Alþýðublaðið - 03.02.1920, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.02.1920, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Tilkynning. Það tilkynnist hór með, aö „Hásetafélag Beykjavíkur" hefir breytt um nafn og heitir hér eftir „Sjómannafélag Reykjavíkur“. Stjóvnin. 5jómarinafélag ‘Rvíkur. heldur fund í Bárubúð Fimtudag 5.-febr. 1920 kl. 77« síðdegis. Hvildartímamálið til umræðu. — Fjölmennið! Stj órnin. Xoii konnnpr. Eftir Upton Sinclair. (Frh.). XXIII. Nú var tími kominn tii þess fyrir Mary að kveðja, og Hallur stóð upp til að fylgja henni, en kveinaði þó af sársauka. Hún leit á hann með meðaumkvun, hún hafði ekki haldið það aður, að svona væri komið. Þegar þau höfðu gengið nokkurn spöl, sagði hún: .Hví gengur þú í þessa vinnu þegar þú þarft þess ekki?“ „En eg er neyddur til þessl Eg verð að vinna fyrir mérl“ „Þú þarít ekki að gera það á þennan hátt! Ungur og vel gefinn maður eins og þú — Ameríku- maðurl“ Einmitt það,“ sagði Hallur," mér fanst það þess virði, að sjá kolanámurnar.“ „Nú ertu búinn að sjá þær,“ sagði unga stúlkan, — „hættu nú." „Það getur varla sakað mig, þó eg sé hér ögn lengurl" „Ekki það?“ Hvernig veistu það? Hvern daginn sem er, get- urðu verið borinn upp úr námu- göngunuro liðið lík,“ Samkvæmisskapið var farið. Rödd henuar var full biturleiks, eins og ætíð, þegar hún mintist á NorðurdaL „Eg veit hvað eg segi, Joe Smith Hafa ekki tveir bræður mfnir farist á þennan hátt — korn- ungir og hraustirl Og eg hefi séð fjölmarga aðra hrausta drengi fara lifandi niður í göngin, en koma upp liðin lík — eða það, sem verkamanni er ennþá verra, sem örkumlarnenn. Stundum á morgn- ana grípur mig áköf löngun til þess, að fara niður að námugöng- unum og hrópa til þeirra: Farið ekki niður, farið ekki eitt fet! Farið héðan samstundis! Sveltið, ef nauðsyn krefur, betlið, ef þið þurfið þess með, en fáið ykkur aðeins aðra vinnu en kolahöggl" í fjálgletksofsanum hafði hún hækkað röddina — nú breyttist hijómblærinn — ákafur kvíði: „Þetta versnar — sfðan þú komst Joe! Að sjá þig hefja kolavinnu, þig sem ert svona ungur og sterk- ur og alt öðru vísi en hinir allir. Æ, farðu héðan Joe, farðu meðan það er ekki um seinan!" Hann var hissa á ákafa hennar. „Vert þú alls ósmeik um mig, Mary*, sagði hann. „Það kemur ekkert ilt fyrir mig. Eg fer bráð- um burtu." Þau gengu eftir þröngum götu- troðning og hatin hafði smeygt handleggnum undir handlegg henn- ar. Hánn fann að húu titraði, og flýtti sér að bæta við: „Það er ekki eg, sem ætti að fara héðan, Mary, það ert þú Þú hatar þetta bæli — það er skelfilegt, að þú skulir neydd til þess, að dvelja hér. Hefir þér aldrei dottið í hug að komast héðan?" Hún ansaði ekki undir eins, og þegar hún gerði það, var allur ákafi horfinn úr rómnum; hann var hljómlaus og tómur af von- leysi: „Það er gagnslaust að hugsa um mig. Fyrir mig er ekkert um að gera, ung stúlka getur ekkert, þegar hún er fátæk. Eg hefi reynt — það er eins og að berja höfð- inu við steininn. Það er meira að segja ógerningur fyrir mig, að draga saman fyrir einn járnbraut- arfarseðill Eg hefi reynt það. í tvö ár dróg eg saman, og hvað heldurðu svo, Joe, að það hafi verið mikið? Sjö dalir — í tvö ár! Já — manni er ekki unt að halda f aurana, þeg&r svo margt er umhverfis mann, sem maðnr kvelst af að sjá. Það er hægt að hata þá, af því þeir eru lyddur — en það er ógerningur að hjálpa ekki, þegar fjölskyldufaðir slasast til dauðs og fjölskylda hans er borin út um hávetur, án þess hún hafi nokkursstaðar skjólshús." „Þú ert altof góðgjörn, Mary". „Ó, nei, það er ekki það. Ætti eg að fara í burtu, þegar systkini mín neyðast til þess að verða hér eftir?" „Þú getur unnið þér inn fé, og sent þeim það*. Aug-lýsingar. Auglýsingum í blaðið er fyrst um sinn veitt móttaka hjá Ouð- geir Jönssyni bókbindara, Lauga- vegi 17 (bakhús). Sími 286 og á afgreiðslunni á Laugavegi 18 b. Kaupið Fæst hjá Guðgeiri Jónssyni. Ijásetafélagar! Öllum tillögum til fólagsins, eldri og yngri, er veitt móttaka á afgr. Alþbl. (Laugav. 18 B) alla virka daga kl. 10—7. Gjaldkerinn. Peningfabudda fundín. Má vitja á afgr. H.omóða óskast til kaups. fyrir sanngjarnt verð og í not* hæfu standi. Afgr. v á. Hýlegf skinnhúfa fundm í upp' bænum. Afgr. v. á. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.