Félagsrit KRON - 15.02.1947, Side 15
Matvörubúð KRON á Hrísateig 19
Búðin tók til starja 27. ágúsl 1945. A myndinni sést eystri hluti búðarinnar og starjsfólk hennar,
sem er talið jrá vinstri: Guðrún Kristjánsdóttir, Guðbjörg Hjálmsdóttir, Guðmundur Ingi-
mundarson deildarstjóri, Óskar Ólajsson og Olajur Kjartansson.
ílvoi'faíiuidir
A tímabilinu 1.—20. marz n.k. verða
haldnir hverfafundir búðanna. í Reykja-
vík hefur nú félagið 10 matvörubúðir
og verður fundur fyrir hverja búð. Fé-
lagsmönnum ber að sækja fund þeirrar
búðar, sem þeir skipta við. Á fundunum
verður gefið yfirlit yfir rekstur og af-
komu viðkomandi búðar á s.l. ári. Svar-
að fyrirspurnum um rekstur og hag fé-
lagsins yfirleitt og rædd þau mál, er upp
kunna að verða borin. Félagsmenn ættu
að fjölmenna á hverfafundina.
Arðmiðaskil
Arðmiðaskilum ársins 1946 á að vera
lokið fyrir 15. febrúar n.k. Þeir félags-
menn, sem ekki hafa skilað fyrir þann
tíma eiga ekki rétt á arðsúthlutun. Fé-
lagsmenn eru beðnir að leggja miðana
saman og skrifa viðskiptaupphæðina ut-
an á umslagið. — Viðskiptabók félags-
manna á að fylgja með miðunum, eða
bráðabirgðaskírleini þeirra, sem ekki
hafa fengið viðskiptabók. Nettó arðmið-
ar eða nótur skal ekki reikna með.
Pélagsrit KRON
13