Félagsrit KRON - 15.02.1947, Side 14
Rafknúnar
lieimilisvélar
A aðalíundi Reykjavíkurdeildar Kron
og á aðalfundi félagsins á s.l. ári kom
fram og var samþykkt lillaga, sem átti
miklu fylgi að fagna. Tillaga þessi var
áskorun til Viðskiptaráðs og viðskipta-
málaráðherra að veita KRON innflutn-
ing á rafknúnum heimilisvélum eftir
þörfum félagsmanna. Strax eftir fundina
fóru félagsmenn að láta skrá sig á skrif-
stofu félagsins fyrir einni og annarri
tegund þessara véla.
Tillagan var tilkynnt hlutaðeigandi
aðiljum og forráðamenn félagsins sóttu
strax formlega um þennan innflutning.
Fyrst í júní fékk félagið 43 ísskápa og
100 hrærivélar frá Ameríku á vegum
S.Í.S. og var því úthlutað til þeirra fé-
lagsmanna, er fyrstir létu skrá sig. Til
viðbótar þessu átti svo félagið á vegum
verði neitað að endurnýja týnda seðla.
Félagsmenn verða því að gæta þess vel
að týna ekki seðlunum.
Lokaorð
Félagsmenn ættu að taka allt það, sem
hér hefur verið sagt til athugunar. Auka
viðskipti sín við félagið og halda arð-
miðum sínum vel til haga, til þess að
verða í sem ríkustum mæli aðnjótandi
þeirra hlunninda, sem vörujöfnunin
veitir.
S.Í.S. innflutningsleyfi fyrir 40 þvotla-
vélum og 100 hrærivélum, en ekkert af
því fékkst afgreitt frá Ameríku á s.l. ári
og var borið við verkföllum þeim, er þar
voru á árinu. Isskápa hefði þó sennilega
verið hægt að fá afgreidda. En þrátt
fyrir margítrekaðar tilraunir forráða-
manna KllON fengust alls ekki afgreidd
á síðasta ári meiri leyfi en að framan
getur.
Eftirspurnin eftir vélunum er hinsveg-
ar mjög mikil og 24. jan. s.l. lágu fyrir
hjá KRON óafgreiddar pantanir frá fé-
lagsmönnum á: 597 hrærivélum, 449
þvottavélum, 470 ísskápum, 147 strau-
vélum og 12 eldavélum. Margir félags-
menn hafa þó hætt. við að láta skrá sig,
sökum þess hve margir voru fyrir og
vegna þess að alls engin loforð var hægt
að gefa um afgreiðslu.
Ekkert er að svo stöddu hægt að segja
um, hvaða skilning og vilja forráða-
rnenn ínnflutningsins ætla á þessu ári
að sýna í þessu þýðingarmikla máli
heimilanna, en væntanlega sjá þeir þó
eitthvað að sér. Lágmarkskrafa KRON
er að fá leyfi fyrir hinum .pöntuðu vél-
um.
Aðalfundir
Aðalfundur Reykjavíkurdeildarinnar
verður að forfallalausu haldinn í Iðnó
á skírdag. 3. apríl n. k. kl. 2 e. h.
Aðalfundur KRON verður að forfalla-
lausu haldinn sunnudaginn 27. apríl.
12
Félagsrit KRON