Mosfellingur - 11.07.2024, Qupperneq 20

Mosfellingur - 11.07.2024, Qupperneq 20
Jón Brynjar tekur við handboltastelpunum Jón Brynjar Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik til næstu tveggja ára. Hann kemur frá Víkingi en auk þess er hann starfandi þjálfari U-16 ára landsliðs kvenna. Davíð Svansson formaður meist- araflokksráðs kvenna: „Við erum mjög ánægð með að hafa fengið Jón Brynjar til félagsins og teljum hann vera mikilvægt næsta skref fyrir liðið til að ná lengra.“ - Íþróttir20 j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is AftureldingAr vörurnAr fást hjá okkur sport íslandi Mosfellingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, hefur fengið boð um þátttöku á Ólympíuleikunum í París í sumar en Alþjóða- ólympíunefndin staðfesti svo um helgina. Erna Sóley hefur verið iðin við keppnir síðustu vikur og mánuði og staðið sig afar vel. Hún sigraði meðal annars á Meistaramóti Íslands fyrr í mánuðinum og setti þar að auk Íslandsmet í leiðinni. Ólympíuleikarnir hefjast í París 26. júlí Fimm íslenskir kastarar áttu raunhæfa möguleika á því að enda meðal 32 efstu í sinni grein á stigalistanum og fá þar með sæti á Ól- ympíuleikunum en eftir að lokalistinn var uppfærður þá kom í ljós að ekkert þeirra náði því. Erna Sóley var þar þó efst Íslendinga í 34. sæti eftir Íslandsmetið sitt um síðustu helgi. Hún var því bara tveimur sætum frá því að vinna sér inn Ólympíusæti. Erna Sóley hefur ekki áður keppt á Ólympíuleikunum en hún verð- ur fimmti keppandinn sem kemst inn á leikana fyrir Íslands hönd, en þeir hefjast í París í Frakklandi 26. júlí. Fyrsta konan frá Íslandi í kúluvarpi Erna Sól­ey á Ól­ympíu­l­eikana Meistaramót Golfklúbbs Mosfellsbæjar fór fram um síðustu helgi í mikilli veðurblíðu á Hlíðavelli. Það var í raun þannig að veðrið lék við kylfinga alla vikuna að undanskildum fyrsta deginum þar sem veðuraðstæður voru mjög svo krefjandi. En eftir það tók við logn, sól og blíða. Þegar upp var staðið voru það þau Kristj- án Þór Einarsson og Berglind Erla Baldurs- dóttir sem eru klúbbmeistarar GM í ár. Berglind Erla lék mjög stöðugt golf alla hringina og á lokadegi og skilaði hún inn hring upp á 72 högg sem tryggði henni titillinn. Kristján Þór lék stórvel og kom inn á nýju mótsmeti, hann var samtals 17 högg- um undir pari og bætti einnig vallarmetið á öðrum hring þegar hann kom inn á 64 höggum. Sannarlega flott mót hjá Kristj- áni. Hér að neðan má sjá úrslit í þeim flokk- um sem luku leik á laugardaginn. Öll úrslit mótsins má finn á www.golfmos.is Meistaraflokkur kvenna 1. sæti - Berglind Erla Baldursdóttir 2. sæti - Kristín Sól Guðmundsdóttir 3. sæti - Katrín Sól Davíðsdóttir. Meistaraflokkur karla 1. sæti - Kristján Þór Einarsson 2. sæti - Björn Óskar Guðjónsson 3. sæti - Nick Carlson 1. flokkur kvenna 1. sæti - Sara Jónsdóttir 2. sæti - Andrea Jónsdóttir 3. sæti - Edda Herbertsdóttir. 1. flokkur karla 1. sæti - Guðjón Ármann Guðjónsson 2. sæti - Örn Ragnarsson 3. sæti - Steinar Ægisson 2. flokkur kvenna 1. sæti - Dagný Þórólfsdóttir 2. sæti - Auður Ósk Þórisdóttir 3. sæti - Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir 2. flokkur karla 1. sæti - Snæbjörn Þórir Eyjólfsson 2. sæti - Björn Maríus Jónasson 3. sæti - Gunnar Birgisson Samtals voru 36 iðkendur frá Aftureldingu, ásamt 3 þjálf- urum og 3 fararstjórum. Það voru a.m.k. 33 foreldrar og systkin sem fóru til Gautaborgar að hvetja liðin þrjú áfram í sinni keppni. Það sem eftir stendur eru minningarnar um skemmtilegt mót, bæði gott veður en líka rigningu, en öll Aftureldingarliðin sýndu sínar sterkustu hliðar í rigningunni. Afturelding B15, 15 ára drengir fæddir 2009, spilaði ásamt 87 öðrum liðum frá 16 löndum í sínum flokki. Þeim var skipt í 14 riðla og Afturelding vann sinn riðil í fyrstu umferð. Liðið komst þannig áfram í A-úrslit og vann áfram til fjögurra leikja úrslita en datt þá út, hafnaði því í 5.-8. sæti á mótinu í sínum aldursflokki. Kristján Andri Finnsson, Jökull Ari Sveinsson og Bjarni Ásberg Þorkels- son skoruðu flest mörkin í þeirra leikjum. Afturelding B16, 16 ára drengir fæddir 2008, spilaði ásamt 113 liðum frá 19 löndum og þar var skipt í 18 riðla. Liðið hafnaði í 3. sæti í sínum riðli og komst áfram í A- úrslit og svo áfram í 32 leikja úrslit en datt þá út. Viktor Nökkvi Kjartansson, Atli Fannar Hákonarson og Alexand- er Sörli Hauksson voru markahæstir í liðinu. Afturelding G16, 16 ára stúlkur fæddar 2008, spilaði ásamt 96 liðum frá 9 löndum. Liðin skiptust í 16 riðla og varð lið Aftureldingar neðst í sínum riðli en fór áfram í B-úrslit. Þá fóru hlutirnir að ganga upp og þær unnu sig áfram í 8 leikja úrslit og duttu út þar. Hanna Marey Bjarnadóttir, Sara Viðarsdóttir og Elísabet Jónsdóttir voru markahæstar í liðinu. 36 frá Aftu­rel­dingu­ á Partil­l­e Cu­p lagt á ráðin fyrir leik Meistaramót GM fór fram í veðurblíðu um síðustu helgi • Kristján Þór Einarsson og Berglind Erla Baldursdóttir Kristján Þór og Bergl­ind Erl­a kl­úbbmeistarar Meistararnir í Mosó Mosfellingur á ólyMpíuleikana

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.