafsdóttir maður Alþingis við fréttamann. ' ' \ formaður Samtakanna 78 félags Lögin tóku gildi á frelsis- * | — _« \ lesbía og homma í útvarpsvið- deginum, gay-pride, þann 27. fc||\| Á*!* I fjPP \ tali. „Þetta óréttlæti hefur júní 1996. ij \ ^ ''' , verið mörgum harmleikur." Eitt hommapar og tvö les- ^ \ Hún bætti svo við í blaða- bíupör staðfestu samvist .. sína í Reykjavík þennan Sólveig dag. „Við lítum á þetta sem viðurkenningu á tilveru okkar" sagði brúðurinn Anna Sólveig Sigurjóns- dóttir við fréttamenn. Kona hennar Magnea Jónsdóttir bætti við „Þetta færir okkur ótrúlega frelsistilfinningu." Eftir gift- ''t-Á ingarnar var stór móttaka í and- dyri Borgarleikhússins. Þar forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir heiðursgestur. Hátíðarhöldin héldu áfram langt fram á nótt á eina Gay skemmtistaðnum á íslandi. GAY FRETTA ÁRSINS viðtali, „ísland er nú í framvarðarsveit landa sem veita lesbíum og hommum lagalega við- urkenningu á sambúð sinni með sameiginlegri ábyrgð og rétti." Líkt og lögin í Danmörku /Grænlandi, Svíþjóð og Noregi, gefur staðfest sam- vist öll réttindi hjónabandsins, að undanskyldri kirkjulegri vígslu, ættleiðingu og tækni- frjóvgun. Gagnstætt því, sem er í hinum löndunum geta makar tryggt sér sameiginlega forsjá barns hvors annars. Rex Wockner þýtt og endursagt PBS MM Margar hendur vinna Ioktóber 1995 stóð stjórn Samtakanna 78 fyrir fræðslu og kynningarnámskeiði fyrir þá sem höfðu áhuga á að starfa á vettvangi félagsins. Upp úr þessu námskeiði myndaðist kjarni sem kal-laður hefur verið Starfsmannahópur og hefur sinnt ráðgjafa- og kaffivöktum á Lindar- götunni. Þó að fólk hafi starfað mislengi er þó bróðurparturinn af núverandi starfsmannahóp fólk sem tók þátt í þessu fyrsta námskeiði. Síðastliðið haust stóð Starfsmannahópurinn fyrir helgar- námskeiði fyrir nýja og eldri meðlimi hópsins og þar fengum við ýmiskonar fræðslu og kynningu sem hefur komið sér vel í starfi okkar. Við erum spræk og samheldin en alltaf er þó þörf á að bæta og fjölga í hópnum. Skorum við nú á þig félagi góður að leggja þitt af mörkum í starfsemi félagsmiðstöð- var Samtakanna 78. í starfsmannahópnum er lögð áhersla á að hver og einn leggi þá vinnu sem hann/hún treystir sér til og hefur áhuga á. Allir nýjir starfsmenn byrja sínar fyrstu vaktir með reyndari félaga sér við hlið. Eftir því sem fleiri taka að sér eina kaffi- eða ráðgjafavakt í mánuði verður fjölbreytnin meiri og vinnan léttari. Kjörorð okkar er: „Margar hendur vinna létt verk". Þú sem lest þetta og vilt slást í hópinn; hafðu samband við Kristínu í síma 553 1804 eða Rúnar í síma 553 6858.

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.