Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.08.2024, Page 14

Víkurfréttir - 14.08.2024, Page 14
Við höfum gjarnan verið sam- félag þar sem vinnan gengur fyrir og talið dyggð að setja vinnuna ofar öllu, að vinnan göfgi manninn er eða var oft sagt. Barneignir eru sannarlega gleðilegar og oft skipulagðar en ekki endilega og gjarnan ekki fjárhagslega. Alls ekki allir verðandi foreldrar leggja fyrir til að eiga fyrir barneignum og þeirri tekjuskerðingu og útgjöldum sem fylgja í kjölfarið, eða hafa einfaldlega ekki tök á því. Að loknu fæðingarorlofi tekur nefni- lega við tímabil sem mörg kvíða, umönn- unarbilið svokallaða (eða helvítisgjáin…). Gjáin sem myndast þegar fæðingarorlofi lýkur og biðin eftir leikskólaplássi hefst. Hér er bent á eina leið til að mæta þessu þó fyrsta skrefið að mínu mati sé alltaf að lengja fæðingarorlofið í 24 mánuði. Við erum vonandi samfélag sem setjum fjöl- skylduna í fyrsta sæti og metum samveru og nánd við okkar nánustu ofar skyldum okkar sem launþega. Við þurfum að gera það eðli- legt að virkja þennan rétt til að lengja fæðingarorlof eða stytta vinnutímann börnunum okkar til góða, líkt og gert er víða er- lendis (í Svíþjóð og Hollandi sem dæmi). Réttur foreldra til töku foreldraorlofs, allt að fjóra mánuði yfir 12 mánaða tímabil að átta ára aldri barna er til staðar og er mikil- vægur réttur foreldra til samvista við börn sín. Vinnuveitendum ber að veita foreldrum þetta leyfi og er þetta einn liður í átt að barnvænu samfélagi þar sem fjölskyldan er í fyrsta sæti. Foreldraorlof er lítt notaður réttur for- eldra barna undir átta ára aldri til að taka launalaust orlof í allt að fjóra mánuði, skiljanlega þar sem flest heimili stóla á tvær fyrirvinnur. Orlofið gæti þó staðið vörð um störf foreldra og verið eitthvað sem hægt væri að nýta í meira mæli eins og gert er erlendis. Árið 2022 voru níu foreldrar sem nýttu sér þennan rétt. Orlofinu er þannig háttað að foreldri þarf að tilkynna vinnu- veitenda um orlofstöku með sex vikna fyrir- vara. Ef vinnuveitandi sér sér ekki fært að verða við ósk foreldris þarf hann innan viku að koma fram með aðra útfærslu og bera undir foreldri til samþykkis. Þetta þarf að gera skriflega og tilgreina ástæður. Ef um frestun á töku foreldraorlofs er að ræða að beiðni vinnuveitanda þurfa ástæður að vera sérstakar og ekki er heimilt að fresta foreldraorlofstöku lengur en í sex mánuði og óheimilt er að fresta orlofstöku sem er í beinu framhaldi af fæðingarorlofi, sem gæti sannarlega nýst einhverjum foreldrum þessa dagana. Foreldraorlofi er einnig hægt að dreifa yfir lengra tímabil og jafnvel sam- hliða minnkuðu starfshlutfalli tímabundið þegar aðstæður á heimili krefjast þess og í samráði við vinnuveitanda. Þarna er ský- laus réttur foreldra til fjögurra mánaða orlofstöku í kjölfar barneigna og eins til skerts starfshlutfalls ef það hentar betur, til dæmis að vera í 50% starfi í átta mánuði þó starfið sé skilgreint 100% alla jafna. Þetta foreldraorlof er vissulega launalaust en er mikilvægur réttur foreldra með ung börn og getur sannarlega komið sér vel í kjölfar fæðingarorlofs eða þegar tímabil í lífi barna krefjast þess. Við viljum flest lifa í samfélagi þar sem almenn velsæld er í fyrirrúmi og áhersla er lögð á velsældarhagkerfi. Þá þurfa bæði aðgerðir stjórnvalda að miða að velferð og lífsgæðum almennings og vinnuveitendur að hafa í huga að ánægt starfsfólk sem fær tíma og svigrúm til að sinna fjölskyldunni er alla jafna betra og ánægðara í starfi. Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, leik- og grunnskólakennari, oddviti VG í Suðurkjördæmi og stjórnarkona í hreyfingunni. Möguleikar foreldraorlofs Vertu velkomin(n) til okkar! Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt. Á þriðja tug göngugarpa tók þátt í útimessu við Prestvörðuna í Leiru á sunnudagskvöld. Hópurinn lagði upp frá golfskálanum í Leiru og gekk um 600 metra upp í heiðina, þar sem vörðuna er að finna. Séra Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur í Útskálaprestakalli, sá um messuna og var með gítar í för. Messugestir klæddu sig eftir veðri og tóku með sér gott nesti fyrir messukaffið eftir guðsþjónustu séra Sigurðar Grétars. Messað við Prestvörðu í Leiru 14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.