Víkurfréttir - 14.08.2024, Síða 16
Mundi
Það er enginn páfagauka-
lærdómur að lesa Víkurfréttir.
Skólarapp
„Hvaða dýrategund tengjast
orðin gæðingur, klár og fákur?”
spurði ung upprennandi útvarps-
stjarna félaga sína á einni vin-
sælustu útvarpsstöð landsins.
Annar þeirra gat ómögulega
svarað en hinn ákvað að láta það
fyrsta sem upp kom í huga hans
duga: „Selur!“. Nei hættið nú alveg
hugsaði ég um leið og ég slökkti á
útvarpinu og steig út úr bílnum.
Þessari ungu kynslóð er ekki við-
bjargandi!
Um kvöldið ákvað ég samvisku-
samlega að lesa bók um dýr fyrir
þriggja ára son minn áður en hann
svifi inn í draumalandið, með það
í huga að nú skyldum við setja allt
í botn við að auðga orðaforða hans
svo hann yrði ekki eins og félag-
arnir í útvarpinu. Honum fannst
spenarnir á kúnni merkilegir og
vildi fá að vita meira. „Jú sonur
sæll, þetta eru spenar og úr þeim
kemur mjólkin sem að… sem að
sko… barn kýrinnar drekkur. Eða
ekki barnið heldur afkvæmi hennar
sem kallast… hvað kallast það nú
aftur…“ Ég gat ekki fyrir mitt litla
líf munað hvað afkvæmin köll-
uðust. „Það eru allavega ekki
hvolpar eða kettlingar, því eins
og þú manst þá eru þeir afkvæmi
hunda og katta en börn kýrinnar
eru… já ætli það séu ekki bara kið-
lingar.“ Þegar barnið var sofnað,
ekki kiðlingurinn heldur sonur
minn, ákvað ég að gúggla þetta og
komst þá að því að ég hafði hreint
ekki haft rétt fyrir mér. Ekki frekar
en útvarpsdrengirnir sem ég hafði
úthúðað fyrr um daginn.
En er það nú kannski svo að
þessi orð, sem við erum svo áfjáð
í að ungmenni skilji í dag, þá sér-
staklega með tilliti til alþjóðlegra
kannanna, eru í lítilli sem engri
notkun í daglegu lífi þeirra? Ég
get ímyndað mér að ungu útvarps-
drengirnir ræði álíka oft um gæð-
inga og fáka og ég um kálfa. Við
búum við allt annan veruleika í
dag en bara fyrir tíu árum síðan.
Við erum líklegast öll sammála
því að tímarnir breytast og menn-
irnir með, en á það ekki einnig við
um tungumálið? Ég hef það á til-
finningunni að um miðbik síðustu
aldar hafi eldri kynslóðin fussað og
sveiað yfir því að ávaxtasafi hafi
verið kallaður djús en nú finnst
okkur fátt eðlilegra.
Nám nemenda nútímans er í
sífellt minna mæli byggt á æva-
fornum bókmenntum og páfa-
gaukalærdómi eins og tíðkaðist hér
áður fyrr þar sem börn þurftu að
læra urð og grjót, upp í mót utan-
bókar og þylja það svo upp fyrir
kennarann. Aftur á móti eru þeim
kenndar aðferðir við gagnlega upp-
lýsingaöflun. Aukin áhersla er lögð
á jafnrétti, lausnamiðaða hugsun
og að virðing sé borin fyrir skoð-
unum annarra. Svo ekki sé talað
um mikilvægi þess að þau finni
sinn farveg og þurfi þá ekki að
eyða dýrmætum stundum lífsins í
störf sem þeim þykja leiðinleg. Sem
þau svo aftur öðlast ekki með páfa-
gaukalærdómi einum saman.
ÍRISAR VALSDÓTTUR
Veistu hver sagði hlíðin er svo fögur?
Veistu hvað gerðist 44?
Hvað er langt á Húsavík? Hvað er óákveðinn greinir?
Veistu að Ingólfur og Hjörleifur þeir komu ekki einir?
Suður í Afríku eru ljón en í Kína eru grjón
Hvaða er Vatnajökull hár?
Sýndu mér hvað þú ert klár
Búmm cha a búmm búmm cha!
Alvarlegt vinnuslys varð í
Grindavík í síðustu viku. Starfs-
maður hjá Ægi sjávarfangi festi
hendi í vél.
Viðbragðsaðilar fóru þegar á
vettvang og var viðkomandi fluttur
á Landspítala Fossvogi. Lögreglan
og Vinnueftirlitið rannsaka slysið.
Sérsveitarmenn
frá ríkislögreglu-
stjóra aðstoðuðu
l ö g r e g l u n a á
Suðurnesjum við
handtöku á manni sem skotið
hafði úr haglabyssu í Garðinum
á laugardagskvöld.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglu-
stjóri, sagði í samtali við Vísi að að
skotin hafi ekki beinst að einum né
neinum. Þarna hafi verið óvarlega
farið með vopn í byggð. Maðurinn
var handtekinn og færður á lög-
reglustöð til yfirheyrslu.
Alvarlegt vinnuslys
Byssumaður í Garði
Vel lukkað kríuvarp
í Suðurnesjabæ
Kríuvarp í Suðurnesjabæ heppnaðist vel. Tvö
varplönd eru áberandi stærst. Annars vegar við
Norðurkot í Sandgerði og hins vegar við Ásgarð í
Garði. Á báðum stöðum kom krían upp stórum hópi
unga sem hún mataði með síli í öllum stærðum. Svo
virðist sem ástandið í hafinu hafi verið kríunni hag-
stætt. Nú er krían að leggja upp í þriggja mánaða
ferðalag á suðurskautið. Meðfylgjandi myndir voru
teknar við Norðurkot II í síðustu viku og þar má sjá
foreldra bera björg í bú og myndarlegan unga að fá
hita í kroppinn á götunni. VF/Hilmar Bragi
Hafnargata 45 | 421-3811 | opticalstudio.is
Ljósanæturtilboð
30% afsláttur af öllum vörum.
Annað par fylgir öllum margskiptum glerjum.
Tilboðið gildir 6. ágúst til 7. september.
REYKJANESBÆR