Félagsrit KRON - 15.02.1947, Qupperneq 10
félögin með því að koma með skynsam-
lega gagnrýni og tillögur um endurbæt-
ur á starfseminni. Eg býst við að marg-
ar ykkar séuð ekki sjálfar í félaginu,
heldur sé það húsbóndinn og sumum
ykkar finnist því að þið berið minni
ábyrgð á starfsemi félagsins. En eins og
ykkur er kunnugt af lögum Kron, geta
hjónin mætt á fundum, hvort sem er,
og greitt atkvæði hvort fyrir annað. Þið
berið jafnmikla ábyrgð á fjárhag heim-
ilanna og húsbóndinn, en þar sem það
eruð aðallega þið, sem kaupið vöruurn-
ar, handfjadið þær daglega og vinnið
úr þeim og með þeirn, er það skylda
ykkar að gefa félaginu bendingar um
vöruval og þvílíkt. Það eruð þið hús-
mæðurnar, sem daglega kaupið vörurnar
og þið ákveðið hvar þær eru keyptar.
Félagið gerir þá kröfu til ykkar, að þið
verzlið ekki annars staðar að nauð-
synjalausu. Samvinnufélögin hafa leit-
azt við að nota ætíð sem mest eigið
rekstursfé og inneignir félagsmanna sem
veltufé, til þess að vera óháð lánar-
drottnum.
Kron vinnur nú að því að auka rekst-
ursfé sitt, fá heilbrigðan grundvöll til
þess að geta komiö upp fleiri sölubúð-
um og unnið annað það í þágu félags-
manna, sem okkur dreymir um. Við
megum ekki gleyma því, að með því að
verzla við félagið aukum við vöruvelt-
una, en þar sem hundraðshluti allrar
viðskiptaveltu er lagður í varasjóð og
vissir hundraðshlutar af viðskiptaupp-
hæð hvers félagsmanns á ári hverju eru
lagðir í stofnsjóð, en báðir þessir sjóðir
eru notaðir sem veltufé félagsins, þá sjá-
um við að allar húsmæðurnar innan
Kron geta haft geysileg áhrif á það að
auka eigið veltufé félagsins. Kron krefst
þess því af húsmæðrunum, að þær hafi
þetta stöðugt hugfast. Félagið óskar
þess að húsmæðurnar kynni sér árs-
skýrslurnar sem bezt. En ef þær gera
það og skilja mál talnanna, er engin
hætta á öðru en þær hugsi sig um, áður
en þær verzla annars staðar, því enginn
vill vinna gegn sínum eigin hagsmunum.
Húsmæðurnar geta líka haft áhrif á það
að sntá upphæðir séu lagöar í innláns-
deild félagsins. Innlánsdeildin verður
líka til þess að auka sjálfstæði félagsins
og fá því veltufé í hendur og margt
smátt gerir eitt stórt.
Kaupfélagið óskar þess einnig, að
húsmæðurnar útskýri tilgang félagsins
fyrir kunningjakonum, sem þær hitta
af og til og ekki eru í félaginu, og
stuðli þannig enn að því aö efla félagið.
Það er oft sagt að kvenþjóöin sé mest
gefin fyrir óljósa dagdrauma og sé illa
við allar staðreyndir, sérstaklega ef þær
eru settar fram með tölum. Það er
nauðsynlegt að láta sig dreyma, en
draumana verðum við að framkvæma
með nákvæmum útreikningi og leiðin-
legri þrautseigju og ef við viljum að
eitthvað sé framkvæmt af okkar eigin
félagssamtökum, verðum við að gera
okkur Ijóst, hvaða fj árhagsgrundvöllur
er fyrir hendi. Þetta vitum við ekki og
þurfum því helzt að mynda námshringi
og umræðuhópa til þess að skilja áhuga-
Auhin viðshipti y&ur shapu
mötfleika fyrir fleiri
KRON-búöum
8
Félagsrit KRON