Víkurfréttir - 14.08.2024, Page 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
„Geitungabúin eru oft á ýmsum stöðum en
að velja körfubolta er líklega það skrýtnasta
sem ég hef séð,“ segir Ragnar Guðleifsson,
meindýraeyðir þegar hann sýndi blaðamanni
geitungabú sem var fast ofan á körfubolta
sem hafði verið úti í garði á heimili í Reykja-
nesbæ.
Ragnar hló þegar hann var spurður hvort
þetta hafi verið körfuboltageitungar en það sé
kannski ekki skrýtið í ljósi vinsældar íþróttar-
innar á Suðurnesjum. Sjá mátti nokkur bú í bíl
Ragnars sem hann hafði eytt síðustu daga en
meindýraeyðirinn mætir vopnaður sérstöku eitri
í brúsa sem hann spreyjar yfir búið. Þegar hann
er búinn að því er búið dautt innan tuttugu
sekúndna.
Á veraldarvefnum kemur fram að geitungar
séu félagsskordýr. Þeir byggja bú úr pappírs-
kvoðu sem þeir fá með því að naga timbur. Í
hverju geitungabúi er ein drottning og mörg
hundruð vinnugeitungar. Drottningin verpir
eggjum í sérstök hólf. Úr eggjunum þroskast
lirfur sem síðan verða að púpum. Úr púpunum
skríða aðeins vinnugeitungar yfir sumartímann.
Vinnugeitungar annast lirfur og viðhalda búinu.
Yfir vetrartímann liggja geitungadrottningar
í dvala. Hér á landi fara þær yfirleitt aftur á
kreik seinnihlutann í maí og leggja þá drög að
byggingu bús á hentugum stað. Geitungabúið
er síðan „lifandi“ oftast vel inn í ágúst og sept-
ember en þá afleggur drottningin búið og íbúar
þess flosna upp frá því. Á haustin verða til nýjar
drottningar sem lifa af veturinn.
Geitungabú á körfubolta
Fjölbreytileikanum fagnað á Suðurnesjum
Fjölskyldudagar Sveitar-
félagsins Voga eru haldnir frá
fimmtudegi til sunnudags en
þeir eru ávallt haldnir þriðju
helgina í ágúst ár hvert. Þar
er boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá fyrir alla fjölskylduna og
aðgangur að öllum viðburðum
hátíðarinnar er ókeypis.
Hátíðin hefst á fimmtudag
með tónleikum í Háabjalla.
Aðalhátíðisdagurinn er svo á
laugardag þar sem fer fram fjöl-
breytt dagskrá í Aragerði. Nánar
má sjá um fjölskyldudagana á
vef Víkurfrétta, vf.is
Fjölskyldudagar
haldnir í Vogum
Víkurfréttir
eru 44 ára í dag
Víkurfréttir eiga afmæli í dag,
14. ágúst. Fyrsta tölublað Víkur-
frétta kom út á þessum degi árið
1980. Á þessum tíma lætur nærri
að 2.200 tölublöð hafi komið út.
Víkurfréttir eru aðgengilegar frá
fyrsta tölublaði á timarit.is. Þar
geta áhugasamir grúskað í sög-
unni og sett sig inn í tíðarandann
á þessum 44 árum sem liðin eru frá
fyrsta tölublaði.
Geitungabúið er mikil listasmíði. VF/pket
Sjá viðtal í miðopnu!
Elín sér um að upp-
tökur frá Ólympíu-
leikunum gangi
fullkomlega upp
Gangbraut fjölbreytileikans var máluð við ráðhús Reykjanesbæjar við Tjarnargötu í síðustu viku. Gangbrautin
var fyrst máluð á þessum stað árið 2021. Það voru ungmenni frá Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem sáu um
málningarvinnuna og nutu aðstoðar bæjarfulltrúanna Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur og Guðnýjar Birnu Guð-
mundsdóttur. Í Suðurnesjabæ var risastór regnbogafáni málaður á götuna við Vörðuna í Sandgerði. Þar naut
Magnús Stefánsson bæjarsjóri aðstoðar annars starfsfólks bæjarins við málningarvinnuna. VF/Hilmar Bragi
Ragnar með
körfuboltann með
geitungabúinu.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
Miðvikudagur 14. ágúst 2024 // 30. tbl. // 45. árg.