Víkurfréttir - 14.08.2024, Page 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is.
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dag-
bjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
vf is
N Ý B U R A R Á S U Ð U R N E S J U M
timarit.is
Ö l l t ö l u b l ö ð V í k u r f r é t t a
f r á 1 9 8 0 o g t i l d a g s i n s í d a g
e r u a ð g e n g i l e g á
timarit.is
Gefa ætti færaveiðar í ufsa frjálsar
Ágústmánuður farinn af stað og
það þýðir tvennt. Ég á afmæli og
þetta er síðasti mánuður fiskveiði-
ársins 2023-2024.
Þó svo fiskveiðiárið sé að verða
búið þá standa eftir um 9500 tonn
óveidd af þorski en heildarkvótinn
var um 169 þúsund tonn. Ýsu-
kvótinn er svo til að verða búinn en
kvótinn var um 63 þúsund tonn og
óveidd eru 895 tonn. Síðan er það
ufsakvótinn. Hann var mjög stór
eða um 69 þúsund tonn. Það sem
vekur athygli er að mjög mikið er
óveitt af ufsanum eða 38 þúsund
tonn og stór hluti af þessu mun
brenna inni og verða óveiddur
þegar að nýtt kvótaár tekur gildi 1.
september.
Eftir að strandveiðarnar voru
stöðvaðar þann 16. júlí síðast-
liðinn hafa nokkrir færabátar farið
á veiðar og verið þá að mestu að
eltast við ufsann. Í raun og veru
þá ætti að gefa færaveiðar á ufsa
frjálsar því þessi 38 þúsund tonn af
ufsa sem eftir eru mun aldrei nást
að veiða á þessum nítján dögum
sem eftir eru af ágúst.
Talandi um færabátanna þá
skulum við aðeins líta á þá það
sem af er ágúst. Hafdalur GK
hefur farið í fjóra róðra og landað
4,3 tonnum og mest 1,7 tonni. Af
þessum afla er 4,1 tonn af ufsa. Líf
NS var með 1,4 tonn í einni löndun
og var ufsi af því 1,3 tonn. Hrappur
GK var með 791 kíló í einni löndun
og Kristbjörg KE 1,7 tonn sömu-
leiðis. Kristbjörg KE er nýr bátur
sem var keyptur til Keflavíkur fyrir
tæpu ári síðan. Þessi bátur kemur
frá Ólafsvík og hét þar Geisli SH og
var gerður út þaðan í tíu ár.
Dragnótabáturinn Siggi Bjarna
GK hefur hafið veiðar og landaði
12,5 tonnum í tveimur róðrum.
Mikið blandaður afli hjá honum,
uppistaðan ýsa 2,1 tonn, þorskur
1,6 tonn og sólkoli 1,5 tonn.
Enn sem komið er þá er enginn
línubátur á veiðum frá Suður-
nesjunum, allir Stakkavíkurbát-
arnir nema Katrín GK, sem liggur
í Sandgerðishöfn, eru komnir
norður, og flestir þá til Skaga-
strandar. Þar er t.d. Óli á Stað GK
sem er með 25,3 tonn í fjórum
róðrum, Gulltoppur GK 17,2 tonn
í fjórum, Hópsnes GK 9,3 tonn í
fjórum og Geirfugl GK með 5,6
tonn í tveimur.
Margrét GK er á Hólmavík og
hefur landað þar 34 tonnum í
sex róðrum. Margrét GK er að
veiða byggðakvóta sem kom í hlut
Hólmavíkur og er aflinn unnin á
Hólmavík. Einhamarsbátarnir sem
allir réru í júlí og voru þá á Austur-
landinu hafa ekkert landað það
sem af er ágúst.
Af togurum er frekar lítið að
frétta. Jóhanna Gísladóttir GK
hóf veiðar fyrir stuttu síðan eftir
sumarfrí og kom til Grundarfjarðar
með 44 tonna afla. Mest af því var
þorskur, 17,5 tonn og ýsa 12 tonn.
Áskell ÞH kom með 90 tonn til
Grundarfjarðar og Vörður ÞH kom
þangað líka með 95 tonna afla. Var
þetta fyrsta löndun Gjögurstogar-
anna síðan í enda júní, því togar-
arnir voru stopp í tæpa tvo mánuði.
Hjá Nesfisk þá hefur Pálína
Þórunn GK ekkert landað síðan
snemma í júlí og Sóley Sigurjóns
GK, sem var á rækjuveiðum, hefur
ekkert landað síðan seint í júlí.
Baldvin Njálsson GK kom með 829
tonn af nokkuð blönduðum afla
en langmest var af ýsu í aflanum
eða 592 tonn, 149 tonn af þorski.
Ef miðað er við sama meðalverð
og Baldvin Njálsson GK var með
árið 2023, þá má áætla að aflaverð-
mætið hafi verið um 380 milljónir
króna.
AFLAFRÉTTIR
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Stúlka fædd þann 9. ágúst 2024 á
ljósmæðravakt Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja.
Þyngd: 3.922 grömm. Lengd: 52
sentimetrar.
Foreldrar: Joanna Katarzyna
Klimek og Rafal Blazej Muc-
hnicki
Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Rut Vestmann
Stúlka fædd þann 5. ágúst 2024 á
ljósmæðravakt Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja.
Þyngd: 4.234 grömm. Lengd: 51
sentimetri.
Foreldrar: Alexandra Högnadóttir
og Davíð Birgisson.
Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Agla Bettý Andrés-
dóttir.
Drengur fæddur þann 8. ágúst
2024 á ljósmæðravakt Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja.
Þyngd: 3.684 grömm. Lengd: 51
sentimetri.
Foreldrar: Arnbjörg Hlín Ásgeirs-
dóttir og Andri Hermannsson.
Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Hugljúf Dan Jensen
Drengur fæddur þann 30. júlí
2024 á ljósmæðravakt Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja.
Þyngd: 4.162 grömm. Lengd: 53,5
sentimetrar.
Foreldrar: Aleksandra Wasi-
lewska og Bjarki Jóhannsson
Búsett í Reykjanesbæ
Ljósmóðir: Guðlaug María Sig-
urðardóttir
Drengur fæddur þann 25. júlí
2024 á ljósmæðravakt Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja.
Þyngd: 3784 grömm. Lengd: 51
sentimetri
Foreldrar: Arndís Sif Birgisdóttir
og Svanur Karlsson
Búsett í Reykjanesbæ
Ljósmóðir: Agla Bettý Andrés-
dóttir
Drengur fæddur þann 27. júlí
2024 á ljósmæðravakt Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja.
Þyngd: 3,586 grömm. Lengd: 51
sentimetri.
Foreldrar: Viktoría Roshka og
Soliviov Denis Olegovich
Þau eru búsett í Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Telma Ýr Sigurðar-
dóttir
Bresk flugsveit með fjórar
F-35 á Keflavíkurflugvelli
Bresk flugsveit er komin til
landsins til að sinna loftrýmis-
gæslu Atlantshafsbandalagsins.
Flugsveitin samanstendur af
fjórum F-35 orrustuþotum og
180 liðsmönnum. Sveitin tekur
þátt í verkefninu ásamt starfs-
mönnum stjórnstöðva Atlants-
hafsbandalagsins í Uedem í
Þýskalandi og á öryggissvæðinu
á Keflavíkurflugvelli.
Framkvæmd verkefnisins verður
með sama fyrirkomulagi og undan-
farin ár og í samræmi við loftrým-
isgæsluáætlun Atlantshafsbanda-
lagsins fyrir Ísland.
Flugsveitin hefur aðsetur á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
ásamt flugsveitum aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins sem sinna
kafbátaeftirliti á Norður Atlants-
hafinu.
Varnarmálasvið Landhelgis-
gæslu Íslands annast framkvæmd
verkefnisins, í umboði utanríkis-
ráðuneytisins, í samstarf i við
Isavia.
Ráðgert er að loftrýmisgæslunni
ljúki í byrjun september.
F-35 þota kemur til lendingar á Keflavíkurflugvelli á dögunum. VF/Hilmar Bragi
Þotur Play bíða meðan F-35 þotan lendir til vesturs. VF/Hilmar Bragi
6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM