Helsingjar - 01.07.1943, Síða 20

Helsingjar - 01.07.1943, Síða 20
2 Helsingjar mun þó aldrei nema meiru en því, að hæþt verði að kaupa það helzta, sem á íslenzka bókamarkaðinn kemur á þessu ári og svo að iylla í stærstu skörð safnsins af tókaútgáfu síðustu ára. Oþ þau skörð eru bæði mörg og stór eftir hma gífurlegu verðhækkun á bókum og bókbandi, sem sigldi í kjölfar stríðs- ins. Eigi þvi að vera möguleikar til að halda í horfið með bókasafnið næsta eða næstu ár, verður þess full þörf að ritið haldi áfram að koma út árlega. Hinn 300 króna árlegi styrkur frá þvi opinbera nær skammt með núverandi verðlagi á bókum, þó þess beri jafnframt að geta með þakklæti, að sumir hókaútgefendur oþ bóksalar hafa gefið afslátt við kaup til safnsins. Skal svo ekki orðlengja frekar forspjall þetta um tilgang ojj tilverurétt þessa rits. En af sérstökum ástæðum teljum við okkur skylt að beina nokkr- um orðum TIL AUGLÝ SENDA. ttM LEIÐ og við þökkum þær góðu W undirtektir ykkar allra, sem auglýs- ingarnar eigið í þessu riti, verðum við að taka það fram, að lengd hverrar auglýs- ingasíðu er nálægt þvx V/2 centimetra styttri en upphaflega var ákveðið og tek- ið fram í sýnishorni okkar. Orsökin til þessa er sú, að þegar aug- lýsingasiifnunin var um það bil 11111 garð gengin, kom það í ljós að hún Iiafði farið 111 jiig fram úr því, sem við höfðum vogað að áætla Og nú er það öllum vitanlegt, bæði auglýsendum og lesendum, að þegar 20— 30 auglýsingablaðsíður koma hver á eftir annarri í einhverju riti, — LESMALS- LAUSAR, fara þær að mestu leyti fyrir ofan garð og neðan lijá öllum þorra les- enda. Og að dreifa 30—40 auglýsingasíð- uni innan um lesmál svona lítils rits, var blátt áfram ógerningur, — óverjandi gagn- vart lesendum og kaupendum og óþol- andi hverjum þeim, sem nokkurn smekk hefir fyrir ytri frágang bóka og rita. . . . . Við tókum því það ráð að auka fyrir- hugað lesmál ritsins með smágreinuni og samtíningi, skemmtilegu aflestrar. Skylxli ]iað verða til skiptis efst og ncðst á hverri auglýsingasíðu. — Framhaldandi lesmál þcirrar tegundar, sem almenningur sízt lætur ólesið í blöðum og tímaritum. Til þessa þurftum við að lengja lesmál- ið á síðunum. En þó það væri gert svo mikið, sem pappírsstærðin leyfði, þá liriikk það ekki til, ef þessi lesmáls-aukn- ing átti að nema nokkru, og útlit síðunn- ar frá prentaralegu sjónarmiði átti að vera sæmilcgt. Við urðuni því jafnframt að stytta hina áætluðu auglýsingalengd á síðu hverri 11111 rúmlega I ij centimetra. Eyrir hálfrar síðu auglýsendur, nemur jietta aðeins V\ úr centimetra. Og þar eð þetta var eingöngu gcrt með hagsmuni auglýsendanna sjálfra fyrir aug- um, — og fyrir útgáfustjómina aðeins nokkur aukakostnaður, — þá gerum við ráð fyrir, að enginn þeirra veiti okkur átölur fyrir þær aðgerðir, — eða misskilji þessa 2—3ja smáleturslína stytting á aug- lýsingu sinni. í raun og veru hefir auglýsingarúm hans á síðunni stækkað um þá 4—5 centi- inetra, sem lesmálið tekur yfir. Auk þess sem það tryggir honum að auglýsing hans verði lesin og komi að tilætluðum notum. Svo kveðjuin við alla velunnara ritsins og væntanlega lesendur með beztu óskum og jiakklæti. ÚTGÁFUSTJÓRNIN

x

Helsingjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helsingjar
https://timarit.is/publication/1979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.