Víkurfréttir - 31.07.2024, Qupperneq 16
Mundi
Verða Örlygsstaðir ekki
tilvalið nafn á nýjan heimavöll
Njarðvíkinga?
Vertu velkomin(n) til okkar!
Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér
faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt.
Lífsgæði
í Leiru
Lengsta sjónvapsútsending frá
Suðurnesjum sem ekki var frá
hamförunum í Grindavík var
um þarsíðustu helgi. Íslands-
mótið í golfi í Leirunni. Frægasta
golfhola landsins, Bergvíkin,
skartaði sínu fegursta. Sjón-
varpsáhorfendur fengu í fyrsta
sinn að sjá þessa glæsilegu golf-
holu bæði á flóði og í fjöru í
beinni útsendingu. Leirulognið
hafði hægt um sig allt fram á
lokadag en þá fengu keppendur
að eiga við Leiruna eins og hún
gerist best.
For ystumenn G ol fk lúbbs
Suðurnesja hafa staðið sig gríð-
arvel undanfarin ár í bætingum á
vallarsvæðinu sem stöðugt verður
glæsilegra. Ekki hafa viðlíka fram-
kvæmdir átt sér stað hjá klúbbnum
síðan í formannstíð Einars Magn-
ússonar, tannlæknis, um síðustu
aldamót og held ég að honum
verði aldrei fullþökkuð sú eljusemi
sem hann sýndi við uppbyggingu
mannvirkja á svæðinu. En það
voru aðrir á undan honum og ber
þar helst að nefna bræðurna Hörð
og Hólmgeir Guðmundssyni sem
eru guðfeður Hólmsvallar í Leiru
og Loga heitinn Þormóðsson sem
hélt Landsmót með stæl í Leirunni
1986.
Golfklúbbur Suðurnesja fagnar
á þessu ári 60 ára afmæli. Að
mínu mati eru er tveir bestu golf-
vellir landsins í Leirunni og í Vest-
mannaeyjum. Ég hef haldið því
fram við nokkra Eyjamenn að ef
þeir héldu rétt á spilunum gætu
þeir haft meiri tekjur af golfvell-
inum heldur en Þjóðhátíðinni.
Þeir hafa allir haldið mig bilaðan.
Fyrir golfáhugamenn sem sátu við
sjónvarpið um helgina var sýnt frá
Íslandsmótinu á Hólmsvelli í Leiru
og frá Opna mótinu (e. The Open)
sem leikið var á Royal Troon vell-
inum í Skotlandi. Royal Troon er
örlítið eldri en Hólmsvöllur en
þar byrjuðu menn að leika golf
árið 1878. Að leika einn átján holu
hring á Royal Troon kostar 65.000
kr. Fullt vallargjald er Leirunni er
12.000 kr. en almennt eru gestir að
greiða vallargjald uppá um 6.500
kr., eða einn tíunda af því sem
kostar að leika á Royal Troon.
Lesendur geta sjálfir farið í út-
reikningana en í golfheiminum
er mestur vöxtur í þeim geira sem
kallast „Destination Golf“ en þeir
sem eru illa haldnir af golfbakterí-
unni ferðast um heiminn og leika
golfvelli á afskekktum stöðum og
greiða rausnarlega fyrir vallar-
gjöldin. Það þarf t.d. ekki nema
5.000 leikna hringi á golfvelli fyrir
viðlíka vallargjald og á Royal Troon
til að jafna við tekjurnar af Þjóð-
hátíð. Árlega eru leiknir ríflega
18.000 hringir á Hólmsvelli.
Það eru fólgin í því mikil lífsgæði
fyrir Suðurnesjamenn af hafa að-
gang að fjórum frábærum golf-
völlum á svæðinu fyrir vægast sagt
mjög hóflegt árgjald. Golfvellirnir
í Sandgerði og Grindavík eru mjög
góðir og ekki má gleyma flottum
níu holu Kálfatjarnarvelli á Vatns-
leysuströndinni. Njótið þessara
lífsgæða. Golf lengir lífið.
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR
960 kíló af rusli úr fjörunni
Starfsfólki Lagardère Travel
Retail bauðst á dögunum að nýta
hluta vinnutíma síns við strand-
hreinsun á Garðskaga. Um 30
manns tóku þátt og söfnuðu um
960 kílóum af rusli á hreinsunar-
deginum.
Samkvæmt Magdalena Anna
Bilska, gæða- og sjálfbærnistjóra
Lagardère, kom innblásturinn að
þessu tiltekna framtaki frá Bláa
hernum þegar Lagardère hafði
samband við þau varðandi sam-
vinnu tengda sjálfbærni. Blái
herinn eru félagasamtök sem hafa
fjarlægt yfir 1.550 tonn af rusli úr
íslenskri náttúru á undanförnum
25 árum.
„Garðströnd varð fyrir valinu þar
sem hún er í nærumhverfi starf-
seminnar okkar á flugvellinum.
Þetta framtak passar fullkomlega
við sjálfbærnistefnuna okkar, sem
miðar að því að auka jákvæð áhrif
fyrirtækisins á umhverfi og sam-
félag. Það er góð tilfinning að geta
gefið til baka til samfélagsins í
kringum okkur og styðja við varð-
veislu íslenskrar náttúru um leið,”
segir Magdalena.
Lagardère rekur veitinga-
staðina Bakað, Loksins, Mathús
og Keflavik Diner, sem opnaði fyrir
skömmu á Keflavíkurflugvelli. Á
næstunni mun fyrirtækið einnig
opna mathöllina Aðalstræti en þar
verða veitingastaðirnir Yuzu, La
Trattoria og Zócalo.
„Mikil ánægja var hjá þeim sem
mættu á hreinsunardaginn. Starfs-
fólkið okkar kunni virkilega vel að
meta tilbreytinguna, samveruna
og að geta gefið til baka til sam-
félagsins. Allir voru sammála um
að þetta er eitthvað sem okkur
langar að gera aftur,“ sagði Mag-
dalena að lokum.
Myndir: Michal Jan Oles
Hópurinn glaður í bragði að loknu góðu dagsverki.
Tómas Knútsson frá Bláa hernum var starfsfólki Lagardère
Travel Retail innan handar við strandhreinsunina.
Magdalena Anna Bilska tók þátt í
hreinsun fjörunnar á Garðskaga.