Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.07.2024, Side 4

Víkurfréttir - 31.07.2024, Side 4
STYTTIST ÓÐUM Í NÝJU LJÓNAGRYFJUNA Íþróttahúsið í Stapaskóla við það að verða tilbúið Frágangur við íþróttahúsið í Stapaskóla og tilvonandi heimavöll körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur er á lokametrunum og Ungmennafélaginu Njarðvík verður afhent lyklavöldin að húsinu í september, þá verður einnig hægt að nýta húsnæðið til íþróttakennslu að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs Reykjanesbæjar. „Við erum að stefna á öryggisúttekt á fyrsta áfanga þann 30. ágúst. Það er sem sagt íþróttahúsið, inngang- urinn og allir búningsklefar, uppi og niðri. Þetta er í raun allt nema sundlaugin og utanhússfrágangur. Næsta dagsetning hjá ÍAV er 31. október, þá verður búið að full- klára restina. Það er þá sundlaugin, klæðningin að utan og frágangur á lóð,“ segir Guðlaugur í samtali við Víkurfréttir. „Þennan föstudag, 30. ágúst, stefnum við á að fá úttekt og notkunarheimild á salinn en við misstum af glugga til að fá þá sem línumerkja vellina á gólfið, það er svo fámenn stétt og með allt undir á sama tíma og þess vegna misstum við þá frá okkur.“ Afhenda lyklavöldin 15. september Guðlaugur segir að um leið og búið er að taka út salinn og fá notk- unarheimild þú munu þeir mæta og merkja fyrir völlum. „Svo koma áhorfendabekkirnir 12. ágúst á svæðið og það tekur tvær vikur að setja þá upp. Þannig að við erum að sjá fyrir okkur að byrja að nota salinn 15. september fyrir skóla- íþróttir og æfingar.“ Búið er að leggja parket á gólfið, búið að setja upp allar körfur, hljóðkerfi og stigatöflur en Guð- laugur segir að engum verði hleypt inn í húsið fyrr en allt er fullklárað. „Njarðvíkingar þurfa að sjálf- sögðu tíma til að koma sér fyrir og undirbúa fyrir keppnishald, setja upp sjoppu og gera allskonar hliðarrými klár. Þeir geta byrjað að vinna í þeim málum þegar notk- unarheimild hefur verið fengin.“ Hvað verður um Ljónagryfjuna? „Ætli hún verði ekki notuð fyrir æfingar og auðvitað skólaíþróttir. Skrifstofur Njarðvíkur koma til með að flytjast í Stapaskóla, það er allavega gert ráð fyrir því. Njarðvík er auðvitað með skrifstofur í Ljóna- gryfjunni, hvort þeir vilji nota báðar er opið,“ sagði Guðlaugur að lokum. Gamla íþróttahúsið rifið Íþróttahús Myllubakkaskóla var rifið fyrr í sumar, sem og viðbygging við gamla skólahúsið sem nú er í endurbyggingu vegna myglu. Íþróttahúsið var opnað árið 1958, sex árum eftir opnun Barnaskóla Keflavíkur, síðar Myllubakkaskóli. Þetta var elsti íþróttasalur Reykjanesbæjar og einn elsti á Suðurnesjum, Þarna stigu margir Keflvíkingar sín fyrstu íþróttaskref, nemendur stunduðu skólaleikfimi og hinar ýmsu inniíþrótta- greinar fengu æfingatíma. Bygging hússins var mikilvæg í íþróttastarfi á þeim tíma en var orðið barns síns tíma enda íþróttasalurinn lítill miðað við kröfur sem gerðar eru í dag. Hilmar Bragi myndaði niðurrifið í sumar en endurbygging Myllubakkaskóla stendur yfir. Nýr og glæsilegur íþróttasalur er á framkvæmdaáætluninni en gert er ráð fyrir að framkvæmdum við skólann ljúki á næstu tveimur árum. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, á vettvangi í íþróttahúsi Stapaskóla. VF/Hilmar Bragi Tölvuteikningar af íþróttasalnum í Stapaskóla, nýju Ljónagryfjunni. Biðinni eftir að geta tekið sundsprett í nýju sundlauginni í Stapaskóla ætti að ljúka í byrjun nóvember. Ljónagryfjan geymir margar kærar minningar í hugum Njarðvíkinga en Ungmenna- félagið Njarðvík byrjar að skrifa nýja sögu í nýrri Ljónagryfju nú í haust. Búið er að leggja allt parket á gólf íþróttasalarins og hengja upp körfur. Stapaskóli er líklega stærsta framkvæmd í sögu Reykjanesbæjar. Hér má sjá viðbótina sem er íþróttahús og sundlaug. VF/pket. 4 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.