Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Page 9

Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Page 9
hefur hann ennþá. Aftur á móti hefur hann lengi ekki haft áhuga á neinu, og eyðir helzt, tíman- um með því að lesa blöðin. Hann les einnig það sem ég skrifa, en honum fellur ekki hugsunar háttur minn í geð. Auk eins bróðurs á ég mótorhjól, bíl, konu og tvö börn. Foreldrar mínir höfðu ákveðið að ég ætti að verða verkfræð- ingur. Þessvegna las ég lög og varð á skömmum tíma kunnur landslagsmálari og skopteiknari. Þar sem enginn neyddi mig til að læra að teikna í skólanum, varð sú starfsgrein sérstaklega lokkandi, og eftir að ég hafði fengizt við að teikna skopmyndir og auglýsingaspjöld um tíma, lærði ég tréskurð og leiktjalda- málun. Jafnframt vann ég sem dyravörður í sykurverksmiðju og sem yfireftirlitsmaður á reiðhjólastæði. og af því að ég hafði ekkert vit á tónlist fór ég að kenna nokkrum vinum mínum að leika á mandólín. Ég varð víðþekktur fyrir frá- sagnarhæfileika. Um skeið var ég kennari í heimavistarskóla. Að lokum fékk ég starf við prófarkalestur hjá dagblaði í litlu þorpi. Til þess að auka tekjur mínar fór ég að skrifa smágrein- ar um daglega lífið og þar sem ég átti frí á sunnudögum tók ég að mér ritstjórn vikublaðs, sem kom út á mánudögum. Einn góðan veður- dag tók ég lestina til Milano og komst þar að við gamanblað, sem hét Bertoldo. Þar var mér neitað um að skrifa, en teikna fékk ég af hjartans lyst. Eg greip tækifærið og leiknaði á svartán

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.