Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 5
Matvörubúð KRON á Þórsgötu 1
A myndinni sést sytíri hluti búðarinnar ásamt starfsfólki, sem er talið jrá vinstri: Sigríður
Sörensdóttir, Kristinn Karlsson og Bergþóra Benediktsdóttir. Búðin tók til starfa 29. nóv. 1946.
tekizt mjög vel. Eftir stríðið byrja vand-
kvæðin við útvegun ýmsra vara, vegna
þess að Evrópulöndin, sem illa voru
leikin af völdum stríðsins, vantaði svo
að segja alla hluti.
Aðalframleiðslulandinu Ameríku varð
um megn að fullnægja eftirspurninni.
þar sem hún jókst svo gífurlega, og Is-
land var meðal þeirra landa, sem þurftu
að útvega sér ný verzlunarsambönd
bæði til sölu og kaupa, þó ílestar teg-
utidir matvæla komi enn frá Ameríku.
Erfiðast virðist vera að útvega vörur
sem unnar eru úr feitmeti, og er orð-
inn tilfinnanlegur skortur á sápum og
þvottaefni.
Vandkvæðin með innflutning ávaxta
þekkja allir, þarf ekki að fjölyrða um
þau, og er nú svo komið að hið háa
Alþingi er farið að ræða þau mál, og
mætti því ætla að úr rættist.
Ákveðtiar óskir hafa kornið fram frá
félögumKron um útvegun heimilistækja,
eftirspurnin er gífurleg, en möguleikar
um gjaldeyrir þess lands, senr framleiðir
ódýrustu en jafnframt beztu tækin. Ame-
Félagsrit KRON
3