Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 4

Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 4
Fyrir skilnaðinn nam umsetning utan- bæjardeilda Kron nál. 30% af heildar- sölu. Niðurstaðan verður því sú að frá árslokum 1944 til ársloka 1946 hefur vörusala Kaupfél. á félagssvæði Kron aukizt úr 13,3 milljónum í ca. 20 millj- ónir og enda þótt um nokkra verðhækk- un sé að ræða á þessu tímabili, er aukn- ing viðskipta Kaupfélaganna augljós. Það hefur komið í Ijós að skilnaður- inn hefur verið réttur skipulagslega séð, þó að á meðan á honum stóð. hafi hann valdið Reykjavíkurdeildinni talsverðra örðugleika, eins og franr kom af rekst- ursafkomu félagsins árið 1945. A síðasta ári var endanlega gengið frá skilnaði Sandgerðis- og Grindavík- urdeilda. Þessar deildir voru reknar sem sjálfstæð Kaupfélög, Sandgerðisdeildin frá 15. maí, en Grindavíkurdeildin frá 1. ágúst 1946. Vörusala þessara heggja deilda var fyrri hluta ársins 1946 á nreð- an þær voru reknar undir stjórn Kron 285 þús. krónur. Grindavíkurdeildin er nú runnin saman við Kaupfélag Suður- nesja en í Sandgerði er risið upp Kaup- félagið Ingólfur, sem áður var Sand- gerðisdeild Kron. Eins og að framan greinir liggja ekki enn þá fyrir endanlegar skýrslur um rekstur Kron fyrir árið 1946. Þó má fullyrða, að afkoman s.I. ár er að mun betri en árið áður. Matvöruflokkurinn hefur unr margra ára skeið verið rekinn með óhagstæðum árangri, en jafnvel þótt að ekki verði sagt að þessi grein verzlunar sé ennþá ákjósanleg, er um talsverða framför að ræða. Nánari greinargerð fyrir reksturinn ahnennt verður að bíða næsta heftis félagsrita, en þá mun árskýrslan frá 1946 væntan- lega birt. Vörukaup og vöruskortur Það leikur ekki á tveim tungum, að oft er ástæða til að kvarta yfir vöntun á ýmsum vörum, og fer KRON ekki var- hluta af slíkum k\ Hrtunum frekar en aðrir þeir, sem við vörudreifingu fást. Flestir munu á einu máli um það, að á meðan innflutningsverzlunin byggist ekki á nákvæmri áætlun, þ. e. að áætlun sé gerð um þarfir þjóðarinnar á magni hverrar vörutegundar megi alltaf húast við vöruskorti eða óhófsinnkaupum, sem hlýtur óumflýjanlega að hafa óheppileg áhrif á gjaldeyrismál þjóðarinnar. Eins og kunnugt er eru það helzt tvö innkaupasambönd, ,sem aðallega flvtja nauðsynjar til landsins, þ. e.: Impuni = Innkaupasamband kaupmanna ög S.I.S., sem er innkaupasamband Kaupfélag- anna. A stríðsárunum voru kaupmenn og kaupfélög að mestu leyti komnir upp á þessi sambönd sín með vöruútveganir og munu verða svo enn, á meðan vand- kvæði eftirstríðsáranna um framleiðslu og dreifingu bráefna og fullunninna vara eru óbreytt. A stríðsárunum lagði S.I.S. afar mik- ið upp úr því, að vera vel byrgt af hvers kyns matvörum og má segja að það hafi 2 Félagsrit KRON

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.