Víkurfréttir - 14.08.2024, Side 2
Vantar meira fé til að viðhalda
gatnakerfinu í Reykjanesbæ
Nýtt malbik hefur verið lagt yfir um sex kílómetra af götum Reykja-
nesbæjar í sumar. Götur eru ekki einungis metnar úr frá hjólförum
eða sjón, heldur ástand yfirborðs. Þegar farnar eru að myndast
sprungur í yfirborðið er sutt í að götur hreinlega eyðileggist sem
veldur mun meiri kostnaði við viðhald.
„Sumsstaðar erum við einnig að
fræsa upp eldra malbik þar sem
þess er þörf. Við höfum haft um
120 milljónir í yfirlagnir á ári en
það dugir enganvegin til að halda
við vegakerfinu svo vel sé. Við
erum klárir með yfirlagnapakka
upp á annað eins, sex til sjö kíló-
metra, en þurfum að meta stöðu
fjármagns nú í haust hvort við
komumst í meira í ár,“ segir Guð-
laugur Helgi Sigurjónsson, sviðs-
stjóri umhverfissviðs Reykjanes-
bæjar.
Gatnakerfi Reykjanesbæjar er
um 160 km og fer stækkandi. „Við
þyrftum að komast yfir um 15 til
20 kílómetra á ári svo vel sé til að
viðhalda götum bæjarins. Mjög
misjafnt er hver líftími yfirborðs
gatna er, en það fer eftir umferð
og álagi. Við höfum reynt að for-
gangsraða götum eins og kostur er
og oft þarf að bíða með yfirlagnir
á götum sem nauðsynlegt er að
fara í þar sem þörf er á að skipta
út fráveitulögnum áður en farið er
í yfirlagnir. Við höfum einmitt farið
í stórátak undanfarin ár að mynda
lagnir, fóðra þær ef þess er kostur
en í versta falli fara þær á útskipti-
lista og þá þarf að bíða með yfir-
langir á þeim götum,“ segir Guð-
laugur Helgi.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR RAGNAR ÓLAFSSON
Skipastíg 8, Grindavík
lést á Hrafnistu Hlévangi, laugardaginn 10. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 16. ágúst klukkan 12.
Ágústa Kristín Guðmundsdóttir
Guðný Sigurðardóttir
Magnús Ólafur Sigurðsson
Snorri Viðar Kristinsson
Sigþór Gunnar Sigþórsson
Berglind Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Mikil uppbygging við Flugvelli
Mikil uppbygging hefur verið á Flugvöllum í
Reykjanesbæ undanfarin misseri og eftir lægð í
kjölfar kórónuveirufaraldursins. Fjölmörg fyrir-
tæki eru að koma sér þar fyrir.
„Það eru í raun allar lóðir farnar sem við höfðum
til úthlutunar. Það eru tvær lóðir sem við höfum ekki
úthutað en þær eru undir knattspyrnuæfingarvell-
inum ofan við Iðavelli, en þær fara ekki í úthlutun fyrr
en völlurinn verður aflagður,“ segir Guðlaugur Helgi
Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanes-
bæjar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær
þeim lóðum verður úthlutað.
Fyrirtækin á Flugvöllum eru flest í ferðaþjónustu-
tengdri starfsemi og í þjónustu við bíla. Þar er líka
að finna hleðslustöðvar, eldsneytisstöð, smurstöð og
dekkjaverkstæði. Þá eru Brunavarnir Suðurnesja með
slökkvistöð við Flugvelli, svo eitthvað sé nefnt.
Á meðfylgjandi mynd má sjá yfir hluta athafnasvæðisins við Flugvelli. VF/Hilmar Bragi
Frá malbikun á Hringbraut og Aðalgötu
í Keflavík í síðustu viku. VF/Hilmar Bragi
Úrval þátta og innslaga á vf.is
w
Ljósanæturafsláttur
af allri vöru.
Tímapantanir í síma 420-0077 og á www.reykjanesoptikk.is
Gildir til 7. september.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10–18
LOKAÐ LAUGARDAGA.
30%
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM