Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.07.2024, Page 8

Víkurfréttir - 31.07.2024, Page 8
– segja Grindvíkingarnir Halla Kristín Sveinsdóttir og Þórarinn Kristjánsson en þau sitja uppi með fasteign í Grindavík og allar þær skuldir sem henni fylgja. Hjónanna Höllu Kristínar Sveinsdóttur og Þórarins Krist- jánssonar beið ekki f ögur sjón þegar þau sneru heim í Grindavík í síðustu viku og gengu inn í einbýlishús í eigu fé- lags þeirra hjóna. Allt var á tjá og tundri, loftklæðning fallin niður og miklar skemmdir blöstu við þeim. Tjón sem þau sitja uppi með en fasteignin, sem er íbúðar- húsnæði, er ein þeirra eigna sem falla ekki undir skilgreiningar ríkisins um uppkaup eigna í Grindavík. Halla og Þórarinn höfðu byggt sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili í Grindavík. Þórarinn er fæddur og uppalinn í Grindavík en Halla flutti þangað þriggja ára og saman eiga þau þrjú börn, tvo drengi og eina stúlku. Voru að aðstoða son sinn til að koma þaki yfir höfuðið Forsaga málsins er sú að félag í eigu Höllu og Þórarins keypti íbúðarhúsnæðið til að aðstoða son þeirra við að eignast þak yfir höf- uðið. „Við sjálf áttum ekki pening til að kaupa annað hús en félagið átti fyrir útborgun,“ segir Halla. „Sonur okkar hefur haft lögheimili í húsinu frá árinu 2018 og greitt leigu til félagsins á meðan hann safnaði sér fyrir útborgun. Það stóð til að hann myndi kaupa húsið á þessu ári.“ Þær forsendur brustu þann 10. nóvember síðastliðinn þegar ein- hverjar mestu hamfarir sögunnar dundu yfir Grindavík og bærinn var rýmdur. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, fasteigna- félagið Þórkatla var stofnað til að halda utan um uppkaup fasteigna í Grindavík – en ekki fallaallar fast- eignir innan Grindavíkur undir skilgreiningar ríkisins um upp- kaup. Halla og Þórarinn hafa m.a. leitað til Þórkötlu og sýslumanns til að reyna að fá húsnæðið keypt upp en hjá sýslumanni var þeim bent á að fara á vef sýslumanns- embættisins og fylla út eyðublað um undanþágu til uppkaupanna. Það eyðublað virðist ekki vera til. Hafið þið reynt að tala við sýslu- mann aftur? „Ég held að það sé gáfulegast að láta lögfræðing sjá um þetta,“ segir Þórarinn. „Það sé næsta skref.“ „Þar sem hnífurinn stendur í kúnni er að þú þarft að sækja um og þú þarft að fá neitun, þá er komin forsenda fyrir málssókn,“ segir Halla. „Þegar lögfræðing- urinn kemur úr fríi þá þurfum við að fá hann til að sækja um fyrir okkur. Áföllin, svekkelsið og niðurrifið eru endalaus. Ég treysti mér eigin- lega ekki til þess að halda áfram, að fara að hamast í einhverju svona. Maður er orðinn svo reiður yfir þessu öllu.“ Halla segir að fyrst hafi verið gefið út að öll íbúðarhúsnæði í Grindavík falli undir uppkaup. „Svo líða einhverjir mánuðir því þetta er bara gripið, teknar Áföllin, svekkelsið og niðurrifið eru endalaus Skemmdirnar sem blöstu við Höllu og Þórarni þann 24. júlí síðastliðinn en þá voru tæplega tvær vikur liðnar frá því að þau skildu við húsið og allt var góðu í lagi. Áföllin, svekkelsið og niðurrifið eru endalaus. Ég treysti mér eiginlega ekki til þess að halda áfram, að fara að hamast í einhverju svona. Maður er orðinn svo reiður yfir þessu öllu ... Það fá allir sambærilegt fyrir sitt í Grindavík, kjaftæði. Algjört kjaftæði ... Þórarinn og Halla hafa búið sér heimili í fallegri og bjartri blokkaríbúð á Álftanesi. „Þegar maður fer á fætur á morgnana og stígur út á veröndina andar maður að sér fjörulyktinni, þetta er eins nálægt því og við komumst að vera heima í Grindavík.“ VF/JPK Kossaflens í garðinum heima við Bakkaflöt. Veggur prýddur fjölskyldumyndum er með því fyrsta sem blasið við þeim sem heimsækja Höllu og Þórarinn. 8 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.