Alþýðublaðið - 02.02.1920, Síða 3

Alþýðublaðið - 02.02.1920, Síða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Bókafregn. fer héöan áleiðis til New York miðvikudaginn 4. febrúar kl. 2 síðdegis. Farþegar sæki farseðia á mánudag. m Allir farþegar verða að hafa vegabréf frá lögreglu- stjóra, uppáskrifað af brezka konsúlnum hér. Hf. Eimskipafélag íslands. Arne Möller: Sönder- jylland eftir 1894. Ud- givet af Dansk-Isl. Sam- fund. Gyldendal 1919. Arne Möller prestur er kunnur af góðu einu öllum þeim ísland- ÍDgum, sem í Kliöfn hafa dvalið, ekki aðeins vegna þess, að hann formaður í Dansk-Islandsk Samfund, heldur engu að síður vegna alls þess góða, sem þeir eiga honum að þakka. Hann var hér síðastliðið sumar og sjaldan heflr jafn góðan gest borið hér að garði, enda var fjölment i dómkirkjuna, er hann prédikaði í henni. Arne Möller er föðurlandsvinur, enda ber bókin þess glögg merki, en hfln er íslendingum ætluð til að Ver getum kynst högum þeirra Hana, sem síðan 1864 hafa verið kúgaðir og undirokaðir á óheyri- 'egan hátt af junkaravaldinu prúss' heska í Suðurjótlandi. Betri mann, en séra Arne Möller, var tæplega hægt að fá til að lýsa þjóðernisbaráttu Suður- jóta, því bæði er hann gáfumaður °g auk þess skín göfugmenska hans alstaðar gegn um bókina. Hann lýsir öllu því, sem dunið hefir yfir hina trygglyndu og sterku Jéta á þessum árum, sem að vísu ekki eru ýkjamörg, en þó myrk °g döpur. Þúsundir Suðurjóta hafa verið reknir frá heimilum sínum og varpað í íangelsi fyrir þær sakir eÍQar, að þeir ekki vildu játa sig hjóðverja. Öllu því lítilfjörlegasta Sena hugsast getur var beitt til hess, að gera þá þýska. Þeim var hannað að tala dönsku á fundum, i>eir voru reknir í útlegð o. s. frv. Hinir opinberu starfsmenn keyptu iáráðlinga til að bera falsvitni gegn heim, sem fremst stóðu í þjóðernis- haráttunni. Hér er ekki rúm til að teija upp alla þá rangsleitni, sem ^rússar beittu í Suðurjótlandi, lQeðan „Alþýzki flokkurinn" fór lQe<5 völd, en eg vil aðeins nefna eitt atriði, sem tekið er í hókinni. »Eg (o: séra Arne Möller) talaði haustið 1906, samkvæmt boði í ^tosuin. stöðum í Suðurjótlandi, aðallega heima hjá mönnum. Meðal anQars a bæ einum rétt fyrir ^arman landamærin og stofurnar voru fullar af fólki þaðan úr sókn- rnni, en því hafði verið boðið í kyrþey. Þegar menn voru farnir og eg ætlaði að hátta, kom bónd- inn, sem var maður á unga aldri, inn og bað mig að tala við föður sinn. Hann hafði falið sig í svefn- herberginu meðan eg talaði. Pví hann var rækur frá bæ þeim, er feður hans höfðu bygt og hann sjálfur átt lengi. Og nú læddist hann stundum á næturþeli yfir landamærin til að sjá gamla heim- ilið sitt og gröf konu sinnar. Þegar han kvaddi og eg sá hann læðast útlægan frá sínu eigin heimili, út í næturmyrkrið, skildi eg hvað 1 það er, að vera ofsóttur af Prúss- um.“ Þegar styrjöldin hófst, voru Suðurjótar sendir til vígstöðvanna til að berjast þar fyrir þeirri stjórn, sem í 50 ár hafði gert þeim alla þá bölvun, er hún mátti. 25000 Danir urðu að skipa sér undir prússneska ránfuglinn — 6000 létu lífið — menn segja, að þeim hefði verið otað fremst. 6000 ungum og röskum Jótum blæddi til ólífis fyrir þá, sem aldrei höfðu gert þeim annað en ilt eitt. Allir menn hijóta að vera þakk- látir séra Arne Möller fyrir bók hans. Meðlimir Dansk-Islandsk Samfand á íslandi fá hana ókeypis, auk allra smárita félagsins. Hún ætti því að hvetja íslendinga til að ganga í það, minna getum vér ekki gert til að votta formanni þess þakklætt vort fyrir alt það er hann hefir svo vel gert. Árs- gjald í félaginu er aðeins 2 krón- ur og mun biskupinn, dr. Jón Helgason, umboðsmaður þess hér á landi. + Koltsehak. Khöfn 30. jan. Koltschak er að reyna að bjarga Tékkóslavahernum í Síberíu [und-. an bolsivíkum]. Judenitseh. Khöfn 30. jan. Sagt er að Judenitsch [hershöfð- ingi, sem í haust reyndi að taka Petrógrad, en fór mestar hrak- farirnar fyrir Bolsivíkum] hafi verið tekinn höndum af sínum eigin mönnum. Fundup Nocðurlanda* i»áðlu©)f?s?a. Khöfn 31. jan. Frá Kristjaníu er símað, að fundur Norðurlanda ráðherra verði haldinn þar 4. febrúar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.