Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 11

Félagsrit KRON - 15.02.1947, Page 11
mál okkar í stærra samhengi og vinna að framkvæmd þeirra. Samvinnuhreyfingin hefur allt frá byrjun lagt mikla áherzlu á fræðslu og kynningarstarf alls konar, og fljótt skyldist mönnum, hve geysileg áhrif húsmóðirin gat haft á þróun samvinnu- hreyfingarinnar, vegna þess að hún kemur daglega fram sem fulltrúi neyt- endanna. Samvinnukvenagildin eða félögin, sem fyrst eru stofnuð í Englandi og hafa víða, t. d. í Svíþjóð, náð mikilli útbreiðslu, starfa bæði að fræðslu hús- . mæðra um samvinnumál og um störf húsmæðranna almennt. Þau eru nú til innan flestallra neytendafélaga í Sví- þjóð. Stundum hafa þau einnig haft með höndum fræðslu út á við um möguleika samvinnuhreyfingarinnar til þess að létta heimilisstörfin og víða út um hyggðirnar hafa þau átt frumkvæðið að því að hrinda samvinnuþvottahúsamái- inu í framkvæmd, og þá oft getað unnið með öðrum kvennasamtökum. Smám saman hafa þessi kvennasamtök orðið ráðgefandi aðilar í starfi sænsku sam- vinnuíélaganna og upp af þessari starf- semi hefur svo sproltið húsmœðraráð sænska sambandsins. Það var stofnað 1944. Það er skipað rúmum 20 konum fulltrúum húsmæðra úr kaupstað og sveit, sérfræðingum á ýmsum sviðum heimilisstarfa, og félagsfræðingum. Ráð þetta heldur flesta fundi sína í smáhópum og skiptir með sér verkum, þannig að einn hópurinn fjallar um matvörur, annar um áhöld til heimilis- notkunar, þriðji um vefnaðarvörur og húsgögn, fjórði um tilbúinn fatnað, fimmti um samvinnustofnanir til léttis heimilisstörfum, svo sem samvinnu- þvottahús, sjötti um fræðslu. Ráð þetta kemur einnig með ýmsar uppástungur um val á vörutegundum og framleiðslu á öðrum, sem heimilin skorta. Það leikur enginn efi á því að þessi samvinna húsmæðranna við stjórn neytendafélaganna hefur þegar haft mikil áhrif á vöruval og vöruvönduu fyrirtækjanna, og þá jafnframt á vöru- val og vöruvöndun einkafyrirtækjanna, á sama hátt og kaupfélögin hafa lækkað verðið hjá kaupmönnunum. Sjónarmið neytandans hefur þannig náð meiri á- hrifum. Velferð alls mannkynsins í framtíð- inni byggist að miklu leyti á því, að sem flestir skilji og viðurkenni, að eini skynsamlegi tilgangur allrar framleiðslu, vörudreifingar og verzlunar er að upp- fylla sem flestar þarfir allra neytenda. Neytendasamtök á samvinnugrundvelli geta átt geysimikinn þátt í því að efla þennan skilning. FélagsiiiannaÉal Félagsmenn 31. des. 1945: 6033. Dánir og gengnir úr á árinu 1946: 24. Gengu úr vegna Sandgerisdeildar: 61. Gengu úr vegna Grindavíkurd.: 43. Fluttir burt af félagssvæðinu án þess þó að hafa formlega sagt sig úr KRON: 107. Nýir félagsmenn á árinu 1946: 255. Félagsmenn 31. des. 1946: 6103. Félagsrit KRON 9

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.