Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.08.2024, Síða 10

Víkurfréttir - 14.08.2024, Síða 10
„Það er góð tilfinning að vita af því að verið sé að fjalla um lagið manns á miðlum úti í heimi,“ segir Róbert Freyr Ingvason, ungur og efnilegur tónlistarmaður sem hefur búið í Njarðvík síðan 2012. Eftir að hafa mest verið að pródúsera og semja fyrir aðra, auk þess að hanna umslög sem grafískur hönnuður, gaf hann út eigið lag sem rataði út fyrir landsteinana og nýlega hóf hann samstarf við njarð- víska söngvarann Elvar Þór Magnússon. Þeir hafa nýlega gefið út tvö lög og þar sem nóg er til af efnivið er líklegt að þessi dúett eigi eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Róbert segir að tónlistin flokkist undir raftónlist sem blandast við soul, popp og r&b en eftir að hafa prófað að rappa og snert á öðrum tónlistarstefnum, telur hann sig vera búinn að finna sína fjöl. „Ég byrjaði ungur að fikta í tón- list, lærði sjálfur á gítar, píanó og trommur og um fermingu var ég farinn að taka upp sjálfur heima hjá mér, innréttaði herbergið með dýnum og eggjabökkum til að ná góðum hljómgæðum. Ég á mjög góða tölvu og hljóðkort, það er magnað hve góðum hljómburði hægt er að ná heima hjá sér en ég hef alltaf haft gott tóneyra, ég heyri tónlistina fyrir mér og á mikið af efni í tölvunni minni. Ég var mest að pródúsera og semja fyrir aðra en vinir mínir hvöttu mig til að gera meira við alla þessa tónlist sem ég hef verið að leika mér með í ansi langan tíma. Fyrst gaf ég út lagið Moon og það rataði inn á erlenda playlista og fékk umfjöllun, það veitti mér mikinn meðbyr, það var góð tilfinning að vita að fólk úti í heimi væri að hlusta á tónlistina mína og fjalla um hana. Ég kynntist Elvari Þór þegar við unnum saman uppi á flugvelli og með okkur tókust góð kynni. Við misstum mæður okkar á svipuðum tíma og það tengdi okkur saman og fljótlega sáum við að við gætum átt samleið í tónlistinni því hann er frábær söngvari. Ég var búinn að gefa út þetta lag mitt, Moon og við ákváðum að prófa að gera tón- list saman. Þetta var athyglisvert, ég fékk hann til að koma til mín og syngja bara eitthvað yfir litla tónlistarbúta sem ég hafði samið og það kom mjög vel út. Ég raðaði nokkrum svona bútum saman og úr varð lag í fullri lengd, Skart. Þar sem þetta lag gekk vel hjá okkur þá munum við pottþétt vinna meira saman og ég hlakka til samstarfsins við hann.“ Eins og áður sagði rataði lag Ró- berts, Moon, inn á playlista Spotify út um allan heim og m.a. var bras- ilískur bloggari sem fjallaði um tónlistina. Lagið er instrumental, þ.e. enginn söngur er en í lagi fé- laganna, Skart, kemur söngur svo sannarlega til sögunnar og það sem kannski sker lagið frá öðrum í þessum geira er dýpri texti. Það verður fróðlegt að sjá hversu langt það lag nær en hvernig kom það til að Moon rataði á playlista úti í heimi? „Við viljum semja texta sem eru dýpri og hafa meiri meiningu en normið kannski er í raftónlistar- senunni, ég hlakka til að sjá við- brögðin. Ég hef fengið mikið af jákvæðum skilaboðum í gegnum Instagram-reikninginn minn og það er auðvitað mjög ánægjulegt. Það að komast á playlista hjá Spo- tify er ekki einfalt mál, maður þarf að láta vita af laginu áður en það kemur út og fylgja því eftir og t.d. hafði blaðamaður á virtu tónlistar- tímariti samband við mig. Hann kunni að meta Moon og skrifaði um það og eftir það fékk ég fleiri skilaboðasendingar og á endanum komst lagið á playlista sem tugir þúsunda út um allan heim eru að hlusta á. Spotify er ótrúlega öflugur miðill og ef maður kann á hann getur maður komið tónlist sinni á framfæri en það þarf að hafa fyrir því. Það eru mjög margir að gefa út tónlist í dag en það er ekki nóg að hlaða laginu inn á Spotify, maður þarf að vinna fyrir því að lagið veki athygli. Mér hefur gengið vel hingað til og tel að þegar maður er búinn að koma einu lagi í spilun, opnist dyr og auðveldara verði að ná því næsta inn en auðvitað þarf tónlistin að vera góð. Ég á mikið af efni sem ég hlakka til að vinna betur, m.a. með Elvari. Það verður spennandi að sjá hversu langt við náum,“ sagði Róbert Freyr að lokum. Semur lög sem rata út fyrir land- steinana „Það að komast á playlista hjá Spotify er ekki einfalt mál, maður þarf að láta vita af laginu áður en það kemur út og fylgja því eftir“ Ró be rt Fre yr In gv as on Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is Elv ar Þó r M ag nú ss on Störf í boði hjá Reykjanesbæ Fjármála- og stjórnsýslusvið Íþróttamannvirki Reykjanesbæjar - Skjalastjóri - Starfsmaður íþrótta- mannvirkja í Akurskóla Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn. Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn 10 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.