Eldey


Eldey - 01.03.1948, Qupperneq 1

Eldey - 01.03.1948, Qupperneq 1
ÍCSni: ★ ,,Eigi skal gráta . . .“ Vr Hvað segir hann núf 'k Hver stöðvaði bæk- urnarf ★ Alþjóða barnahjálpin. ★ Saga um morð. Nýtt Mað. Það kann að þykja nokkuð djarft tiltæki, að hefja útgáfu þriðja blaðsins hér í Keflavík, en um það má hver halda sinni skoðun. Við nánari athugun mun raunin verða sú, að seint sé of mikið af því sem óbundið er, að seint sé of mikið af vett- vöngum frjálsrar hugsunar. Tök- um dæmi af Reykjavík. Þar koma út '5 dagblÖð, enda þótt aðeins séu tvær megin skoðanir sem eigast við, þegar öllum smá- munalegum einkahagsmunum er sleppt. Hví skildum við ekki, í verðandi borg, liafa á prjónun- um 3 blöð, sem koma út næst- um því einu sinni í mánuði hverjum? Það hlutfall er sízt of hátt. Hin blöðin, sem hér koma út, eru ágæt, hvert á sínu sviði, bæði lífs og liðin, enda er þessu blaði ekki ætluð barátta við þau, frekar en ástæður krefjast á hverjum tíma, miklu frekar sam- starfs, ef það kann að leiða til heilla í málefnum lands og þjóð- ar eða sérmálum Keflavíkur og nærliggjandi byggða. Það er svo margt bakvið tjöld- in í okkar þjóðfélagi. Það er svo margt sem er háð kunningsskap eða vináttu einstaklinga, svo margt, sem er þjóðhættulegt, sem er framkvæmt eftir þeim leiðum, sem lítt vitkuðum börnum hæf- ir, en er ósegjanlega hættulegt í munni og framkvæmd fullorð- ins fólks — hér er átt við þetta algenga og velþekkta fyrirbrigði — „ef þú gerir þetta, þá skal ég gera hitt“ —, þetta er svartur markaður, sem nær frá hinum ómerkilegasta skömmtunarbók- arsala til margra æðstu valda- rnanna í þjóðfélaginu. Þessu blaði er ætlað það hlut- verk að vera óflokksbundin rödd, sem getur flutt og vill flytja eitthvað af því, sem þarf að koma fyrir sjónir almennings en hvergi á innangengt, vegna margvíslegxa einka- og flokks- hagsmuna. Blaðinu er það ljóst, að slíkt er vanþakklátt verk og oftast illa launað. En laun, í venjulegri merkingu þess orðs, er ekki það, sem eftir er verið að sækjast, 1. ár Keflavík - Marz - 1948 1. blað KRISTINN PÉTURSSON: ELDEY y Sigghendur tímans sviðnar lendur flosa. Brautingjans iljar blessa gljúpan 'mosa. Áning er þæg i örmum mjúkra kvosa. Hjalandi bdra hugann að sér laðar, andnesið hrjúft i aftanskini baðar. Hvort ertu, Jörð min, heilluð, numin staðar? 9 Guðinn að hafi glóhnettinum ekur. Áliðinn dagur enn til söngva vekur. Siðbúinn már af sundi flugið tekur. II. Éinn saman lit ég úti i hcegum kveldþey stíga úr blárri straumröst hvita Eldey, svipfriða eins og seglum búið kveldfley. Eldmey i kveldþey, útvörður í djúpi, Ijúflinga vernd og likn i alda hjúpi. Fullvel ég sé, þótt friðsœld nú þér krjúpi, rnynd þína i vörn gegn marnum hyggjuvalda. Djúpúðg og snortin dvelur þú við salta vinda — og þreyir vökul ungan Hjalta. 111. Stirnir af þeim, er standast hranna dýfur. Heill þeirri dirfð, sem hamrabeltin klifur. Guðsást þeim anda, er geisluð loftin svífur. Úti við skagans œgisendna jaðar, viðs fjarri öld, sem villtum hraða hraðar, einveran Ijúfa öðuskeljum raðar. ■ Birtast á himni boðorð dagsins nýja, óminnis töfrar út í geiminn flýja. Tunglið mitt góða, tak mig upp til skýja. heldur árangur í framfaraátt fyr- ir þjóðina og byggðarlagið, sem þetta blað á heima í. Það verð- ur að skeika að sköpuðu, hvernig málflutningi blaðsins verður tek- ið, en eitt er áreiðanlegt, að það tekur ekki þátt í hinum póli- tíska svarta markaði og mun ekki virða að neinu fögur fortjöld, sem grár leikur er æfður bakvið. Þetta blað segir alla boðna og velkomna, sem vilja ljá lið sitt til að skapa meiri einingu í í opinberum viðskiptum. Þetta blað lætur sér ekkert mannlegt óviðkomandi og mun leitast við að taka á hverju máli svo sem vit þess og orka leyfir, frá því sjónarmiði einu, sem Islandi og framtíð þess má til mestra heilla verða. Að sjálfsögðu er vettvang- ur blaðsins fyrst og fremst hér í Keflavík og í hinum nærliggj- andi byggðum Reykjanesskag- ans. Þar er margt, sem betur mætti fara, og síst of margar þjóðfélaginu og meiri heiðarleik hendur, sem að heill vilja vinna. LAHDSBOKASAFN 254344 ÍSLANDS . „Eiái skal áíáta • • Það má nú flestum vera ljóst, að íslendingar eru að byrja að glíma við verulega fjárhagsörð- ugleika, og mikið veltur á, hvern- ig sú glíma tekst. En eitt er víst, að það að taka mannlega á móti, ræður miklu um, hver sigurinn vinnur. Við höfum undanfarin ár átt mikilli og vaxandi velgengni að fagna og ekki þurft að ganga í gegnum þær eldraunir, sem svo margar aðrar þjóðir þurftu að gera, með- an styrjöldin geisaði. Og þjóðin vann vel, fórnaði miklu og græddi mikið á styrjaldarárun- um, og sú varð raunin á, að hún stóð réttu megin við stríðslokin. (Skilningstré góðs og ills er eins og önnur tré, að því leyti, að það sendir skuggann frá sér eftir því, hvernig sólin fellur á það.) Nú er stríði og stríðsgróða lokið, og aftur þarf að taka upp friðsamleg störí á friðsamlegum grundvelli. Það er runnið af þjóðunum, — vígmóðurinn er runninn af þeim, og sumar eiga lítið annað en spillta akra og brunnar borgir, þreytt og sið- ferðilega lamað fólk. Ennþá einu sinni stöndum við betur að vígi en margar aðrar þjóðir, við eigum mikið af fram- leiðslutækjum, við eigum vélar, verksmiðjur og tæki til þess að skapa okkur nýjan, haldgóðan auð. Við eigum mikið af manna- bústöðum, þó nokkuð kunni að vanta til að fullnægja þörfinni, en þarfir okkar og kröfur til lífs- þæginda hafa, sem betur fer, aukist mjög mikið. Þjóðin hefur aldrei verið bet: ur undirbúin til að mæta örðug- leikunum en einmitt nú og al- veg ástæðulaust að ætla að það takist ekki ef þjóðin vill. Við höfum aflað mikils og eytt mi’klu, sumt höfum við farið illa með en mikið meira Itefur verið farið vel með. Sá er jafnan hátt- ur lítilla manna og óvita barna að kenna ávalt öðrum um allt sem miður hefur farið og sú moldvörpustarfsemi er unnin hér af miklum dugnaði. Einn hópur kennir heildsölum og öðr- um verzlunarmönnum um allt sem aflaga hefur farið, annar # Framhald á 3. bls.

x

Eldey

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eldey
https://timarit.is/publication/2019

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.