Víkurfréttir - 14.08.2024, Side 14
Við höfum gjarnan verið sam-
félag þar sem vinnan gengur
fyrir og talið dyggð að setja
vinnuna ofar öllu, að vinnan
göfgi manninn er eða var oft
sagt. Barneignir eru sannarlega
gleðilegar og oft skipulagðar en
ekki endilega og gjarnan ekki
fjárhagslega. Alls ekki allir
verðandi foreldrar leggja fyrir
til að eiga fyrir barneignum og þeirri
tekjuskerðingu og útgjöldum sem fylgja
í kjölfarið, eða hafa einfaldlega ekki tök á
því. Að loknu fæðingarorlofi tekur nefni-
lega við tímabil sem mörg kvíða, umönn-
unarbilið svokallaða (eða helvítisgjáin…).
Gjáin sem myndast þegar fæðingarorlofi
lýkur og biðin eftir leikskólaplássi hefst.
Hér er bent á eina leið til að mæta þessu
þó fyrsta skrefið að mínu mati sé alltaf að
lengja fæðingarorlofið í 24 mánuði. Við
erum vonandi samfélag sem setjum fjöl-
skylduna í fyrsta sæti og metum samveru
og nánd við okkar nánustu ofar
skyldum okkar sem launþega.
Við þurfum að gera það eðli-
legt að virkja þennan rétt til að
lengja fæðingarorlof eða stytta
vinnutímann börnunum okkar
til góða, líkt og gert er víða er-
lendis (í Svíþjóð og Hollandi
sem dæmi). Réttur foreldra til
töku foreldraorlofs, allt að fjóra
mánuði yfir 12 mánaða tímabil að átta
ára aldri barna er til staðar og er mikil-
vægur réttur foreldra til samvista við
börn sín. Vinnuveitendum ber að veita
foreldrum þetta leyfi og er þetta einn
liður í átt að barnvænu samfélagi þar sem
fjölskyldan er í fyrsta sæti.
Foreldraorlof er lítt notaður réttur for-
eldra barna undir átta ára aldri til að taka
launalaust orlof í allt að fjóra mánuði,
skiljanlega þar sem flest heimili stóla á tvær
fyrirvinnur. Orlofið gæti þó staðið vörð um
störf foreldra og verið eitthvað sem hægt
væri að nýta í meira mæli eins og gert er
erlendis. Árið 2022 voru níu foreldrar sem
nýttu sér þennan rétt. Orlofinu er þannig
háttað að foreldri þarf að tilkynna vinnu-
veitenda um orlofstöku með sex vikna fyrir-
vara. Ef vinnuveitandi sér sér ekki fært að
verða við ósk foreldris þarf hann innan viku
að koma fram með aðra útfærslu og bera
undir foreldri til samþykkis. Þetta þarf að
gera skriflega og tilgreina ástæður. Ef um
frestun á töku foreldraorlofs er að ræða
að beiðni vinnuveitanda þurfa ástæður að
vera sérstakar og ekki er heimilt að fresta
foreldraorlofstöku lengur en í sex mánuði
og óheimilt er að fresta orlofstöku sem er
í beinu framhaldi af fæðingarorlofi, sem
gæti sannarlega nýst einhverjum foreldrum
þessa dagana. Foreldraorlofi er einnig hægt
að dreifa yfir lengra tímabil og jafnvel sam-
hliða minnkuðu starfshlutfalli tímabundið
þegar aðstæður á heimili krefjast þess og í
samráði við vinnuveitanda. Þarna er ský-
laus réttur foreldra til fjögurra mánaða
orlofstöku í kjölfar barneigna og eins til
skerts starfshlutfalls ef það hentar betur, til
dæmis að vera í 50% starfi í átta mánuði þó
starfið sé skilgreint 100% alla jafna. Þetta
foreldraorlof er vissulega launalaust en er
mikilvægur réttur foreldra með ung börn
og getur sannarlega komið sér vel í kjölfar
fæðingarorlofs eða þegar tímabil í lífi barna
krefjast þess.
Við viljum flest lifa í samfélagi þar sem
almenn velsæld er í fyrirrúmi og áhersla
er lögð á velsældarhagkerfi. Þá þurfa bæði
aðgerðir stjórnvalda að miða að velferð og
lífsgæðum almennings og vinnuveitendur
að hafa í huga að ánægt starfsfólk sem fær
tíma og svigrúm til að sinna fjölskyldunni
er alla jafna betra og ánægðara í starfi.
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,
leik- og grunnskólakennari,
oddviti VG í Suðurkjördæmi og
stjórnarkona í hreyfingunni.
Möguleikar foreldraorlofs
Vertu velkomin(n) til okkar!
Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér
faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt.
Á þriðja tug göngugarpa tók þátt í útimessu við Prestvörðuna í Leiru á sunnudagskvöld. Hópurinn lagði upp frá
golfskálanum í Leiru og gekk um 600 metra upp í heiðina, þar sem vörðuna er að finna. Séra Sigurður Grétar
Sigurðsson, sóknarprestur í Útskálaprestakalli, sá um messuna og var með gítar í för. Messugestir klæddu
sig eftir veðri og tóku með sér gott nesti fyrir messukaffið eftir guðsþjónustu séra Sigurðar Grétars.
Messað við Prestvörðu í Leiru
14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM