Víkurfréttir - 31.07.2024, Page 14
Golfmæðgurnar Karen og Guðfinna voru
heiðursgestir á Íslandsmótinu í golfi
– Karen sló fyrsta höggið. Keppt um Guðfinnubikarinn í fyrsta sinn.
Mæðgurnar Guðfinna Sigur-
þórsdóttir og Karen Sævars-
dóttir úr Golfklúbbi Suður-
nesja eiga saman ellefu Ís-
landsmeistaratitla í golfi en sú
síðarnefnda tók fyrsta höggið á
Íslandsmótinu í golfi sem fram
fór á Hólmsvelli í Leiru dagana
18.–21. júlí.
Guðfinna var fyrsti Íslands-
meistari kvenna 1967 og vann
alls þrisvar sinnum. Karen dóttir
hennar byrjaði í golfi fimm ára og
vann átta titla í röð, 1989–2006.
Þær voru heiðursgestir við upphaf
Íslandsmótsins í golfi sem haldið
var á Hólmsvelli í Leiru 18.-21.
júlí, á heimavelli þeirra mæðgna
og Karen sló fyrsta höggið.
Á Íslandsmótinu í ár var í
fyrsta skipti keppt um Guðfinnu-
bikarinn sem besti áhugakylfing-
urinn í kvennaflokki á mótinu
vinnur. Guðfinna átti í fórum
sínum eignarbikar sem hún vann
1967, sinn fyrsta Íslandsmeist-
aratitil, og hann var afhentur í
mótslok. Íslandsmeistari kvenna
2024, Hulda Clara Gestsdóttir,
var fyrst til að vinna Guðfinnu-
bikarinn.
„Ég ætlaði nú eiginlega ekki að
tíma því að láta bikarinn frá mér,“
sagði Guðfinna og hló en hún var
ein af fáum og þeim fyrstu konum
sem tóku þátt í Íslandsmóti. „Við
fengum bara að spila níu holur og
ég barðist fyrir því að við fengjum
að spila meira. Þetta var frum-
kvöðlastarf hjá mér og okkur sem
voru í kvennahópnum, að reyna
fá að spila keppnisgolf. Ég man
að þetta var vesen í byrjun að fá
kylfur og búnað og fyrstu kylf-
urnar sem ég notaði voru karla-
kylfur. Svo kom þetta nú allt með
tímanum. Ég hef átt frábæra tíma
á golfvellinum með fjölskyldunni
allri enda er þetta frábær íþrótt
sem ég reyni að stunda enn,“ segir
Guðfinna en hún er 78 ára.
Karen rifjar það upp í viðtali
sem VF/kylfingur.is tók við þær
mæðgur (og sjá má í myndbandi
á vf.is og kylfingur.is) að hún hafi
byrjað að spila golf þegar hún var
fimm ára. „Ég var eitthvað að leika
mér í og við fjörurnar í Leirunni
ásamt því að reyna slá bolta. Mér
fannst þetta magnaður staður
og þykir enn,“ segir Karen m.a. í
spjallinu en allir fjölskyldumeð-
limirnir urðu Íslandsmeistarar.
Karlpeningurinn, faðirinn Sævar
sem er látinn varð einu sinni Ís-
landsmeistari í 1. flokki og son-
urinn, Sigurþór, varð Íslands-
meistari unglinga einu sinni og
það sama ár og systir sín.
„Það gekk allt upp sem þurfti að ganga upp, völlurinn var í frábæru ásigkomulagi,
breytingarnar á uppsetningu vallarins mæltust mjög vel fyrir, vallar- og mótsmet voru
slegin og síðast en ekki síst var farin hola í höggi,“ segir Birkir Þór Karlsson, vallarstjóri
á Hólmsvelli í Leiru, golfvelli Golfklúbbs Suðurnesja (GS), en Íslandsmótið í höggleik,
stærsta mót sumarsins, fór fram fyrr í mánuðinum.
Upprunalega átti Golfklúbbur
Reykjavíkur að halda mótið en
klúbburinn baðst undan því og þar
með var leitað til GS seint síðasta
haust. Fljótlega var tekin ákvörðun
um að þekkjast boðið og fór þá allt
á fullt í undirbúningi og ákveðið
að ráðast í þær framkvæmdir sem
höfðu staðið til og áttu að vera
búnar áður en Íslandsmótið yrði
haldið í Leirunni 2026 eða 2027.
Mesta athygli vakti breytt holu-
röðun en sú hugmyndin fæddist
samt ekki þegar ákvörðun var tekin
um að halda mótið. „Það er kannski ótrúlegt að
mönnum hafi ekki dottið þessi
breyting fyrr í hug, sjálfur hafði ég
aldrei spáð í þessu en þegar búið er
að framkvæma breytinguna getur
maður ekki annað en hugsað með
sér; af hverju var ekki löngu búið
að gera þetta? Fyrir þá sem ekki
þekkja til snýst breytingin um
að færa erfiðustu holurnar yfir
á seinni níu en þetta voru fyrstu
holurnar á vellinum. Byrjunin var
sérstaklega erfið má segja, par
5 hola með lítið rými hvort sem
var til hægri eða vinstri, kylfingar
ekki orðnir heitir og oftar en ekki
er mótvindur á þessari holu. Eftir
hana kemur erfið og blind hola
og þar næst svo hin margrómaða
Bergvík, ein fallegasta golfhola
landsins. Mörgum fannst hálf sorg-
legt að sú hola væri aldrei í sjón-
varpi og þar með var þetta í raun
mjög einföld ákvörðun. Fyrsta
holan í dag er gamla níunda holan,
þægileg byrjunarhola og eina
breytingin í raun er að eftir gömlu
par 5 holuna sem var númer 14 og
er númer sex í dag, kemur önnur
par 5 hola, hola sem var númer sex
í fyrri uppsetningu. Holur fimmtán
til átján halda sér eins og þær voru,
það er stutt að fara frá flöt fjórtán
sem var flöt númer fimm. Ég tel
líka mjög gott að breyta gömlu
fyrstu holunni úr par 5 í par 4 og
færa teigana framar, þá er enginn í
hættu og kylfingar auk þess orðnir
heitir þegar kemur að þeirri holu.
Allir kylfingar voru himinlifandi
með allar þessar breytingar og
ljóst að völlurinn verður spilaður
svona út þetta sumar og svo mun
aðalfundur taka ákvörðun hvort
breytingin verði varanleg.“
Hola í höggi og met
Segja má að allt hafi haldist í
hendur til að láta allt ganga full-
komlega upp, veðrið lék við kylf-
inga fyrstu dagana en veðurguð-
irnir vildu líka sýna á lokadeginum
að Leirulognið getur líka ferðast á
smá hraða. Þar sem ný uppsetning
var á vellinum var ljóst að nýtt
vallarmet myndi líta dagsins ljós,
mótsmet var slegið og síðast en
ekki síst lét rúsínan í pylsuend-
anum sjá sig.
„Það er búið að vera mikið að
gera undanfarnar vikur má segja
við að koma vellinum í stand og
ekki síst, framkvæma þær breyt-
ingar sem búið var að ákveða,
t.d. varðandi nýja göngustíga. Við
ákváðum að malbika þá og gerir
það ásýnd vallarins miklu betri.
Malbikunargengið mætti um
hádegi einn daginn en þá var of
mikil rigning svo þeir komu aftur
seinni partinn og þá gekk dæmið
upp. Það var mikið álag á okkur
síðustu vikur og á sunnudeginum
fyrir mótið kallaði ég alla út en þá
rigndi eins og hellt væri úr fötu.
Spáin sýndi samt fram á góða daga
og má segja að veðrið hafi leikið
við okkur fyrstu dagana fyrir utan
úrhellisskúr á öðrum degi í u.þ.b.
klukkustund. Sumir kylf ingar
höfðu á orði að þeir væru ekki vanir
að spila í svona logni í Leirunni,
það segir eitthvað. Þessar rign-
ingar að undanförnu, gerðu það
að verkum að flatirnar voru mjög
mjúkar og því gátu þessir frábæru
kylfingar ráðist á pinnann eins og
sagt er. Strax á fyrsta degi spiluðu
tveir kylfingar á sex undir, eða 65
höggum. 64 högg sáust næsta dag
og Gunnlaugur Árni Sveinsson sló
svo það vallarmet á þriðja degi og
lék á átta undir, eða 63 höggum,
algerlega frábært. Það var svo Aron
Snær Júlíusson sem stóð uppi
sem sigurvegari á nýju mótsmeti,
eða fjórtán undir pari. Rúsínan í
pylsuendanum var svo kannski að
strax á fyrsta degi, og það tiltölu-
lega snemma, fór kylfingur holu í
höggi. Einar Bjarni Helgason af-
rekaði það á níundu holu, gömlu
áttundu holunni.
Nú róast aðeins hjá okkur vallar-
starfsmönnunum en svo styttist í
meistaramót GS, það er líka fjög-
urra daga mót og verður nóg að
gera hjá okkur í kringum það og
svo eru frekari framkvæmdir á vell-
inum fyrirhugaðar eftir golftíma-
bilið. Þá munum við fá gervigras úr
Nettóhöllinni en það verður skipt
um það í haust, og munum setja
það á nokkra staði á Hólmsvelli,
þar sem golfbílarnir keyra og líka á
að gera nýja göngustíga. Fyrir utan
að sjá um Hólmsvöll sláum við líka
púttflatirnar við sjúkrahúsið og
hirðum líka Ásbrúarvöllinn. Það er
nóg að gera hjá okkur og ég myndi
segja að framtíð golfs á Suðurnesj-
unum sé mjög björt,“ sagði Birkir
Þór að lokum.
Íslandsmótið í golfi
heppnaðist fullkomlega
Séð yfir hluta Hólmsvallar.
Mæðgurnar Guðfinna Sigurþórsdóttir
og Karen Sævarsdóttir við
upphaf Íslandsmótsins í golfi
í Leiru fyrr í mánuðinum.
GOLF
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Birkir Þór með
afmælismerki
GS í baksýn.
Suðurnesjakylfingurinn Guðmundur
Rúnar Hallgrímsson, einn elsti keppandi í
karlaflokki, slær hér á hinni frægu Bergvík
í Leiru á Íslandsmótinu en hún var áberandi
í sjónvarpsútsendingum RÚV frá mótinu.
Fyrir þá sem ekki þekkja
til snýst breytingin um að
færa erfiðustu holurnar yfir
á seinni níu en þetta voru
fyrstu holurnar á vellinum ...
sport