Víkurfréttir - 14.08.2024, Blaðsíða 4
Ekki unnið að framkvæmdum á meðan
frekari jarðhræringar eru yfirvofandi
Aðgerðir sem framkvæmdanefnd
vegna jarðhræringa í Grindavík-
urbæ hefur kynnt eru háðar nátt-
úruöflunum og ekki er unnið að
framkvæmdum á meðan frekari
jarðhræringar eru yfirvofandi
líkt og nú. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Grindavíkurnefnd-
inni. Sett hefur verið á laggirnar
sérstakt framkvæmdateymi
sem vinnur nú að undirbúningi
verksins og mun hafa umsjón
með framkvæmdum þegar þær
geta hafist.
Framkvæmdanefndin hefur
kynnt aðgerðaáætlun vegna við-
gerða á innviðum innan þéttbýlis
Grindavíkur. Aðgerðirnar miða
að því að tryggja virkni og öryggi
innviða, þar á meðal á gatnakerfi,
lögnum og opnum svæðum, segir í
tilkynningu.
Helstu atriði áætlunarinnar
Viðgerðir á innviðum: Viðgerðir á
gatnakerfi, lögnum og öðrum sam-
gönguleiðum þar sem eru sýnilegar
sprungur, þ.m.t. mótvægisaðgerðir
vegna flóðahættu við byggingar
vestan við höfnina.
Jarðkönnun: Framhald jarðkönn-
unar til að meta ástand jarðvegs og
tryggja öryggi.
Áhættumat: Gerð áhættumats í
samvinnu við ríkislögreglustjóra
og Almannavarnir.
Mannheldar girðingar við
sprungu sveima og önnur óörugg
svæði
Kostnaðarskipting: Heildar-
kostnaður vegna þessara aðgerða er
áætlaður 470 m.kr., þar af greiðir
ríkið 440 m.kr. og Grindavíkurbær
30 m.kr.
Aðgerðirnar eru mikilvægar til
að stuðla að öflugu atvinnulífi og
öruggu samfélagi í Grindavíkurbæ
eftir því sem aðstæður leyfa. Að
jafnaði er unnið að margvíslegum
umbótum á innviðum í Grindavík.
Framkvæmdir miða meðal annars
að því að hægt sé að auka aðgengi
að bænum.
Í aðgerðaráætluninni kemur
fram að hún miðist við núver-
andi stöðu, þ.e. að eldgos sé ekki
í gangi, en verði breytingar þar á
muni að sjálfsögðu þurfa að upp-
færa áhættumat og þar með einnig
framvindu framkvæmda. Þannig
eru aðgerðirnar háðar náttúru-
öflunum og ekki er unnið að
framkvæmdum á meðan frekari
jarðhræringar eru yfirvofandi líkt
og nú. Vegagerðin er verkkaupi/
verkeigandi í umboði Grindavíkur-
nefndar og Grindavíkurbæjar.
„Við opnuðum á laugardaginn kl. 12 og má segja að fullt hafi verið út
úr dyrum allan daginn. Ekki skemmdi fyrir að bjóða upp á ljúfa tóna
á opnunardeginum en við eigum eftir að halda almennilegt opnun-
arhóf,“ segir Magnea Tómasdóttir, ein fjögurra systra sem ættaðar
eru frá Hvalsnesi. Þær systur hafa opnað kaffihúsið Kaffi Golu og
byrjunin lofar góðu.
Magnea segir að löng hefð sé
fyrir því að taka á móti gestum í
Hvalsnesi og eins hefur tónleika-
röðin Tónar í Hvalsneskirkju farið
þar fram undanfarin ár.
„Við erum ættaðar héðan og
þessi hugmynd kviknaði, að
byggja kaffihús á grunni gamla
fjóssins og hlöðunnar sem hér
var, og ákváðum að það myndi
heita Gola. Það hefur alltaf mikill
fjöldi gesta komið að Hvalsnesi
enda er aðdráttarafl kirkjunnar og
staðarins í heild sinni mikið og því
teljum við góðan grundvöll fyrir að
reka hér kaffihús. Við opnuðum á
laugardaginn kl. 12, vorum bara
með einfaldar veitingar, kökur,
vöfflur og rækjubrauð, allt sem
við gerðum frá grunni, það eina
sem vantaði að við hefðum veitt
laxinn sjálfar. Við erum að þróa
matseðilinn en ég get þó gefið
út að við munum alltaf vera með
sjávarréttasúpu á boðstólnum. Það
var mjög góð mæting alla helgina
og ekki skemmdi fyrir að fá saxó-
fónleikarann Óskar Guðjónsson
ásamt færeyskum vinum sínum til
að halda tónleika inni hjá okkur,
það var góður góður andi í salnum
á meðan tónarnir ómuðu og á ég
ekki von á öðru en sá andi muni
haldast um ókomna tíð. Venjulega
eru tónleikar haldnir í kirkjunni en
þá verður gott fyrir tónleikagesti að
koma við hjá okkur áður og fá sér
hressingu. Við munum vera með
opið frá 9-17 alla daga, viljum geta
boðið aðilum upp á að leigja salinn
eftir klukkan fimm en hægt er að
halda alls kyns viðburði hjá okkur,“
sagði Magnea að lokum.
n Kaffi Gola búin að opna í Hvalsnesi
Fullt út úr dyrum allan daginn
Landsig hefur orðið við höfnina í Grindavík og eru hæðarbreytingar
um hálfur til einn metri. Til að flóðahætta verði ekki meiri en fyrir
jarðhræringar þarf að hækka sjóvarnir um tvöfalda þá hæðarbreyt-
ingu. Aðgerðin er nauðsynleg til að verja fiskvinnslur, fiskmarkaðinn
og önnur hús við Miðgarð. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun vegna
viðgerða á innviðum innan þéttbýlis í Grindavík sem framkvæmda-
nefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefndin,
hefur lagt fram.
Íbúðarhús, sem nú eru að
nokkrum hluta í eigu Fasteigna-
félagsins Þórkötlu ehf. og hverfi
gætu verið í hættu ef flóð verður
mikið, s.s. við Verbraut og Lautina.
Vegagerðin hefur metið nauð-
synlegar framkvæmdir og greint
kostnað við þær.
Flóðvörnin vestan við nýja
vestari brimgarðinn er um 385
metrar að lengd og um einn til
tveir metrar að hæð. Miðað er við
að hækka þurfi grjótvörnina á þeim
kafla um einn til tvo metra.
Innan hafnar þarf að hækka
landið um einn til tvo metra og
ganga frá grjótfláum milli Kvía-
bryggju og Norðurgarðs annars
vegar og Norðurgarðs og Miðgarðs
hins vegar.
Tímarammi er einn mánuður og
kostnaður 40 milljónir króna.
Þórkatla langt
komin með kaup
á íbúðarhúsnæði
í Grindavík
Fasteignafélagið Þórkatla hefur
gengið frá kaupum á 852 fast-
eignum í Grindavík eða 93%
þeirra sem sótt hafa um. Afhend-
ingar hafa gengið vel og hefur
félagið þegar tekið við um 650
eignum. Unnið er að lokaupp-
gjöri við seljendur og frágangi
afsala. Félaginu hafa alls borist
917 umsóknir, auk 18 umsókna
frá búseturéttarhöfum.
Heildarfjárfesting félagsins til
þessa er rúmir 65 milljarðar króna.
Þar ef eru kaupsamnings- og af-
salsgreiðslur tæpir 45 ma. kr. og
yfirtekin húsnæðislán rúmir 20
ma. kr.
„Það er ánægjulegt að okkur
hefur nú þegar tekist að koma rúm-
lega 850 fjölskyldum í Grindavík til
hjálpar í þessum erfiðu aðstæðum.
Fram undan er vissulega ákveðin
biðstaða en við vonum að náttúru-
öflin verði okkur að lokum hlið-
holl svo huga megi að framtíð og
uppbyggingu Grindavíkur fljótlega
aftur,“ segir Örn Viðar Skúlason,
framkvæmdastjóri Fasteigna-
félagsins Þórkötlu.
Hollvinasamningur um
afnot af húsum verður í boði
þegar aðstæður leyfa
Fasteignafélagið Þórkatla hyggst
bjóða fyrrum eigendum húsnæðis
í Grindavík upp á bæði leigu-
samninga og svokallaða hollvina-
samninga, en forsenda þeirra er
þó að öruggt sé talið að dvelja í
Grindavík. Hollvinasamningur
mun byggja á samstarfi Þórkötlu
við seljendur eignanna um um-
hirðu, minniháttar viðhald og
almennt eftirlit með eignunum.
Ákvörðun um framkvæmd þessara
samninga verður tekin um leið og
aðstæður leyfa.
Svæðið þar sem flóð geta m.a. haft áhrif. VF/Hilmar Bragi
Kaffi Góla stendur í fallegu umhverfi Hvalsneskirkju. VF/Hilmar Bragi
Séð inn í nýja kaffihúsið á Hvalsnesi. VF/Hilmar Bragi
Íbúðarhús og hverfi í Grindavík
í hættu vegna mögulegra flóða
n Hækka varnargarða og land innan hafnar um einn til tvo metra
4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM