Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1952, Side 7

Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1952, Side 7
A B B E Y - L E I K H Ú S I Ð. Þjóðleikhás Irlands. Aðfaranótt 18. júlí 1951 brann Abbey-Ieikhúsið í Dyflinni. Eldurinn kom upp á leiksviðinu og gereyðilagði þann hluta byggingarinnar, búninga- og tjaldageymslur og vistarverur leikaranna. Ahorfendassalurinn stórskemmdist af cldi og vatni, en hið fræga málverkasafn af skáldum og leikurum í anddyri ieikhússins slapp að mestu óskaddað af öðru en reyk og hita. A leikkvöldum höfðu Ieikhúsgestir verið vanir að safnast þarna saman, fá sér hressingu og ræða um gang leiksins, sem verið var að sýna, og hafði þá stundum komið fyrir, að hitnaði í umræð- unum, svo að jafnvel lögregla og herlið var kvatt á vettvang. Aldrei liafði þó sá hiti leikið hina öldnu byggingu svo grátt sem nú gálaus meðferð sígarettustubbs, þvert á móti, hinar tíðu og hörðu deilur um verkefni þjóðleikhússins írska lýsa eins og eld- stólpar á langri og söguríkri slóð eins merkasta leikhúss vest- rænnar menningar. Myndir brautryðjenda, skálda, listamanna og leikara, voru ekki teknar niður eftir brunann. Þær héngu eftir sem áður í anddyrinu. W. B. Yeats fyrir iniðju andspæn- is inngöngud.yrum sem vera bar, á hægri vegg til hliðar Lady Gregory, „ræstingarkonan í Abbey“, sem Shaw kallaði. og hin- um meginn, náttúrlega, önnur Ijósmóðir hússins, Miss Horni- man, hvorug á vegg með Yeats, og gera ekki meira en svo að þola návist hvor annarar, þó að allt andd.yrið sé á milli. Hér er líka mynd af Maud Gonne, fyrstu Caitlin ni Houlihan eða Fjallkonu Irlands, og stór mynd er af Söru Allgood, leikkonunni góðu, en fyrst og fremst eru það skáldin, leikritaskáldin, sem sitja í fyrirrúmi. Dufþekkur Synge starir fjarrænu augnaráði út í keltneskan buskann, þar sem aldan brýtur á Aran og þýtur í eik í Wicklowdölum. Yfir te-borðinu vindur Lennox Robinson upp á hina löngu fætur sína eins og indverskur fakír og rétt við uppgönguna á svalirnar hefur sviðnað í kringum málverk af Sean O'Casey, og hefur þá fyrr hitnað í kringum þann mann. Strax eftir brunann fékk leikhúsið inni til bráðabirgða í rúm- góðu samkomuhúsi í borginni, svo að engin sýning féll niður þess vegna, en nýverið hefur stærsta leikhús borgarinn- [ 5 ]

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.